Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttamynd

Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld?

Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Að tala sig inn á þessa niður­stöðu finnst mér ó­trú­legt“

„Nú er ég búinn að fá að sjá þetta í sjónvarpi og í fyrsta lagi er þetta ekki rautt spjald og að þeir hafi notað fjórar mínútur í að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, um vendipunkt í fyrsta leik Vals og FH í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Lauk leiknum með sigri Vals, 37-33.

Handbolti
Fréttamynd

Sló met Eiðs Smára

Valsmenn höfðu góða ástæðu til að gleðjast í gærkvöld þegar þeir unnu frábæran 3-0 sigur gegn FH í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Um leið var slegið met hjá félaginu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Fagnaði sigri með bumbukossi

Körfuboltastjarnan Kristófer Acox fagnaði sigri Valsmanna á Keflavík í átta liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta með því að kyssa bumbuna á óléttri kærustu sinni, Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur.

Lífið