Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. ágúst 2026 21:40 Gunnar Vatnhamar hefur verið afar farsæll hjá Víkingi. vísir/diego Gunnar Vatnhamar lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking þegar liðið lagði Val, 2-0, í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Færeyingurinn átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum í leikslok. „
Þetta er súrsætt augnablik, er ánægður með að hafa upplifað þetta en sem stendur er þetta erfitt,“ sagði Gunnar eftir leikinn í Víkinni. Færeyski varnarmaðurinn hefur verið hluti af gríðarlega sigursælu liði. Bjóst hann við því þegar hann kom? „Auðvitað vonaði ég það þegar ég kom. Ég lærði hratt um liðið, þjálfarann og hugmyndafræðina. Ég vissi frá byrjun að við værum með gott lið og gætum staðið okkar vel. Að það myndi ganga svona vel? Ég veit það ekki. Ég hef trú á eigin getu og hef lagt hart að mér. Við leggjum allir hart að okkur og sem betur fer hefur gengið vel,“ sagði Gunnar. „Fyrsti bikarúrslitaleikurinn sem við unnum var ótrúleg upplifun. Þegar við unnum tvennuna, það var geðveiki. Því miður var ég meiddur í deildakeppninni í Sambandsdeildinni en ég er mjög stoltur af því að við komumst í útsláttarkeppnina. Það var risastórt. En að vinna gullmedalíur, held það sé hápunkturinn.“ Leikur kvöldsins var markalaus í hálfleik en Víkingar spýttu í lófana í þeim seinni. „Við fengum góð ráð frá þjálfarateyminu, hvað þyrfti að bæta. Við héldum áfram og vissum að framherjarnir okkar væru frábærir í teignum. Þurftum að halda markinu hreinu og þá vissum við að hæfileikarnir fram á við myndu skila marki,“ sagði Gunnar. Víkingur mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta Vatnhamars-fjölskyldunnar. „Það er hluti af mér núna, stór hluti af fjölskyldunni minni og ég er þegar farinn að hlakka til að snúa aftur að sjá alla. Við eigum einn leik aftur og ég vil vinna þennan til að komast í deildarkeppnina. Það er markmiðið núna og svo mun ég fylgjast með frá Danmörku.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Valur Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira