
Costco

Bónus fylgist grannt með Costco
„Við erum stolt af því að verðin hjá okkur eru í mörgum tilfellum sambærileg og hjá næststærsta smásala heims,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, um hvort opnun Costco hafi haft einhver áhrif á Bónus það sem af er vikunni.

Mannfjöldinn svo mikill að Costco kerrur kláruðust
Svo mikill mannfjöldi er í Costco í dag að ekki eru nægilega margar kerrur fyrir alla.

Biður neytendur að gæta sín á Costco-áhrifunum
"Þessi hugsun að þú farir inn í verslun, jafnvel bara til að skoða, en þú kemur út úr búðinni með eitthvað sem þig vantaði ekki.“

Fjölmenni beið þess að Costco opnaði á degi tvö
Röð myndaðist fyrir utan vöruhúsið í Kauptúni í morgun.

Ölgerðin kaupir höfuðstöðvarnar eftir metár
Eigendur Ölgerðarinnar juku hlutafé fyrirtækisins um 1,6 milljarða króna í apríl þegar það keypti höfuðstöðvarnar við Grjótháls. Hagnaðurinn í fyrra nam 800 milljónum, stefnt er að stækkun húsnæðisins.

Vatn Costco ódýrara en skilagjald flöskunnar
Costco í Garðabæ selur hálfan lítra af vatni í plastflöskum á ellefu krónur stykkið. Skilagjald drykkjarumbúða er 16 krónur á flösku og því fimm krónum hærra en verðlagning Costco.

Costco býður ekki alltaf besta verðið
Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið ætla að veita Costco verðsamkeppni á raftækjamarkaði. Matarinnkaup hagstæð í Costco en í mörgum tilfellum þarf að kaupa í miklu magni. Bjóða tískuföt á lægra verði en áður þekktist.

Costco risabangsi smellpassaði í skottið á fólksbíl
Kaupandi risastórs bangsa í Costco átti ekki auðvelt með að koma bangsanum fyrir í bílnum.

Íslendingar fylgdust agndofa með opnuninni: „Hehe. Fleiri fjölmiðlar á svæðinu en kúnnar“
Bandaríski verslunarrisinn Costco opnaði vöruhús sitt í Kauptúni í Garðabæ í morgun.

Undirbúningur opnunarinnar í þrjú ár
Viðskiptavinir Costco, sem opnar verslun sína í dag, geta átt von á því að það verð sem boðið er upp á í dag haldist áfram. Ekki sé um opnunartilboð að ræða.

Bein útsending: Costco opnar í Kauptúni
Bandaríski verslunarrisinn Costco opnar vöruhús sitt í Kauptúni í Garðabæ í dag.

Segjast ekki ætla að keppa við Costco
Forstjórar N1 og Skeljungs segjast ekki geta keppt við lágt verð Costco. Fyrirtækin séu of ólík. Ein bensínstöð í Garðabæ muni ekki breyta stöðu á íslenskum eldsneytismarkaði.

Hátt í 200 milljónir í kassann hjá Costco fyrir opnun
Bandaríski verslunarrisinn hefur selt hátt í fjörutíu þúsund aðildarkort.

Fáðu þér göngutúr um Costco
Myndband tekið innan úr verslun Costco í Kauptúni sýnir hvernig umhorfs er í versluninni.

Myrkur skall á í Costco
Röðin inn í verslun Costco í Kauptúni hefur náð út á bílaplan frá opnun.

Engin ástæða til að bregðast sérstaklega við opnun Costco
Skeljungur vel samkeppnisfær, segir forstjórinn.

Stefnir í rauðan dag hjá olíufélögunum í Kauphöllinni
Verð á hlutabréfum í N1 og Skeljungi hafa lækkað í morgun eftir að markaðir voru opnaðir.

Titringur á eldsneytismarkaði vegna lágs verðs hjá Costco
Forstjóri Olís segir verð Costco lægra en markaðurinn geti ráðið við. Forstjóri Costco segir fyrirtækið ekki greiða með eldsneyti og að álagningin sé eðlileg.

Bensínstöð Costco opnuð: Selja bensín á 169,9 krónur
Lítrinn af bensíni hefur ekki kostað undir 170 krónur á lítrann síðan árið 2009.

Lofar engu um bensínverð að svo stöddu
"Verðin verða birt við opnun,“ segir Pappas.

Bensínstöð Costco opnuð á undan búðinni
Stefnt er að því að opna bensínstöð Costco við Kauptún í Garðabæ nokkrum dögum áður en verslunin sjálf verður opnuð næstkomandi þriðjudag. Þetta staðfestir Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu.

Ofmetin Costco-áhrif
Eins og varla hefur farið fram hjá nokkrum manni hyggur bandaríski verslunarrisinn Costco á opnun verslunar á Íslandi nú í sumarbyrjun.

Hagar verða helmingi stærri
Hagar eru í færi til að auka veltu sína um helming með kaupum á Olís og Lyfju. Sérfræðingur í samkeppnisrétti telur víst að Samkeppniseftirlitið setji skilyrði fyrir kaupunum á Olís. Fjárfestar taka vel í viðskiptin.

Búa sig undir Costco með kaupum á Olís
Hagar skrifuðu í gær undir kaup á Olís fyrir 15 milljarða króna. Forstjóri Haga segir félagið betur í stakk búið til að takast á við samkeppni.

Mæta samkeppni frá netinu og komu Costco með allt að 40 prósent verðlækkunum
Sólning ætlar að lækka verð á dekkjum um allt að 40 prósent. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að hagstæðara gengi, niðurfellingar á tollum og lægra innkaupsverð spili þar stóran þátt en fyrirtækið sé einnig að mæta breyttum aðstæðum á markaði.

Búið að ákveða hvenær Costco opnar í Kauptúni
Verslunin verður opnuð að morgni þriðjudagsins 23. maí næstkomandi, klukkan 9:00.

Heildsalar lækka verð vegna komu Costco
Ölgerðin og Sláturfélag Suðurlands (SS) vinna að samningum við erlenda birgja um lægra innkaupsverð vegna innreiðar Costco hingað til lands.