Framsóknarflokkurinn

Papparör og pólitík
Eftir að hafa heyrt mikið talað um kolsvarta loftslagsskýrslu síðustu daga skynjar maður alvarleika málsins. Hvert og eitt okkar þarf að leggja sitt af mörkum. Vissulega er hver einstaklingur bara dropi í hafið, en margt smátt gerir eitt stórt og betur má ef duga skal.

Framsókn segir framtíðina ráðast á miðjunni
Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að fjárfesta í fólki á næsta kjörtímabili en leggur ekki fram hugmyndir að töfra- eða allsherjarlausnum.

Bein útsending: Áherslur Framsóknar kynntar
Áherslur Framsóknar fyrir komandi alþingiskosningar verða kynntar á opnum steymisfundi sem hefst klukkan 18.

Atvinna, atvinna, atvinna gegn atvinnuleysi
Það er á allra vitorði að atvinnuleysi fór að stóraukast strax í kjölfar komu Covid-19 hingað til lands. Mörg vandamál spruttu í kjölfar komu veirunnar til landsins, en meðal þeirra stærstu var án efa það gífurlega atvinnuleysi sem birtist samfélaginu.

Lífsgæðin á landsbyggðinni – best geymda leyndarmálið
Ég er alin upp í Reykjavík. Ekki bara það, heldur bjó ég á Laugaveginum milli tvítugs og þrítugs, djammaði stíft og naut lífsins – enda lifum við jú bara einu sinni og ég ætlaði ekki að láta mér leiðast.

Landhelgi íslenskrar ferðaþjónustu - 0 mílur
Fyrir Covid var komin af stað réttmæt umræða um að rekstrarstaða margra íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja væri slæm og hefði versnað. Hluti vandans var rakin till falls WOW en einnig til almenns rekstrarvanda í greininni og skakkrar samkeppnisstöðu.

Á næsta kjörtímabili
Á engu hafði ég eins mikla óbeit þegar ég æfði íþróttir á yngri árum og útihlaupum. Tilbreytingalaus og langdregin og enginn fótbolti. Virtust allt að því tilgangslaus. Því var það einn góðan veðurdag að ég mannaði mig upp í að ræða þetta mál við þjálfarann. Fá einhverja umræðu um þessa afstöðu mína og botn í málið.

Hver er framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu?
Það er sorglegt að flókið regluverk, úr sér gengin löggjöf, steinrunnar stofnanir og skilningsleysi kerfisins sé dragbítur framfara og verðmætasköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu.

Finnst koma til greina að ríkið dreifi sjálfsprófum á heimili
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, ber því hraðprófafyrirkomulagi vel söguna sem ríkisstjórnin skoðar hvort hægt sé að taka upp á Íslandi til að leyfa stærri samkomur. Hann mætti í veislu í gær þar sem allir veislugestir voru skimaðir fyrir Covid-19 með hraðprófum áður en þeir fengu að fara inn í veislusalinn.

Börnin okkar
Í heimi sem einkennist af síauknum hraða og kapphlaupi við lífsins gæði, hættir okkur til að gleyma því sem mestu máli skiptir. Við gleymum að hugsa um heilsuna og vöknum upp við það einn daginn að við erum komin upp við vegg. Við gleymum að rækta samböndin sem allt í einu eru kulnuð. Við gætum ekki að því að njóta samvista með börnunum okkar sem allt í einu eru orðin fullorðin. Við gerum öll sömu mistökin. Dag eftir dag, ár eftir ár.

Fyrsti ráðherra Íslands á TikTok
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra hefur nú birt sitt fyrsta TikTok myndband.

Það sem enginn þorir að ræða!
Grænir orkugjafar hafa verið grundvöllur lífsskilyrða í landinu og knúið efnahagslífið áfram. Við Íslendingar höfum náð eftirtektarverðum árangri við útskiptum jarðefnaeldsneytis fyrir hreina orkugjafa og nú liggur fyrir að taka þarf enn stærri skref.

Börn og foreldrar eru besta fjárfestingin!
Vellíðan og velsæld barna ættu alltaf að vera okkar helsta keppikefli. Þótt við séum flest sammála um það eru kappsmálin hins vegar fleiri og áherslan á börnin á það til að vera víkjandi í önnum okkar og amstri.

Látum okkur þetta varða!
Afganistan hefur lengi verið í umræðunni í tengslum við það stríð sem þar hefur geysað um áraraðir. Við höfum áður horft með hryllingi á þá meðferð sem konur hafa fengið af hálfu Talíbana, þær hafa ekki haft sjálfstæð réttindi, sjálfstæðan vilja til framkvæmda, menntunar, kosningarréttar og þeim gert að lifa eftir óraunhæfum kröfum Talíbana án allra mannréttinda og með enga rödd.

Er þitt blóð verra en mitt?
Nú þegar hinsegin dagar ganga í garð er gott að líta aðeins í kringum sig og hugsa. Hugsa afhverju erum við enn að minna á rétt hinsegin fólks og baráttu þeirra? Hugsa hvað viljum við gera betur? Og hvar getum við gert betur?

Sjálfstæðisflokkur vinsælastur hjá körlum en VG hjá konum
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur yfirburða fylgis meðal karla en Vinstri græn meðal kvenna samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis. Samfylkingin hefur mesta fylgið hjá yngstu kjósendunum en elstu kjósendurnir kjósa flestir Sjálfstæðisflokkinn.


Ráðherrar riða til falls
Ásmundur Einar Daðason félags og barnamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra myndu falla út af Alþingi ef gengið yrði til kosninga í dag, ef marka má skoðanakönnun sem MMR framkvæmdi fyrir Morgunblaðið. Þau leiða í hvoru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir sig og formaður Framsóknarflokksins segir ljóst að flokkurinn þurfi að sækja fram í Reykjavík.

Ráðherra birti allt í einu stöðuuppfærslu um vegamál
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra var rétt í þessu að birta færslu á Facebook um að samningar hefðu náðst um vegalagningu um Teigskóg.

Þórunn gerðist kaupakona í sveit og giftist bóndanum
Þórunn Egilsdóttir alþingismaður, sem lést síðastliðið föstudagskvöld, lýsti því á Stöð 2 fyrir níu árum hvernig það kom til að Reykjavíkurstúlka gerðist sauðfjárbóndi á afskekktum sveitabæ hinumegin á landinu.

„Ekkert sérstakt kappsmál“ að halda samstarfinu áfram
Formaður Framsóknarflokksins tekur lítinn stuðning kjósenda Vinstri grænna við áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf ekki nærri sér. Þá leggur hann ekkert sérstak kapp á að halda samstarfinu áfram.

Háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra
Stjórnmálafræðingur telur að mjög háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra í komandi kosningum vegna mótstöðu við áframhaldandi stjórnarsamstarf með Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki. Yfirgnæfandi meirihluti fylgismanna flokksins eru mótfallnir samstarfinu.

Kjósendur VG afgerandi á móti frekara ríkisstjórnarsamstarfi
Rúm sjötíu prósent kjósenda Vinstri grænna eru mótfallin áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir alþingiskosningar 25. september, samkvæmt könnun Maskínu sem gerð var fyrir fréttastofu dagana 14. til 22. júní. Aðeins tæpur þriðjungur, eða 29 prósent, kjósenda VG er fylgjandi frekara samstarfi.

Þórunn Egilsdóttir er látin
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er látin eftir baráttu við brjóstakrabbamein. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akureyri í gærkvöldi.

Framsókn á siglingu í nýrri könnun
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 25,4 prósent í nýrri skoðanakönnun MMR, tæplega tveimur prósentustigum lægra en í síðustu fylgismælingu frá í byrjun júní. Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 12,3 prósent, rúmlega þremur prósentustigum hærra en í síðustu könnun.

Bein útsending: Drífa Snædal yfirheyrir Sigurð Inga
Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna.

Sigurður Ingi lofar nýju ráðuneyti
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vill að ráðuneyti sitt verði að „innviðaráðuneyti“ við myndun næstu ríkisstjórnar.

Lilja komin aftur til starfa
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra er hætt í tímabundnu leyfi sem hófst um miðjan júnímánuð. Um var að ræða veikindaleyfi að læknisráði en ekki var greint frá eðli veikindanna.

Silja Dögg í heiðurssæti Framsóknar í Suðurkjördæmi
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, situr í neðsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Neðsta sæti framboðslista er iðulega kallað heiðurssæti.

Silja Dögg afþakkar þriðja sætið
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar fyrsta sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar.