„Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Árni Gísli Magnússon skrifar 21. ágúst 2026 21:01 Lillý Rut Hlynsdóttir í leik með Val. Vísir/Vilhelm Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld.
Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði eina mark leiksins í lok venjulegs leiktíma en hún er uppalin fyrir norðan og var því að skora gegn uppeldisfélagi sínu. Hún segir tilfinningarnar vera góðar eftir leik. „Bara mjög góðar. Þetta var náttúrulega lífsnauðsynlegur sigur fyrir okkur í baráttunni sem við erum í þannig við erum mjög sáttar.“ Valskonur áttu ekki sérstakan fyrri hálfleik en spilamennskan batnaði til hins betra í síðari hálfleik. „Mér fannst við undir svona sérstaklega í baráttunni í fyrri hálfleik þannig við töluðum mikið um það í hálfleik að við þyrftum að mæta þeim þar og mér fannst við gera það miklu betur í seinni og það varð allt annar leikur fyrir okkur.“ Voruð þið ekki bara nokkuð heppnar að vera með jafnan leik í hálfleik? „Jú í rauninni. Mér fannst þær bara yfir eiginlega bara í flestu í fyrri hálfleik þannig að já við vorum eiginlega heppnar að vera ekki undir í hálfleik og bara stolt af liðinu að hafa tekið sig saman í andlitinu í seinni og klárað þetta.“ Lillý skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma en hún er uppalin í Þór og spilaði með Þór/KA áður en hún skipti yfir í Val. „Ég er bara glöð að við unnum sko. Það er það eina og ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk bara en jú jú ég er bara mjög glöð og mjög stolt af liðinu í dag.“ Lillý skallaði boltann aftur fyrir sig og inn af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Margréti Brynju Kristinsdóttur. „Ég átti ekki von á að boltinn myndi koma, ég hélt meira segja að ég væri rangstæð því mér fannst ég svo alein þannig að ég er bara glöð að þetta mark stóð og náði að hjálpa liðinu.“ Valur er í fallbaráttu en lyftir sér úr fallsæti og yfir Fram í áttunda sæti á markatölu. Aðeins tvö stig eru svo upp í Þór/KA í sjöunda sæti. „Þetta er bara mjög nauðsynlegur sigur fyrir okkur og erum búin að vera loka svona mikið af lélegum mörkum þannig að ég er bara eiginlega mest ánægð með að við höfum haldið hreinu og vonandi höldum því áfram“, sagði Lillý að lokum.
Besta deild kvenna Valur Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira