
Fjölmiðlar

Stjórnin endurspegli ekki hluthafahóp Sýnar
Í dag fóru þrjú félög, sem saman fara með 10,8 prósent hlut í Sýn, fram á að haldinn yrði annar hluthafafundur og ný stjórn yrði kjörin. Fasti ehf., sem er í eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur, er stærsta félagið í hópnum. Hilmar Þór segir að stjórn Sýnar endurspegli einfaldlega ekki hluthafahóp félagsins.

„Ekki kann lögreglan að meta það“
Í þakkarræðu sinni á Edduverðlaununum í kvöld skaut Þóra Arnórsdóttir föstum skotum að lögreglu og Samherja þegar hún tók við verðlaunum fyrir hönd umsjónarmanna Kveiks, sem hlutu verðlaun fyrir fréttaskýringaþátt ársins.

Útvarpi Sögu hafnað um rekstrarstuðning
SagaNet-Útvarp Saga ehf. sem rekur bæði útvarpsstöðina Útvarp Saga og samnefndan vefmiðil var hafnað um rekstrarstuðning frá fjölmiðlanefnd. Félagið var eitt þriggja sem var hafnað um stuðning.

Jón Steinar opnar sig um vinslit sín og Davíðs
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, segist ekki vita hvers vegna Davíð Oddsson, nú ritstjóra Morgunblaðsins áður forsætisráðherra með meiru, hafi farið í fýlu við sig. Sennilega vegna einhverra skoðana sinna en honum sé sama, hann er bundinn sannfæringu sinni og öðru ekki.

Innherji á Vísi færður fyrir aftan greiðsluvegg
Frá og með deginum í dag verður viðskiptamiðillinn Innherji á Vísi í áskrift og færður fyrir aftan greiðsluvegg. Samhliða þessu er ný innskráning á Vísi kynnt til leiks þar sem notast er við rafræn skilríki. Þegar fram líða stundir verður ýmis önnur þjónusta í boði fyrir innskráða lesendur.

Um 380 milljónum deilt til 25 einkarekinna fjölmiðla
25 einkareknir fjölmiðlar deila með sér rúmlega 380 milljónum króna samkvæmt niðurstöðu úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Þremur umsóknum var hafnað þar sem umsóknirnar uppfylltu ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðning en í heildina sóttu fjölmiðlarnir 28 um rekstrarstuðning að fjárhæð 917,5 milljónir króna.

Lífeyrissjóðir settu nær öll atkvæði sín á Pál og Jóhann í stjórnarkjöri Sýnar
Þrír af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Sýnar, sem ráða samanlagt yfir 26,5 prósenta eignarhlut, settu nær öll atkvæði sín á þá Pál Gíslason og Jóhann Hjartarson í stjórnarkjöri fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins í lok síðasta mánaðar og tryggðu þannig að allir þeir stjórnarmenn sem sóttust eftir endurkjöri héldu sætum sínum. Á meðal þeirra sem fékk ekki eitt einasta atkvæði frá sjóðunum var stærsti einkafjárfestirinn í Sýn.

Svona greindu bresku sjónvarpsstöðvarnar frá andláti drottningar
Fjölmiðlar um allan heim eru nú undirlagðir fréttum af andláti Elísabetar II Bretadrottningar, nýjum þjóðhöfðingja og konungi Bretlands, Karli III, og því sem í vændum er.

Heilu hraukarnir af ólesnum dagblöðum fara beint í ruslið
Reglulega má sjá kvartanir í hinum ýmsu hverfishópum á Facebook, þess efnis að dagblöðin hafi ekki borist. Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að sumir blaðberar liggja á því lúalaginu að demba blöðum dagsins beint í ruslið.

Fréttaþulurinn Bernard Shaw er látinn
Bandaríski fréttaþulurinn Bernard Shaw, sem starfaði lengi sem aðalfréttaþulur bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er látinn, 82 ára að aldri.

Hugsa eigi um vörumerki eins og litla svarta kjólinn
Það getur ýmislegt mælt með því að breyta útliti rótgróins vörumerki en það er engin ástæða til að gera það ef markmiðið er bara að gera breytingar breytinga vegna. Hugsa á um vörumerki eins og litla klassíska svarta kjólinn í fataskápnum sem passar alltaf og fer líklega aldrei úr tísku.

Eftir 790 þætti hætti Siggi Hlö á toppnum og fór út með stæl
Sigurður Hlöðversson eða Siggi Hlö eins og hann er alltaf kallaður er hættur með þáttinn Veistu hver ég var á Bylgjunni.

Streymi Rúv lá niðri
Samkvæmt tilkynningu á vef Ríkisútvarpsins lá allt streymi á vef og í appi niðri um stund áðan. Bilunin gæti varla hafa orðið á verri tíma nú þegar kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur upp á sæti á heimsmeistaramóti.

Lokað á Novaya Gazeta í Rússlandi
Dómstóll í Rússlandi hefur svipt Novaya Gazeta, einn af síðustu frjálsu fjölmiðlum Rússlands, starfsleyfinu. Blaðið verður því að hætta allri sinni starfsemi í Rússlandi.

Ritstýrir Húsfreyjunni samhliða starfi bæjarstjóra
Gengið hefur verið frá ráðningu nýs ritstjóra Húsfreyjunnar, tímariti Kvenfélagasambands Íslands. Sigríðar Ingvarsdóttur tekur við starfinu af Kristínu Lindu Jónsdóttur sem ritstýrt hefur tímaritinu í tæpa tvo áratugi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu.

Blaðamennska í ágjöf norðlensks réttarfars
Enn hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra kallað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna tapaðs síma í eigu húskarls Samherja. Enn heyrist ekkert af yfirheyrslum yfir Samherjamönnum vegna meintar mútustarfssemi í þróunarlandi – örlítið stærra mál en tapaður sími.

Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör.

Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins
Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Krefjast 24 ára dóms yfir fyrrverandi blaðamanni fyrir landráð
Ríkissaksóknari í Rússlandi hefur krafist þess að fyrrverandi blaðamaðurinn Ivan Safronov, sem hefur verið ákærður fyrir landráð, verði dæmdur í 24 ára fangelsi.

Blaðamennirnir fjórir hafi nú allir gefið skýrslu
Íslensku blaðamennirnir fjórir sem voru boðaðir til yfirheyrslu vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild“ Samherja eru nú sögð hafa gefið lögreglunni á Norðurlandi eystra skýrslu vegna málsins.

Finnskir blaðamenn sakaðir um landráð neita sök
Réttarhöld yfir þremur finnskum blaðamönnum sem sakaðir eru um að hafa opinberað ríkisleyndarmál Finnlands hófust í Helsinki í dag. Þeir neita sök.

Sjö bítast um fimm sæti í stjórn Sýnar
Tilnefningarnefnd Sýnar vegna yfirvofandi stjórnarkjörs í félaginu metur það svo að þeir sjö frambjóðendur sem vilja komast í stjórn félagsins. séu allir hæfir til stjórnarsetu. Stjórnarformaður Sýnar sækist ekki eftir endurkjöri.

Sættir sig ekki við „hótanir fjölmiðla“
Fyrr í dag birti Hannes Steindórsson, formaður Félags fasteignasala og bæjarfulltrúi í Kópavogi pistil á Facebook síðu sinni. Pistilinn segist hann hafa verið knúinn til þess að skrifa vegna hótana fjölmiðla sem myndu ekki birta sannleikann.

Fjórtán ára sögu „Veistu hver ég var?“ að ljúka
Útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, betur þekktur sem Siggi Hlö, hefur ákveðið að hætta með útvarpsþáttinn Veistu hver ég var? sem hefur verið á dagskrá Bylgjunnar síðdegis á laugardögum síðastliðin fjórtán ár.

Helga Björg, Ingigerður og Páll Vignir í nýjum hlutverkum hjá Sýn
Helga Björg Antonsdóttir, Páll Vignir Jónsson og Ingigerður Guðmundsdóttir hafa ýmist verið ráðin til starfa hjá Sýn eða taka við nýjum störfum hjá fyrirtækinu. Helga Björg hefur verið ráðin markaðsstjóri Vodafone, Ingigerður sem nýr öryggis- og gæðastjóri og Páll Vignir nýr forstöðumaður fjölmiðlalausna.

Beittu armlás og tóku dróna svissnesks tökuliðs ófrjálsri hendi
Lögreglan á Vesturlandi hefur endurheimt dróna svissnesks tökuliðs sem níu starfsmenn Hvals tóku ófrjálsri hendi þegar tökuliðið var að mynda hvalstöðina í Hvalfirði. Tökuliðið hefur nú gefið skýrslu hjá lögreglu en Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, hefur einnig kært atvikið.

„Ég er í engum vafa um að ég braut engin lög“
Ritstjóri Kjarnans segir yfirheyrslu yfir sér, sem fram fór í gær, fyrst og fremst hafa snúist um störf fjölmiðla og heimildamenn í tengslum við Samherjamálið. Ekki hafi verið spurt um meinta dreifingu á kynferðislegu efni, sem rannsóknin var áður sögð snúast um.

Myndaveisla: Fréttastofan kvaddi Eddu
Fjölmiðladrottningin Edda Guðrún Andrésdóttir á fimmtíu ára feril að baki og hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í þrjátíu ár. Í gærkvöldi las hún fréttirnar í síðasta skipti og mætti fréttastofan að fagna þessum stóru tímamótum í hennar lífi með konfetti og kampavín við hönd.

Edda fór yfir fimmtíu ára feril í fréttamennsku
Edda Andrésdóttir á fimmtíu ára feril að baki í fjölmiðlum og hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í þrjátíu ár. Í kvöld las hún kvöldfréttir Stöðvar 2 í síðasta sinn og fór yfir feril sinn í Íslandi í dag hjá Sindra Sindrasyni í kjölfarið.

Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku.