EM 2017 í Finnlandi

Frábær staða í fyrri hálfleik en annað tap á móti Ungverjum
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með fimmtán stigum, 82-67, í seinni æfingaleik sínum í Ungverjalandi og Ungverjarnir unnu því báða leikina með sama mun.

Axel, Ólafur og Sigtryggur Arnar fara ekki með í síðustu æfingaferðina
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hélt í morgun í sína síðustu æfingaferð fyrir EM í Finnlandi sem hefst þann 31. ágúst næstkomandi.

Viðurkennir að hann sé „Númeraperri“ landsliðsins
Það styttist óðum í íslenska karlalandsliðið í körfubolta spili sinni fyrsta leik á Eurobasket 2017 en í dag eru aðeins sextán dagar í fyrsta leikinn í Helsinki sem er á móti Grikkjum.

Martin stigahæstur í tapi gegn Rússum
Íslenska liðið náði að vinna sig aftur inn í leikinn gegn ógnarsterku liði Rússa í æfingarleik liðanna ytra en á endanum voru Rússarnir of sterkir fyrir íslenska liðið.

Martin stigahæstur í sigri á Ungverjalandi
Martin Hermannsson var stigahæstur með 14 stig og gældi við tvöfalda tvennu í 60-56 sigri á Ungverjalandi í æfingarleik sem fór fram í Kazan í Rússlandi í dag.

Náðu ekki að fylgja góðri byrjun eftir
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði 66-90 fyrir Þjóðverjum í vináttulandsleik í Kazan í Rússlandi í dag.

Jón Arnór spilar ekki á móti Þjóðverjum í dag
Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska körfuboltalandsliðinu í dag þegar liðið hefur leik á fjögurra þjóða æfingamóti í Kazan í Rússlandi.

TAU Castelló bauð Ægi velkominn á íslensku
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Ægir Þór Steinarsson er búinn að finna sér lið á næsta tímabili en hann mun spila áfram í spænsku b-deildinni í körfubolta.

Ekki pláss fyrir sjö feta mann í íslenska Eurobasket hópnum | 15 eftir í hópnum
Íslenska körfuboltalandsliðið mun ekki tefla fram tveimur sjö feta mönnum á Evrópumótinu sem hefst í Helsinki í lok mánaðarins eins og einhverjir sáu kannski í hillingum.

Martin: Stór og mikil áskorun
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta heldur til Rússlands á morgun þar sem það mætir heimamönnum, Þjóðverjum og Ungverjum í æfingaleikjum. Þetta er liður í undirbúningi fyrir Evrópumótið sem hefst í lok mánaðarins.

Heilt lið af frönskum NBA-stjörnum mun missa af EM
Franska körfuboltalandsliðið er eins og það íslenska að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í körfubolta en Frakkar eru með okkur Íslendingum í riðli í Helsinki.

Kýldi mótherja, meiddist og missir af EM
Danilo Gallinari, leikmaður Los Angeles Clippers og ítalska landsliðsins, verður ekki með á EM í körfubolta sem hefst eftir nákvæmlega mánuð.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Belgía 85-70 | Strákarnir kvöddu með sigri
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann öruggan sigur á því belgíska, 85-70, á Akranesi í dag. Þetta var síðasta leikur íslenska liðsins á heimavelli fyrir EM sem hefst 31. ágúst.

Haukur Helgi: Gerðum þetta betur en síðast
Ísland vann 15 stiga sigur á Belgíu, 85-70, á Akranesi þegar liðin mættust í annað sinn á þremur dögum.

Gloppóttur sigur á Belgum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta lék sinn fyrsta leik í undirbúningnum fyrir Eurobasket í gærkvöldi. Liðið vann þá sjö stiga sigur á Belgíu, 83-76,en þjálfarinn Craig Pedersen á mikið verk óunnið fyrir mót.

Martin: Verður mikill hausverkur fyrir þjálfarana að velja lokahópinn
"Mér fannst við spila frábærlega í fyrri hálfleik og þá sérstaklega í fyrsta leikhlutanum,“ segir Martin Hermannsson, leikmaður íslenska landsliðsins, en hann gerði 15 stig fyrir Ísland í kvöld.

Hlynur: Mestallan minn feril höfðum við litla trú á hlutunum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta leikur fyrsta æfingaleikinn af átta fyrir Evrópumótið þegar það mætir Belgíu í Smáranum í kvöld. Liðin mætast svo aftur á Akranesi á laugardaginn.

Sigtryggur Arnar fær að stíga fyrstu landsliðsskrefin á gamla heimavellinum
Sigtryggur Arnar Björnsson er í leikmannahópi Íslands í kvöld en karlalandsliðið spilar þá við Belgíu í Smáranum en þetta er fyrsti undirbúningsleikur liðsins fyrir Eurobasket.

Martin: Hefði viljað fá aðeins lengra frí
Martin Hermannsson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu eru komnir á fullt í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í körfubolta en riðill Íslands fer fram í Helsinki í Finnlandi og hefst í lok ágúst.

Tryggvi um ESPN-fréttina og alla athyglina: Ég er bara rólegur yfir þessu
Tryggvi Snær Hlinason er á einu augabragði orðinn heitasta nafnið í íslenskum körfubolta og stærstu fjölmiðlarnir í Bandaríkjum eru farnir að orða miðherjann við NBA-deildina.

Elvar Már með frábæran árangur innan sem utan vallar í Miami
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson er heldur betur að finna sig vel í Miami-borg en hann er nú að reyna að vinna sér sæti í Eurobasket-liði Íslands.

Pétur sér fyrir sér nýjan meðlim í íslenska NBA-klúbbnum | Þetta segir hann um Tryggva
Tryggvi Snær Hlinason hefur alla burði til að fara í NBA-deildina í körfubolta segir körfuboltagoðsögnin Pétur Guðmundsson. Pétur þekkir hlutverk stóra mannsins í íþróttinni og nú sér ýmislegt spennandi í öðrum risa, Bárðdælingnum Tryggva Snæ.

Fjör á fyrstu æfingu íslenska karlalandsliðsins fyrir Eurobasket | Myndir
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hóf í kvöld æfingar fyrir Evrópukeppnina sem hefst í lok ágúst.

Körfuboltastrákarnir mæta vel klæddir á EM í haust
Það er komin hefð fyrir því að íslensku landsliðin mæti vel klædd til leiks á stórmót og körfuboltalandslið karla ætlar ekki að vera nein undantekning.

NBA-stjarna Grikkja ætlar að spila á móti Íslandi á EM og bróðir hans líka
NBA stórstjarnan Giannis Antetokounmpo verður með gríska landsliðinu á Evrópumótinu í körfubolta í haust en Grikkland er með Íslandi í riðli sem verður allur spilaður í Helsinki.

Þessir eiga möguleika á því að komast á EM
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari í körfubolta, er búinn að velja 24 leikmenn í æfingahóp sinn fyrir EM.

Góðar fréttir fyrir körfuboltalandsliðið
Svo gæti farið að Nicolas Batum myndi ekki spila með franska körfuboltalandsliðinu á EM í haust.

Ég ligg ekki bara í sólbaði
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur farið á kostum með Barry-háskólanum í Miami. Hann var kjörinn besti leikmaður SSC-deildarinnar og er á leið í úrslitahelgi þar sem hann ætlar alla leið.

Kristófer Acox með þúsund stig fyrir skólann sinn
Íslenski landsliðsmaðurinn Kristófer Acox setti í gær nýtt persónulegt met í síðasta heimaleik sínum með Furman í bandaríska háskólaboltanum.

Haukur Helgi: Lærdómsríkt fyrir mig að vera gerður að fyrirliða
Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er orðinn fyrirliði franska liðsins Rouen Métropole Basket á sínu fyrsta ári.