

Olís-deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 24-26 | Möguleikar Safamýrarpilta á sæti í úrslitakeppninni fara dvínandi
KA vann sterkan tveggja marka útisigur á Fram í leik sem Safamýrarpiltar þurftu nauðsynlega að vinna til að halda í vonina um sæti í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta. Lokatölur 26-24 gestunum frá Akureyri í vil og vonir Fram fara því dvínandi.

„Verið hérna í eitt og hálft ár og hef varla getað notað sama liðið tvo leiki í röð“
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, sagði að fjöldi sóknarmistaka hefði verið munurinn á milli feigs og ófeigs gegn ÍBV í kvöld.

Einar Jónsson: Dómgæslan var brandari
Fram tapaði afar mikilvægum heimaleik gegn KA 24-26. Einar Jónsson, þjálfari Fram, var allt annað en sáttur með dómgæsluna í leiknum.

Upphitun Seinni bylgjunnar: „Valsararnir líta ógeðslega vel út“
Gríðarleg spenna er á toppi Olís-deildar karla í handbolta nú þegar fram undan eru fimm síðustu umferðirnar á aðeins þremur vikum. Algjör lykilleikur í bráttunni um sæti í úrslitakeppninni er í Safamýri í kvöld.

Ásgeir Örn um lokasprettinn: Skák í gangi og röðin á liðunum gæti breyst töluvert
Olís-deild karla í handbolta hefst aftur í dag eftir hlé vegna bikarúrslitanna og landsliðsæfinga. Það verða kláraðar fimm umferðir á næstu átján dögum og Guðjón Guðmundsson fékk Ásgeir Örn Hallgrímsson úr Seinni bylgjunni til að fara aðeins yfir hvernig lokakafli mótsins lítur úr.

„Rosalega gaman að fá tvær svona góðar fréttir með stuttu millibili“
Í stað þess að selja frosna þorskhnakka á Íslandi til að safna fé fyrir félagið sitt getur Darri Aronsson gætt sér á hvítvínslegnum sniglum við bakka Signu í borg ástarinnar, París, sem atvinnumaður í handbolta frá og með næstu leiktíð. Hann er afar spenntur fyrir því að spila í einni albestu deild heims en staðráðinn í að kveðja Hauka með titli og helst titlum.

Áfall fyrir Selfoss: Ísak ristarbrotinn
Selfyssingar urðu fyrir miklu áfalli þegar örvhenta skyttan Ísak Gústafsson ristarbrotnaði á æfingu með U-20 ára landsliðinu.

„Stríð er það versta sem til er“
Eins og aðrir Úkraínumenn hefur Igor Kopyshynskyi, handboltamaður í Haukum, miklar áhyggjur af stöðunni þar í landi. Hann hefur hafið söfnun til styrktar börnum í Úkraínu. Ef ekki hefði verið fyrir símtal frá Haukum hefði hann mögulega verið í Úkraínu þegar stríðið þar braust út.

Darri fer til Parísar eftir tímabilið
Handboltamaðurinn Darri Aronsson hleypir heimdraganum í sumar þegar hann gengur í raðir franska liðsins Ivry. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Ivry.

Valsmenn unnu fyrstu bikartvennuna á öldinni
Valur varð um síðustu helgi bikarmeistari í bæði karla- og kvennaflokki í handbolta eftir sigra í úrslitaleikjunum á Ásvöllum. Það er langt frá því að vera árlegur viðburður að sama félag vinni bikarinn hjá báðum kynjum.

Leikmaður Hauka stendur fyrir söfnun fyrir börn í Úkraínu
Ihor Kopyshynskyi, úkraínskur leikmaður Hauka í handbolta, stendur fyrir söfnun fyrir börn í heimalandinu.

Örvhentu skytturnar áfram hjá meisturunum
Eftir að hafa tryggt sér annan bikarmeistaratitil sinn í röð um helgina tilkynntu Íslands- og bikarmeistarar Vals í handbolta karla um að samningar hefðu verið framlengdir við helstu örhventu skyttur liðsins.

FH staðfestir komu Einars Braga
Skyttan efnilega Einar Bragi Aðalsteinsson mun ganga til liðs við FH í sumar og hefur skrifað undir samning til tveggja ára við félagið.

Hafþór til Þýskalands eftir tímabilið
Handboltamaðurinn Hafþór Már Vignisson gengur í raðir þýska B-deildarliðsins Empor Rostock frá Stjörnunni í sumar. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Empor Rostock.

„Búinn að bíða eftir tækifærinu og nýt þess að spila“
Arnór Snær Óskarsson var valinn besti leikmaður bikarúrslitahelgarinnar þar sem Valur stóð uppi sem sigurvegari.

Jónatan: Vonandi erum við ekki hættir í svona leikjum
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var svekktur en stoltur eftir úrslitaleik Coca Cola bikars karla þar sem KA-menn töpuðu fyrir Valsmönnum, 36-32.

Snorri Steinn: Svakalega glaður og stoltur af liðinu
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður eftir sigurinn á KA, 36-32, í úrslitaleik Coca Cola bikar karla í handbolta í dag. Þetta var fjórði stóri titilinn sem Valur vinnur undir stjórn Snorra og sá þriðji á síðustu níu mánuðum. Þeir hafa allir unnist á Ásvöllum.

„Vinna og vinna aftur, það er markmiðið þegar þú ert í Val“
Þrátt fyrir að vera svo til nýbyrjaður í meistaraflokki vann Einar Þorsteinn Ólafsson sinn þriðja stóra titil með Val þegar liðið bar sigurorð af KA, 36-32, í úrslitaleik Coca Cola bikars karla í dag.

Umfjöllun og myndir: Valur - KA 36-32 | Valsmenn bikarmeistarar annað árið í röð
Valur er bikarmeistari í handbolta karla annað árið í röð og í tólfta sinn alls eftir sigur á KA, 36-32, á Ásvöllum í dag.

Arnór Snær: Ég pæli ekkert of mikið og spila bara leikinn
„Við náum að keyra hraðaupphlaupin í seinni og vörnin small í gang með Bjögga fyrir aftan. Það gerði gæfumuninn,“ sagði stjarna Valsmanna í kvöld, Arnór Snær Óskarsson, sem átti ótrúlegan leik.

Selfyssingar vonast til að endurvekja stemmninguna frá úrslitakeppninni 2019
KA var síðast í bikarúrslitaleik fyrir átján árum og Selfyssingar hafa beðið síðan 1993 eða í næstum því þrjátíu ár.

„Þetta eru tvö mjög góð og jöfn lið“
Valsmenn eru ríkjandi bikarmeistarar en FH-ingar unnu bikarinn síðast fyrir þremur árum eftir að hafa unnið Val.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Afturelding 28-28| Annað jafntefli beggja liða í röð
Grótta og Afturelding skildu jöfn eftir hörkuleik. Heimamenn fengu tækifæri til að gera sigurmark undir lokin en Andri Scheving, markmaður Aftureldingar, varði og jafntefli niðurstaðan líkt og þegar liðin áttust við í Mosfellsbæ.

„Þurfum bara að geta klárað leiki til að vera betri en Afturelding“
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var svekktur með hvernig Grótta byrjaði leikinn en þokkalega brattur með stigið gegn Aftureldingu.

Valsmenn framlengja samninga sína við Magnús Óla og Sakai
Valsmenn geta varið bikarmeistaratitil sinn í vikunni en þeir eru þegar farnir að huga að framtíðinni í handboltanum á Hlíðarenda.

Seinni bylgjan: Óafsakanlegt að negla í átt að höfði markvarðar úr þröngu færi
KA vann magnaðan sigur á FH í Olís deild karla í handbolta á dögunum en strákarnir í Seinni bylgjunni gátu ekki farið yfir neitt annað en þann fjölda skota sem enduðu í andliti markvarða leiksins.

Ótrúlegt sjálfsmark Phils Döhler
„Það var mark skorað í þessum leik. Mark tímabilsins,“ sagði stjórnandi Seinni bylgjunnar, Stefán Árni Pálsson, um sjálfsmarkið sem Phil Döhler skoraði í leik FH gegn KA í gær.

Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 32-27 | Mikilvægur sigur KA-manna
KA og FH mættust í 17. umferð Olís-deildar karla í handbolta í KA heimilinu í kvöld. KA fyrir leikinn í 8. sæti en FH í þriðja sæti með tvo leiki til góða á efstu liðin. Að lokum fór KA með sterkan fimm marka sigur af hólmi, 32-27, eftir virkilega flottan síðari hálfleik.

Jónatan: Skora á alla KA menn að mæta og styðja liðið
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, gat ekki annað en verið sáttur eftir sterkan fimm marka sigur gegn FH í KA-heimilinu í kvöld.

Sjáðu þrefalda vörslu Einars Baldvins á lokamínútunum í gær
Einar Baldvin Baldvinsson, markvörður Gróttu, átti mikinn þátt í því að Gróttuliðið náði stigi á móti Selfossi í Olís deild karla í gærkvöldi.