Birtist í Fréttablaðinu

Líst ekki vel á lög um að hjóla í einfaldri röð
Nýmæli um hjólreiðar eru í drögum að nýjum umferðarlögum. Hjólreiðafólk segir drögin bæta litlu við öryggi þess og jafnvel draga úr því á sumum stöðum. Erlendur S. Þorsteinsson reiknifræðingur segir að líta eigi til nágrannalandanna.

Afli í strandveiðum stóraukinn en fáir fást til að stunda veiðar
Skýrsla sjávarútvegsmiðstöðvar HA sýnir að strandveiðar eru ekki á góðum stað. Aukinn afli fer inn í kerfið en afkoma sjómanna versnar og þeim fækkar. Mikilvægt að bæta kerfið að einhverju leyti. Sjávarútvegsráðherra segir skýrsluna mikilvægt innlegg.

Tókst aftur að flytja særða
Á þriðja tug almennra borgara, sem þurftu nauðsynlega að komast undir læknishendur, tókst í gær að flýja Austur-Ghouta í Sýrlandi.

Endurtekning er þemað í níundu útgáfu af Mænu
Mæna er tímarit um hönnun sem kemur nú út í níunda sinn. Tímaritið er gefið út af hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og hannað af þriðja árs nemum í grafískri hönnun. Í dag verður haldið upp á útgáfuna í Hafnarhúsinu í Reykjavík.

Valitor ekki greitt út í arð fyrir útboð Arion
Stjórn bankans hefur lagt áform um að ráðstafa hlutabréfum í kortafyrirtækinu í arðgreiðslu til hliðar í bili. Slík ráðstöfun myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21 prósents hlut í Valitor.

Gefa lítið fyrir svör seðlabankastjóra
Forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að stjórnendur Seðlabanka Íslands greini skaðsemi innflæðishaftanna. Forstjóri GAMMA segir bankann koma í veg fyrir æskilega fjárfestingu.

Aðeins ein kona á sæti í fimm manna stjórn Bændasamtakanna
Í fimm manna stjórn Bændasamtaka Íslands er aðeins ein kona, Guðrún Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti í Bárðardal.

Mestu brottvísanir í áratugi
Deila Rússa og Breta vegna Skripal-málsins harðnar. Tugum erindreka vísað á brott. Rússar ósáttir og hóta gagnaðgerðum. Formaður Verkamannaflokksins hneykslar Theresu May.

Fá tækifæri til að endurtaka samræmd próf
Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að þreyta að nýju samræmdu könnunarprófin í íslensku og ensku sem haldin voru við óviðunandi aðstæður í liðinni viku.

Merki Icelandic gefið til ríkisins
Framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands segir sjóðinn ekki aðeins hafa skilað góðri ávöxtun, heldur einnig stöndugum félögum. Eiginlegri starfsemi er lokið. Ávöxtun sjóðsins nemur um 110 prósentum. Lagt verður til að ríkinu verði afhent vörumerkið Icelandic.

Stefnt að opnun tveggja Domino's-staða
Stjórnendur keðjunnar telja að fjölga megi pitsustöðum hér um 30 prósent eða sjö staði.

Samkeppniseftirlitið haldi vöku sinni
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir verslanir verða að bregðast við gjörbreyttu samkeppnisumhverfi ef ekki á illa að fara. Við slíkar aðstæður sé ábyrgð samkeppnisyfirvalda mikil. Þau verði að taka tillit til aukinnar netverslunar og samkeppni.

Tilnefnir Ara og Elínu í stjórn Borgunar
Íslandsbanki skiptir út tveimur af þremur óháðum stjórnarmönnum sínum og tilnefnir Ara Daníelsson og Elínu Jónsdóttur í stjórn Borgunar. Deilur innan hluthafahóps hafa sett mark sitt á starfsemina en aðalfundur fer fram á morgun.

Sér á báti í skattlagningu á styrktarsjóði
Einn stærsti sjóðurinn sem styrkir rannsóknir og vísindi á Íslandi greiðir svipaðar upphæðir í fjármagnstekjuskatt og hann veitir í styrki. Skekkir samkeppnisstöðu innlendra háskóla við erlenda.

Segir Garðabæ láta hús grotna viljandi niður
Íbúi í Hraunhólum í Garðabæ gagnrýnir viðhaldsleysi á samliggjandi húsi í eigu bæjarsins. Húsið er eitt þeirra sem Stjarnan hefur ókeypis afnot af. Íbúinn, Hilde Hundstuen, veltir fyrir sér hvort verið sé að keyra verðgildi hennar húss niður

Fella niður mál þingmannsins
Pólitísk framtíð Bjarna Hammer er enn í óvissu.

Kennarar skrifa undir samning
Félag grunnskólakennara skrifaði undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í gær. Samningurinn gildir frá 1. apríl til 31. mars á næsta ári.

Skattamál Karls ekki tekið upp
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu Karls Wernerssonar um að mál hans fyrir tekjuárin 2005-2008 verði endurupptekin. Fyrri niðurstaða nefndarinnar stendur því óröskuð.

Kvika banki skráður á markað á föstudag
Hlutabréf Kviku banka verða tekin til viðskipta á First North markaðinum í Kauphöllinni á föstudag. Markaðsvirði bankans við skráninguna er ríflega tólf milljarðar króna.

Rússar hyggjast ekki svara Bretum nema þeir fái sýni af eitrinu
Yfirvöld í Kreml svara ekki ásökunum Breta um notkun taugaeiturs á breskri grund fyrr en þau fá sýni af efninu sem notað var.

Jón hættir í stjórn í lok mánaðarins
Jón Sigurðsson mun hætta í stjórn evrópska drykkjaframleiðandans Refresco Group í lok mánaðarins eftir níu ára stjórnarsetu.

Fyrrverandi vaktstjóri á Subway fær vangoldin laun en annað ekki
Stjarnan ehf., rekstraraðili Subway á Íslandi, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd til að greiða fyrrverandi vaktstjóra útibús síns í Vestmannaeyjum tæplega 935 þúsund krónur.

Vegagerðin kveðst vonast til að svifryk minnki á næstunni
Kröfur til slitþols vega hafa aukist undanfarin misseri. Áhrifin eiga eftir að koma enn skýrar fram, vonandi í minna svifryki, segir verkfræðingur hjá Vegagerðinni. Ólíklegt að dragi úr svifryki með steyptum götum.

Eignir Íslendinga erlendis drógust saman
Íslendingar hafa ekki átt jafn lítið af fjármunaeignum, í krónum talið, á erlendri grundu frá árinu 2005.

Umboðsmaður hefur áhyggjur af aðgengi fólks að dómstólum
Umboðsmaður Alþingis hefur áhyggjur af aðgengi venjulegs fólks að dómstólum vegna mikils kostnaðar. Hann segir mikilvægt að tilmælum sínum til stjórnvalda sé hlýtt. Hann hvetur frjáls félagasamtök til að láta meira í sér heyra og boðar skýrslu um upplýsingagjöf stjórnvalda sem bregðist illa og seint við óskum.

Þeir viðkvæmustu séu ekki fangar svifryksins
Það þarf að takmarka umferð þegar svifryksmengun er mikil, segir umhverfisráðherra. Líka þurfi að rykbinda og hreinsa götur betur. Frumvarp samgönguráðherra gerir ráð fyrir að leggja megi gjald á nagladekk og að götum sé lokað.

Seldu þriðjungs hlut í Völku
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og framtakssjóðurinn Frumtak hafa selt 37 prósenta hlut sinn í hátæknifyrirtækinu Völku ehf.

Fimm dagar á bráðamóttöku
Dæmi eru um að sjúklingar hafi þurft að bíða í allt að fimm sólarhringa á bráðamóttöku eftir viðeigandi legurými á almennri deild.

Ósammála um orsök flugslyss
Mannleg mistök urðu þess valdandi að flugvél hrapaði í Katmandú í gær. Óvíst er hver gerði þau

Gylfi hringdi í Sólveigu en framtíð hans óráðin
Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, ræddi við nýjan formann Eflingar í gær eftir utanferð. Tekur ekki ábyrgð á túlkun á þögn hans eftir kjörið. Niðurstaðan sé flott fyrir Sólveigu Önnu. Enn sé óákveðið hvort hann sækist eftir endurkjöri.