Tilkynntar nauðganir ekki færri í þrettán ár Umtalsverð fækkun hefur verið á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu. Ekki hafa færri nauðganir verið tilkynntar á síðustu þrettán árum. Verkefnastjóri hjá lögreglunni segir tölurnar líkjast því sem sást í Covid-faraldrinum. 21.11.2023 13:00
Vaktin: Grindavík eins og skriðjökull Þeir Grindvíkingar sem ekki komust heim til sín í gær fengu að skjótast eftir eignum í dag. Þeim var þó gert að yfirgefa Grindavík í flýti. Skjálftavirkni hefur verið á svipuðu róli í tvo sólarhringa. Vísir fylgist með gangi mála vegna skjálftanna og mögulegs eldgoss. 1200 heimili í Grindavík eru mannlaus. 14.11.2023 05:40
Systir Donald Trump er látin Maryanne Trump Barry, elsta systir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, er látin, 86 ára að aldri. Hún hafði verið á líknardeild síðustu vikur lífs síns vegna krabbameins. 14.11.2023 04:04
TikTok eyðileggi samhljóm þjóðarinnar Fjarskipta- og upplýsingatækniráðherra Nepal hefur gefið út að samfélagsmiðillinn TikTok verði héðan í frá bannaður þar. Segir ráðherrann að miðillinn sé notaður til þess að dreifa efni sem skemmir fjölskyldur og eyðileggur „samhljóm“ þjóðarinnar. 14.11.2023 02:58
Rafmagn komið aftur á í Garðabæ Rafmagnslaust varð í Garðabæ fyrr í kvöld vegna háspennubilunar. Útleysing varð í aðveitustöð A7. 14.11.2023 02:08
Myndaveisla: Úrslitakvöld Skrekks Hagaskóli vann Skrekk, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, í kvöld með atriðinu Líttu upp, taktu eftir. 14.11.2023 01:48
Samþykkja frumvarp um vernd innviða Alþingi samþykkti skömmu fyrir miðnætti frumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Greiddu 57 þingmenn atkvæði með frumvarpinu. 14.11.2023 00:26
Olíufélögin fjarlægjast Costco Það munar fimmtán krónum á bensínlítranum hjá ódýrustu bensínstöðinni og þeirri næstódýrustu. Formaður félags íslenskra bifreiðaeigenda segir fákeppni á markaði skýra aukinn verðmun. 13.11.2023 22:33
Vaktin: „Hlýhugur þjóðarinnar til Grindvíkinga gríðarlega mikill“ Skjálftavirkni hefur haldið áfram á Reykjanesskaga í dag. 13.11.2023 08:46
Unnið að því að tryggja afkomu Grindvíkinga Unnið er að því að tryggja Grindvíkingum afkomu. Félagsmálaráðherra skoðar málið í samráði við aðra ráðherra. Ríkisstjórnin fundaði í hádeginu. Þar kynntu allir ráðherrar aðkomu sína að aðgerðum svo hægt væri að stilla strengi. Unnið er að því að koma upp samkomustað fyrir Grindvíkinga. 12.11.2023 15:07