Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið. 21.5.2021 18:01
Play seldi fjárfestum hugmynd um lægri laun en hjá WOW Flugfélagið Play undirbjó á sínum tíma glærukynningu fyrir mögulega fjárfesta þar sem áform voru kynnt um að lækka launakostnað starfsmanna allverulega frá því sem verið hafði hjá WOW air. 21.5.2021 06:27
Vopnahlé hefur tekið gildi Vopnahléssamningur milli Ísraelsmanna og Hamas-samtakanna tók gildi nú klukkan 23 á íslenskum tíma. Greint var frá því fyrr í kvöld að ríkisstjórn Ísraels hefði ákveðið að ganga að samningnum en óljóst var hvenær hann myndi taka gildi. 20.5.2021 23:47
Tóku 68 framandi dýr úr dýragarði Tiger King Yfirvöld í Oklahoma í Bandaríkjunum gerðu í dag rassíu á dýragarði tígriskóngsins Jeff Lowe sem Netflix-heimildaþættirnir vinsælu Tiger King fjölluðu um. Samkvæmt tilkynningu yfirvalda tóku þau 68 framandi dýr af Lowe. 20.5.2021 23:07
Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. 20.5.2021 22:31
„Bíddu er þetta alltaf svona mikill viðbjóður?“ Aðdáun fólks á Daða og Gagnamagninu leynir sér ekki þegar samfélagsmiðillinn Twitter er opnaður. Sú aðdáun skilaði sér auðvitað í því að Ísland komst áfram úr undankeppninni og tekur því þátt á lokakvöldinu á laugardag. 20.5.2021 21:53
Lægri laun ekki forsenda rekstrarins Óvissa ríkir um framtíðarkjör starfsmanna Öldrunarheimila Akureyrar eftir að Heilsuvernd Hjúkrunarheimili tók við rekstri þeirra af Akureyrarbæ um síðustu mánaðamót. Viðræður um nýja kjarasamninga starfsmanna milli stéttarfélaga þeirra og Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis á Akureyri eru á frumstigi en Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, segir að fyrirtækið þurfi að semja upp á nýtt. 20.5.2021 06:16
Eygja möguleika á vopnahléssamningi á föstudag Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, virðist ekki ætla að verða við ákalli Bandaríkjaforseta Joe Bidens um að draga verulega úr loftárásum á Gasa-svæðið. Þvert á móti gaf hann það út eftir samtal þeirra í dag að hann myndi gefa í árásirnar. 20.5.2021 00:02
Hættustigi lýst yfir í Austur-Skaftafellssýslu Hættustigi hefur nú verið lýst yfir í Austur Skaftafellssýslu vegna hættu á gróðureldum. Nánast allur vesturhelmingur landsins er nú skilgreindur sem hættusvæði en Austur Skaftafellssýsla er eina svæðið á austurhelmingi landsins þar sem hættustigi hefur verið lýst yfir. 19.5.2021 22:46
Brynja Dan í framboð fyrir Framsókn Brynja Dan Gunnarsdóttir mun skipa annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður í komandi þingkosningum í haust. Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra skipar fyrsta sæti listans. Þetta staðfesti Brynja við Vísi í kvöld en Fréttablaðið greindi fyrst frá. 19.5.2021 20:54