

Subway-deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Njarðvík 79-90 | Þægilegur Njarðvíkursigur í grannaslagnum
Njarðvík vann nokkuð öruggan útisigur á nágrönnum sínum í Grindavík í kvöld. Gestirnir leiddu allan tímann og unnu að lokum ellefu stiga sigur, lokatölur 90-79.

Elvar Már: Hrikalega góður sigur
„Það er skemmtilegast að spila fyrir sitt heimafélag og hjartað slær fastast þegar maður spilar í græna búningnum, sagði Elvar Már Friðriksson eftir sigur Njarðvíkinga í Grindavík í kvöld en hann var að leika sinn fyrsta leik með liðinu eftir að hafa snúið aftur heim á dögunum.

Elvar og Kristófer lofa báðir að klára tímabilið hér heima
Landsliðsmennirnirnir Elvar Friðriksson og Kristófer Acox eru báðir komnir heim eftir stutta dvöl hjá franska félaginu Denain. Síðustu dagar hjá þeim hafa verið skrautlegir en allt gekk upp að lokum og þeir sömdu við sín uppeldisfélög, Njarðvík og KR.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Haukar 97-88 | Finnur og Emil unnu gömlu félagana
Það var leikinn sveiflukenndur körfuboltaleikur í DHL höllinni í kvöld þegar KR sigruðu Hauka með 97 stigum gegn 88 í kvöld. Leikurinn var liður í sjöundu umferð Domino´s deildar karla. Fyrir leikinn í kvöld voru Haukar í sjöunda sæti með sex stig og KR tveimur sætum ofar með átta stig.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Þór Þ. 107-110 | Senur í Smáranum
Breiðablik tekur á móti Þór úr Þorlákshöfn í Smáranum í baráttu tveggja lið sem þurfa nauðsynlega á sigri að halda í botnbaráttu Domino´s deildar karla í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Keflavík 95-97 | Keflvíkingar kláruðu nýliðana á lokasprettinum
Keflvíkingar höfðu betur gegn nýliðum Skallagríms í 7. umferð Domino's deildar í fjörugum leik í Fjósinu í kvöld.

Finnur í hóp hjá KR í kvöld á móti gömlu félögunum
KR-ingar kynna nýjan leikmann í hverjum leik þessa dagana í Domino´s deild karla í körfubolta en Finnur Atli Magnússon verður í hóp hjá KR í kvöld.

Njarðvíkingar staðfesta Elvar og búast við honum í hóp gegn Grindavík á morgun
Elvar Már Friðriksson mun spila með Njarðvík í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur en Njarðvíkingar staðfestu komu hans á heimasíðu sinni í dag.

Landsliðsfólkið okkar er á heimleið en glugginn lokar á miðnætti
Síðasti möguleikinn fyrir íslensku körfuboltafélögin til að styrkja liðin sín fyrir leiki á árinu 2018 er í dag en félagskiptaglugginn lokar á miðnætti í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Valur 118-100 │Martin með skotsýningu í Hertz hellinum
Justin Martin átti stórleik í sigri ÍR á Val í Domino's deild karla

Martin veikur en setti samt 45 stig
Justin Martin átti stórleik fyrir ÍR í sigri á Val í Domino's deild karla. Martin skoraði 45 stig en sagði eftir leik að hann væri hundveikur

Kristófer kemur heim á morgun og gæti spilað með KR í næstu viku
Kristófer Acox hefur fengið samningi sínum við franska félagið Denain rift og gæti spilað með KR geng Grindavík eftir rúma viku.

Helena og Finnur á leiðinni heim
Helena Sverrisdóttir er á leiðinni heim til Íslands úr atvinnumennsku. Finnur Atli Magnússon kemur með henni og gæti spilað með KR í Domino's deild karla.

Körfuboltakvöld: Ingi Þór fékk boltann í hausinn
Sjáðu atvikið úr Körfuboltakvöldi þegar Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR fær boltann beint í hausinn í miðju viðtali

Framlengingin: Við vorum að ofmeta Stjörnuna
Sérfræðingar Körfuboltakvölds voru óvenju sammála í Framlengingu síðustu umferðar í Dominos-deild karla.


Körfuboltakvöld: Óskiljanlegt að Pétur taki ekki leikhlé
Breiðablik hefur bara unnið einn leik í Domino's deild karla í körfubolta til þessa þrátt fyrir að vera oftar en ekki með yfirhöndina lengst af í leikjum sínum.

Körfuboltakvöld um Hákon: Nettur Teitur í honum
Hákon Örn Hjálmarsson hefur þurft að stíga upp og axla mikla ábyrgð í fjarveru Matthíasar Orra Sigurðarsonar í liði ÍR. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds eru mjög hrifnir af hinum unga Hákoni.

Körfuboltakvöld: Algjört ráðaleysi hjá Stjörnunni
Meistaraefnin í Stjörnunni töpuðu nokkuð óvænt fyrir Val í sjöttu umferð Domino's deildar karla. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport voru myrkir í máli þegar þeir ræddu ástandið í Garðabænum.

Einar Árni: Okkur þykir afskaplega vænt um Elvar
Njarðvík rúllaði yfir KR í kvöld.

Elvar Már í Njarðvík
Njarðvík er að fá landsliðsmann.

Leik lokið: Njarðvík - KR 85-67 | Njarðvík mun sterkari
Öflugur sigur Njarðvíkur.

Ívar: Frábærir í tveimur leikhlutum, hræðilegir í hinum
Stjórinn í Firðinum var aðallega sáttur með sigurinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Skallagrímur 82-80 | Haukar höfðu betur
Haukar unnu tveggja stiga sigur á Skallagrím í Domino's deild karla í kvöld. Leikurinn var mjög sveiflukenndur en heimamenn höfðu betur eftir spennuþrungnar lokamínútur í Hafnarfirði.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Breiðablik 88-80 | Keflavík slapp með skrekkinn gegn Breiðablik
Keflvíkingar sluppu með skrekkinn gegn Breiðablik í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 71-70 | Stólarnir lokuðu á Grindvíkinga og náðu í sigurinn
Grindvíkingar voru með gott forskot en Stólarnir spiluðu geggjaða vörn og lönduðu sigrinum þrátt fyrir góða baráttu gestanna.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 97-92 | Fyrsti sigur Vals kom gegn Stjörnunni
Valsmenn skelltu stjörnuprýddu liði Stjörnunnar.

Sverrir Þór: Ég hefði getað farið inn á og gert helmingi betur
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflvíkinga var sáttur með sigur sinna manna gegn Breiðablik, en var hins vegar ekki eins sáttur með spilamennskuna.

Umfjöllun: Þór Þ. - ÍR 88-92 | ÍR á sigurbraut eftir spennutrylli
Dramatík í Þorlákshöfn.

Elvar og Kristófer á leiðinni heim
Kristófer Acox og Elvar Már Friðriksson eru á förum frá franska félaginu Denain sem þeir gengu til liðs við í sumar. Mbl.is greinir frá þessu í dag.