Rússar nýttu sér fjarveru Biles og unnu fyrsta gullið í 29 ár Rússar unnu til gullverðlauna í liðakeppni kvenna í fimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Sport 27. júlí 2021 13:12
Stelpurnar hans Þóris byrja ÓL í Tókýó með tveimur stórsigrum Evrópumeistarar Noregs í handbolta kvenna unnu í dag níu marka sigur á Afríkumeisturum Angóla í öðrum leik liðanna á leikunum, 30-21, eftir að hafa verið 15-10 yfir í hálfleik. Handbolti 27. júlí 2021 12:04
Biles dró sig úr leik í liðakeppninni Simone Biles hefur lokið í leik í liðakeppni í fimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 27. júlí 2021 11:52
Anton Sveinn langt frá markmiði sínu og komst ekki í undanúrslit Íslenski sundmaðurinn Anton Sveinn McKee var nokkuð frá sínu besta tíma í eina sundinu sínu á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 27. júlí 2021 11:00
Bermúda eignaðist sinn fyrsta Ólympíumeistara: „Medalían er stærri en ég“ Flora Duffy frá Bermúdaeyjum skrifaði nýjan kafla í sögu þjóðar sinnar í nótt þegar hún vann þríþraut kvenna á Ólympíuleikunum i Tókýó. Sport 27. júlí 2021 10:30
Sautján ára stelpa sú fyrsta frá Alaska til að vinna Ólympíugull Það voru söguleg úrslit í sundkeppni Ólympíuleikanna í Tókýó í nótt. Bandaríkjamenn töpuðu þá baksundi í fyrsta sinn síðan á leikunum 1992 en eignuðust um leið sinn fyrsta Ólympíumeistara frá Alaska. Sport 27. júlí 2021 09:30
Kopardrottningin sem ætlar að verða best í heimi Ein óvæntasta stjarna Ólympíuleikanna í Tókýó er fótboltakonan Barbra Banda frá Sambíu. Hún hefur þegar skráð nafn sitt í sögubækur Ólympíuleikanna. Fótbolti 27. júlí 2021 09:01
Naomi Osaka óvænt úr leik í tenniskeppni kvenna á Ólympíuleikunum Naomi Osaka, ein af andlitum Ólympíuleikanna í Tókýó og sú sem kveikti Ólympíueldinn á setningarhátíðinni, er óvænt úr leik í tenniskeppni leikanna. Sport 27. júlí 2021 07:31
Keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum fimm árum áður en Simone Biles fæddist Fimleikakonan Oksana Chusovitina kvaddi í gær eftir að hafa lokið keppni á sínum áttundu Ólympíuleikum. Hún ætlar nú að einbeita sér að því að vera eiginkona og mamma. Sport 26. júlí 2021 16:31
Gullinn mánudagur fyrir Breta Mánudagurinn 26. júlí 2021 fer í hóp með bestu dögum Bretlands á Ólympíuleikunum því Bretar unnu þrenn gullverðlaun í dag. Sport 26. júlí 2021 16:00
Snæfríður eftir fyrsta sundið á ÓL: Bætingin er góð Snæfríður Sól Jórunnardóttir var nokkuð sátt eftir sitt fyrsta sund á Ólympíuleikum. Sport 26. júlí 2021 15:24
Strákarnir hans Dags nálægt stigi gegn Svíum eftir frábæran endasprett Japan er enn án stiga í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar töpuðu fyrir Svíþjóð í B-riðli í dag, 26-28. Handbolti 26. júlí 2021 14:09
Aftur svekkjandi eins marks tap hjá lærisveinum Arons Kristjáns Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Barein voru nálægt því að vinna sinn fyrsta leik í handboltakeppninni á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Handbolti 26. júlí 2021 12:07
Snæfríður Sól setti nýtt Íslandsmet í fyrsta Ólympíusundinu sínu Íslenska sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir hóf Ólympíuferil sinn á því að setja nýtt Íslandsmet þegar hún synti 200 metra skriðsund á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 26. júlí 2021 10:18
Luka skoraði 48 stig á aðeins 31 mínútu Slóvenski bakvörðurinn Luka Doncic mun fara langt með lið sitt á Ólympíuleikunum í Tókýó ef hann ætlar að spila áfram eins vel og hann gerði í nótt. Körfubolti 26. júlí 2021 10:01
Þrettán ára gömul með Ólympíugull Japanska hjólabrettakonan Nishiya Momiji vann í nótt Ólympíugull í götukeppni á hjólabrettum á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 26. júlí 2021 09:01
27 ára Norðmaður vann fyrsta gull Norðurlandabúa á leikunum Norðmaðurinn Kristian Blummenfelt vann gull í þríþraut karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Hann var ekki aðeins fyrsti gullverðlaunahafi Norðmanna á leikunum heldur einnig sá fyrsti frá Norðurlöndum. Sport 26. júlí 2021 08:14
Fyrirliði Alfreðs fékk rautt spjald en fyrsti sigurinn kom samt í hús Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltalandsliðinu eru komnir á blað á Ólympíuleikunum eftir átta marka sigur á Argentínu í öðrum leik sínum. Handbolti 26. júlí 2021 07:46
Efsti maður heimslistans greindist aftur með veiruna og missir af Ólympíuleikunum Spánverjinn Jon Rahm þarf að hætta við þáttöku á Ólympíuleikunum eftir að hann greindist með kórónaveiruna í annað sinn á tveimur mánuðum. Golf 25. júlí 2021 23:05
Hörmungarlokakafli skilaði fyrsta tapinu í 17 ár Karlalandslið Bandaríkjanna í körfubolta þurfti að þola 83-76 tap fyrir Frakklandi í fyrstu umferð A-riðils á Ólympíuleikunum. Bandaríkin hafa ekki tapað leik á Ólympíuleikum síðan 2004. Körfubolti 25. júlí 2021 15:15
Þjóðverjar rétt mörðu Sáda - Japan með fullt hús Önnur umferð í riðlakeppni karla í fótbolta á Ólympíuleikunum kláraðist í dag. Heimamenn í Japan eru með fullt hús stiga og þá unnu Þýskaland og Spánn sína fyrstu sigra. Fótbolti 25. júlí 2021 14:15
Biles átti ekki sinn besta dag Bandaríska fimleikastjarnan Simone Biles hefur átt betri daga í fimleikasalnum en hún átti í undanúrslitum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Þrátt fyrir það komst hún í úrslit í fimm greinum. Sport 25. júlí 2021 13:30
Systkini urðu Ólympíumeistarar með nokkra mínútna millibili Japönsku systkinin Hafimi og Uta Abe urðu í dag Ólympíumeistarar í júdó á heimavelli í Tókýó. Aðeins nokkrar mínútur liðu á milli þess sem þau tryggðu sér sinn titilinn hvort. Sport 25. júlí 2021 12:45
Lygilegur sigur Frakka hélt þeim á lífi Frakkar hafa verið allt annað en sannfærandi í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum það sem af er. Eftir 4-1 tap fyrir Mexíkó í fyrsta leik var útlit fyrir að liðið félli úr keppni í morgun en hádramatísk endurkoma hélt þeim á lífi. Fótbolti 25. júlí 2021 11:00
Óvæntur 18 ára meistari, langþráður heimasigur og systur settu heimsmet Nóg var um að vera í sundinu á öðrum degi Ólympíuleikanna í Tókýó í nótt. 18 ára Túnisbúi vann gull og áströlsk sveit setti heimsmet. Sport 25. júlí 2021 09:46
Öruggt hjá norska liðinu í fyrsta leik Norska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, vann öruggan 39-27 sigur á Suður-Kóreu í fyrsta leik sínum á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Handbolti 25. júlí 2021 09:15
Fyrstu gullverðlaun heimamanna Naohisa Takato varð í dag fyrsti heimamaðurinn til að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikunum sem fram fara í Tókýó þessa dagana. Hann hafði betur gegn Yung Wei Yang frá Taívan í úrslitum í -60 kg flokki í júdó. Sport 24. júlí 2021 23:30
Danir settu markamet gegn lærisveinum Dags Heimamenn í Japan, undir stjórn Dags Sigurðssonar, biðu afhroð í fyrsta leik sínum í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Danmörk vann 47-30 sigur á þeim japönsku. Handbolti 24. júlí 2021 14:00
Leikmaður Stjörnunnar skoraði í tapi fyrir heimsmeisturunum Öllum leikjum dagsins í keppni kvenna í fótbolta á Ólympíuleikunum í Tókýó er nú lokið. Bretland er komið áfram í 8-liða úrslit og Bandaríkin komin á blað. Þá mættust Holland og Brasilía í stórleik dagsins. Fótbolti 24. júlí 2021 13:30
Egyptar rúlluðu yfir Portúgala á lokakaflanum Egyptaland vann frábæran 37-31 sigur á Portúgal í fyrsta leik liðanna í B-riðli í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Egyptar stungu Portúgala af í síðari hálfleik eftir jafnan leik framan af. Handbolti 24. júlí 2021 12:45