Sýrland

Öryggisráðið samþykkir 30 daga vopnahlé í Sýrlandi
Vopnahléið á að hefjast tafarlaust en það veltur á að Rússar fái Assad Sýrlandsforseti til að virða það.

Hryllingurinn heldur áfram í Sýrlandi
Sprengjum rigndi enn á íbúa Austur-Ghouta í gær og fórust tugir. Öryggisráðið ræðir um þrjátíu daga vopnahlé. Stríðið í Sýrlandi verður sífellt flóknara og fleiri aðilar dragast inn í átökin.

Bíða dauðans í stanslausu sprengjuregni
Sprengjur falla á íbúa Austur-Ghouta í Sýrlandi á tíu mínútna fresti. Hundruð hafa farist undanfarna daga. Árásir fylgismanna Sýrlandsforseta héldu áfram í dag og felldu að minnsta kosti fimm.

UNICEF orðlaus yfir blóðbaðinu í Sýrlandi
Sprengjuárásir á Austur-Ghouta halda áfram. Mánudagurinn einn sá versti í mörg ár. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á engin orð til að lýsa hryllingnum og spyr hvort hinir seku eigi einhver orð til að réttlæta villimennskuna.

Talið að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers á tveimur dögum
Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að allt að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers sem gerðar hafa verið á Austur-Ghouta í Sýrlandi síðustu tvo daga.

Assad-liðar á leið til Afrin
Svo virðist sem að Kúrdar og Assad-liðar hafi gert samkomulag um að stöðva sókn Tyrkja.

Óttast að Austur-Ghouta sé hið nýja Aleppo
Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að hið minnsta 77 óbreyttir borgarar hafi látið lífið í Austur-Ghouta gær í loftárásum Sýrlandshers.

Vill að herinn hverfi frá Afrin
Herlið Tyrklands í Afrin-héraði Sýrlands ætti að snúa heim og láta af aðgerðum gegn YPG, hersveitum sýrlenskra Kúrda

Æfur yfir stuðningi Bandaríkjanna við sýrlenska Kúrda
Forseti Tyrklands virðist hóta Bandaríkjunum „Ottómana-kinnhesti“.

Ástandið aldrei verið eldfimara
Ísraelar og Íranar berjast við landamæri Sýrlands og Ísraels. Mikil togstreita er á milli Bandaríkjamanna og Tyrkja á landamærum Sýrlands og Tyrklands. Erindreki SÞ segir ástandið í Sýrlandi hafa versnað.

Baghdadi særðist alvarlega í árás í maí
Hann er nú sagður vera í Sýrlandi, við landamæri Írak, og í slæmu ástandi bæði líkamlega og andlega.

Ísraelsk herþota skotin niður í Sýrlandi
Ísraelsk herþota af gerðinni F-16 var skotin niður í dag í sýrlenskri lofthelgi. Ísraelsmenn svöruðu fyrir sig með því að ráðast á í það minnsta tólf írönsk og sýrlensk skotmörk í Sýrlandi.

Síðustu „Bítlarnir“ í haldi Kúrda
Yfirvöld Bandaríkjanna segja fjóra erlenda vígamenn ISIS, sem gengu undir nafninu „Bítlarnir“, hafa afhöfðað minnst 27 gísla ISIS.

Assad-liðar segja Bandaríkin hafa framið „grimmilegt fjöldamorð“
Um hundrað menn hliðhollir Assad eru sagðir hafa fallið í árásum Bandaríkjanna í nótt.

Rússneskur orrustuflugmaður sagður hafa sprengt sig í loft upp
Fjölmiðlar í Rússlandi segja að flugmaðurinn hafi tekið pinna úr handsprengju frekar en að leyfa sýrlenskum uppreisnarmönnum að handsama sig.

Reiði í Afrin eftir limlestingu líks konu
Uppreisnarmenn, sem studdir eru af Tyrklandi, birtu myndband af limlestu líki konu sem barðist fyrir YPG.

Fjöldi lækna handtekinn fyrir að gagnrýna aðgerðir Tyrklands í Sýrlandi
Saksóknari gaf út handtökuskipun á mönnunum í morgun og voru þeir handteknir í átta héruðum Tyrklands í dag.

Erdogan heitir því að ráðast á Manbij
Til átaka gæti komið á milli Tyrklands og Bandaríkjanna þar sem bandarískir hermenn eru í Manbij.

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir Rússa ábyrga fyrir efnavopnaárásum í Sýrlandi
Rex Tillerson sakar Rússa um að halda hlífiskildi yfir samherjum sínum í Sýrlandi þrátt fyrir að þeir beiti efnavopnum.

Tóku fjóra bæi af YPG í Afrin
Tyrkneski herinn hefur sölsað undir sig bæi í Afrin-héraði Sýrlands. Brjóta hersveitir Kúrda á bak aftur.

Stafar enn ógn af starfsemi ISIS
Árinu 2017 er að ljúka og kalífadæmi ISIS er í molum. Samtökin eru þó enn fullfær um að beita skæruhernaði. Það sást greinilega í gær þegar sjálfsmorðssprengjuárás kostaði 41 lífið í Kabúl, höfuðborg Afganistans.

Börn notuð sem skiptimynt
Háttsettur embættismaður hjá Sameinuðu þjóðunum segist óttast að veik börn, sem bíða þess nú að verða flutt frá stríðshrjáðu hverfi í Damaskus í Sýrlandi, séu notuð sem spilapeningar í samningaviðræðum uppreisnarmanna og stjórnarhersins.

Færri en þúsund ISIS-liðar eftir
Vel hefur gengið í baráttunni gegn ISIS og hafa samtökin misst höfuðvígi sín í ríkjunum tveimur á árinu.

Hylja auga til að sýna sýrlensku ungbarni samstöðu
Ungur sýrlenskur drengur missti móður sína og annað augað í stórskotarás. Hann hefur síðan orðið að tákni um blóðsúthellingarnar í borgarastríðinu sem enn geisar þar.

Höfuðvígi Ríkis íslams í Raqqa sagt fallið
Bandamenn Bandaríkjamanna í Sýrlandi segjast hafa rekið hryðjuverkasamtökin út úr borginni í eitt skipti fyrir öll.

Mannskæðasti mánuður ársins í Sýrlandi
Bresk mannréttindasamtök segja rúmlega 3.300 manns hafa fallið í átökunum í september.

Ísraelar sprengdu meinta efnavopnaverksmiðju
Ísraelski herinn gerði í gær árás á herstöð í vesturhluta Sýrlands. Frá þessu greindi sýrlenski stjórnarherinn í gær. Í tilkynningu hersins kemur fram að eldflaugar hafi komið í gegnum líbanska lofthelgi og hæft herstöð nærri borginni Masyaf með þeim afleiðingum að tveir hermenn fórust og búnaður eyðilagðist.

Tígurinn vann enn einn sigurinn
Sýrlenska stjórnarhernum tókst í gærkvöld að brjóta á bak aftur umsátur liðsmanna Íslamska ríkisins um borgina Deir ez-Zur í austurhluta Sýrlands

Nægar sannanir til að sakfella Assad fyrir stríðsglæpi
Fyrrverandi saksóknari stríðsglæpamála ætlar að segja skilið við rannsóknarnefnd SÞ á borgarastríðinu í Sýrlandi vegna athafnaleysis öryggisráðsins. Hann segir nægar sannanir til að sakfella Bashar al-Assad forseta fyrir stríðsglæpi.

UNESCO vill byggja Gömlu borgina í Aleppó upp eftir teikningum
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, vill byggja hina svokölluðu Gömlu borg í Aleppó upp á ný. Borgin er í rústum eins og stendur vegna sýrlensku borgarastyrjaldarinnar. Þúsundir borgara hafa látið lífið í átökum og margfalt fleiri hafa flúið borgina.