
Þegar andi Mussolini svífur yfir vötnunum og titlar verða langir
Hægri öfgaflokkarnir í Evrópu voru lengst af helztu andstæðingar ESB, og leituðu þeir allra leiða til að rýra og sverta ríkjasambandið.
Greinar eftir Ole Anton Bieltvedt, formann ÍslandiAllt, félagasamtaka um samfélagsmál og betra jarðlíf.
Hægri öfgaflokkarnir í Evrópu voru lengst af helztu andstæðingar ESB, og leituðu þeir allra leiða til að rýra og sverta ríkjasambandið.
Það eru í raun öll ríki álfunnar, sem sækja það fast og með öllum ráðum, að komast inn í ESB og fá Evru, nema þá Bretland, sem gekk úr ESB á grundvelli blekkinga, ósanninda og rangfærslna þeirra íhalds- og afturhaldsafla, sem fyrir útgöngu stóðu, og svo Ísland.
Ekki er víst, að langt sé í næstu þingkosningar. Ríkisstjórnin stendur höllum fæti, eftir að hafa misst sitt fylgi úr 55% í 30%. Vilji til endalausra málamiðlana, hvað varðar ólík stefnumál flokkanna þriggja, sem þó hefur einkennt þessa ríkisstjórn - en um leið nánast gert hana stefnulausa - fer ört dvínandi.
Höfundur talar í þessum efnum af nokkurri þekkingu og reynslu. Hann hefur stundað alþjóðlega framleiðslu og viðskipti, bæði í Evrópu og Asíu, í hálfa öld. Nú sem stjórnarformaður ENOX Productions Services GmbH í Hamborg.
Undirritaður hefur fylgzt með stjórnmálum, hér og erlendis, til lengri tíma, og minnist þess ekki, að hafa horft upp á annað eins fylgishrun stjórnmálaflokks, og Vinstri grænir, VG, hafa orðið fyrir, síðustu 6-7 árin. Úr 17% í rúm 3%!
Í kappræðunum, sem fóru fram á dögunum, voru forsetaframbjóðendur spurðir um afstöðu sína til stuðnings okkar, Íslendinga, við Úkraínu í stríði, varnarstríði, þeirra við Rússa, Pútín og hans yfirgangslið.
Hjörleifur Hallgríms, Akureyringur og eldri borgari, skrifar grein í Morgunblaðið 22. maí með fyrirsögninni „Nokkur orð um kosningu forseta“. Útdráttur við greinina er þessi: „Það er óskemmtilegt að segja það, en útlit er fyrir að Halla Hrund sé ekki öll þar sem hún er séð“.
Þó að forseti Íslands hafi takmörkuð bein völd, er hann fulltrúi og ásýnd Íslands og Íslendinga gagnvart umheiminum. Hann á líka að vera sameiningarafl, og svo sameiningartákn, Íslendinga og fulltrúi þjóðarinnar gagnvart Alþingi, framkvæmdarvaldinu og erlendum þjóðum.
Þriðju forsetakosningarnar fóru fram 1968. Þær mörkuðu ákveðin tímamót. Þar tókust á Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður, hámenntaður maður en sléttur og felldur; einn af okkur, almenningi.
Þeir, sem þekkja til Katrínar Jakobsdóttur, vita, að hún er góðum gáfum gædd, væn kona, mest góðhjarta og velviljuð, gagnvart mönnum og málleysingjum, með fjölbreytilega hæfileika, vel þjálfuð í framkomu, sjarmerandi og í hjarta sínu græn.
Skoðanakannanir gefa til kynna, að aðeins Halla Hrund Logadóttir eða Katrín Jakobsdóttir hafi raunverulega möguleika á að ná kjöri. Þær eru einu frambjóðendurnir, sem eru með 25% vegið fylgi, eða meira. Það er liðið verulega á kosningabaráttuna, og er líklegt, að þeir, sem liggja nú í 20% fylgi, eða undir því, eigi ekki raunverulegan sjéns lengur.
Vísir birti 5. júlí frétt um hreindýraveiðar, en Fagráð um velferð dýra, sem á, skv. lögum, að veita stjórnvöldum leiðsögn og ráðgjöf um veiðar viltra dýra og velferð þeirra, hafði endurtekið beint þeim tilmælum til Umhverfistofnunar og umhverfisráðherra, að griðartími hreinkálfa yrði lengdur, en báðir aðilar höfðu hunzað þessi tilmæli Fagráðs, nú árum saman.
Á síðustu dögum og vikum hafa komið upp tvö mál, þar sem reynt hefur sérstaklega á innræti og manndóm, innri mann, ráðamanna hér. Einkar athyglisvert hefur verið, að fylgjast með því, hvern mann ráðamenn hafa í reynd að geyma, á bak við sitt breiða bros, fallegu orðræðu og ótæpilegu loforð, til Péturs og Páls. Hér urðu menn að koma til dyranna, eins og þeir eru í raun klæddir.
Guðlaugur Þór Þórðarson varð umhverfisráðherra seint á árinu 2021. Er því búinn að gegna því embætti vel á annað ár. Hann ber aðal ábyrgð á dýra-, náttúru- og umhverfisvernd í landinu, eins og menn vita.
Ein kenninga Alberts Einstein var, að, ef menn gerðu sama hlutinn aftur og aftur og væntu breytilegra, eða annarra og kannske betri niðurstaðna, mætti telja það andlega skerðingu, vitfirru. Nú er Ásgeir Jónsson búinn að hækka stýrivexti þrettán sinnum, á tveimur árum, til að reyna að slökkva verðbólgubálið, en verðbólgan bara eykst. A. Hvað skyldi Einstein hafa sagt um þessa viðleitni Ásgeirs? B. Getur verið, að yfirkeyrðar stýrivaxtahækkanir virki sem olía á eldinn í stað vatns?
Ég hef haft þá tilfinningu, að formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgeinasambandsins, Vilhjálmur Birgisson, sé góður maður og gegn, vænn og velviljaður gagnvart „Guði og mönnum“ - dýr, umhverfi, náttúra og lífríki jarðar meðtalin -, ekki maður peningahyggju og græðgi, hvorki fyrir hönd sjálfs sín né annarra.
Ný skýrsla, sem sannar þann hrylling, sem hvalveiðar Kristjáns Loftssonar/Hvals hf eru, liggur nú fyrir. Reyndar var þetta allt löngu vitað, alla vega af þeim, sem vita vildu, en nú liggur viðurstyggileg mynd þessa dýraníðs fyrir með svo óyggjandi hætti, að enginn heiðvirður maður getur lengur litið undan eða stungið höfðinu í sandinn.
Í gær var birt hrikaleg ný skýrsla MAST um veiðar stórhvela, langreyða, við Íslandsstrendur, og virðast margir telja, að þar séu ný tíðindi á ferð, um þann skrælingshátt og það hrikalega dýraníð, sem þessar veiðar eru.
Norski „Sjálfstæðisflokkurinn“, Høyre - sem reyndar er miklu sjálfstæðari, nútímalegri og frjálslyndari, en sá íslenzki; er eins og íslenzki Sjálfstæðisflokkurinn var fram til 1990/2000 - hélt landsfund sinn 24.-26. marz sl.
Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og sagður fyrrum framkvæmdastjóri Heimssýnar, sem mikið hefur skrifað í blöðin gegn Evrópu, ESB og Evru, síðast 25. marz hér, undir fyrirsögninni „Versnandi staða fámennra ríkja ESB“, og, svo aftur nú í dag, 28. marz, líka hér, undir fyrirsögninni „Þegar raunveruleikinn hentar ekki“.
ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og Evran. Á hverjum einasta degi, og oft á dag, erum við með hluti – alls kyns varning; matvöru, fatnað, heimilisbúnað, áhöld og verkfæri, líka öll rafmagnstæki, vélar, farartæki og bílinn okkar – í höndunum, þar sem einmitt ESB hefur tryggt okkur mestu möguleg þægindi, umhverfisvænar lausnir og umfram allt öryggi og gæði í notkun.
Flestir hægri öfgaflokkar í Evrópu voru í gegnum tíðina andstæðingar Evrópusambandsins, og leituðu allra leiða til að varpa rýrð á sambandið, þýðingu þess og starf.
Undirritaður ólst upp á Sauðárkróki og telur sig eiginlega Sauðkræking. Það sama gildir um Óla Björn Kárason, alþingismann D með meiru. Punkturinn er, að það er gott fólk á Króknum, og flestir Sauðkrækingar vel að sér og fínir, en ekki allir gallalausir. Á það auðvitað við um undirritaðan, en, þó, líka og öllu fremur, Óla Björn, alla vega í úttekt og mati á ESB og Evru fyrir Ísland.
Í síðustu viku skrifaði ég grein undir fyrirsögninni: „Guð blessi börnin okkar...“. Hún snérist um það, að ófriðsamlegt væri í heiminum og friður í Vestur Evrópu og Asíu væri ótryggur.
Húmoristar þurfa að vera glúrnir og búa yfir góðu skopskyni. Án þessa, verða menn ekki sannir húmoristar. Þeir, sem aðeins búa yfir hótfyndni, eru í öðrum hópi.
Flestir hægri öfgaflokkar í Evrópu voru í gegnum tíðina andstæðingar Evrópusambandsins, og leituðu allra leiða til að varpa rýrð á sambandið, þýðingu þess og starf.
Eins og þeir vita, sem lesa mínar greinar, hef ég undanfarna mánuði gagnrýnt Seðlabanka harðlega fyrir stefnu bankans í stýrivaxtamálum, sem ég hef talið vera út í hött; alvarlegan afleik í taflinu gegn verðbólgu og stórfellt óréttmæti gagnvart skuldurum landsins.
Á dögunum birtist frétt í norska ríkissjónvarpinu, NRK, um að elgkálfur hefði fundist ráfandi við þjóðveg með sundurskotið trýni. Hafði skot farið í gegnum höfuðið, fyrir neðan augu, og spýttist blóð út, í báðar áttir, þegar dýrið andaði.
Þá er Samfylkingin búin að halda sinn landsfund og endurnýja sitt forystulið. Allt virðist þar gott, nema eitt; nýr formaður. Hún er eflaust velviljuð og væn, en fyrir mér einkennist framganga hennar og málflutningur af kokhreysti og einföldun flókinna og margþættra mála; af billegum klisjum.
„Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, haldinn á Selfossi 23.-25. október 2015, leggst eindregið gegn hvalveiðum við Íslandsstrendur“. Úr landsfundarályktunum Vinstri grænna 2015.