Nýtt flokksþing í skugga efnahagsvandræða Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, opnar á nýju ári áttunda flokksþing Verkamannaflokks landsins. Síðasta flokksþing var haldið fyrir fimm árum síðan og þá notaði Kim það til að tryggja yfirráð sín og heita því að koma upp kjarnorkuvopnum og lagði hann fram metnaðarfulla efnahagsáætlun, sem hefur ekki ræst. Erlent 28. desember 2020 10:21
Kim sagður reiður og óskynsamur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður vera reiður þessa dagana og hafa tekið óskynsamar ákvarðanir. Hann er sagður undir miklum þrýstingi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og versnandi stöðu hagkerfis landsins. Erlent 27. nóvember 2020 12:53
Saka Rússa og Kóreumenn um að reyna að stela gögnum um bóluefni Tölvuþrjótar á vegum yfirvalda í Rússlandi og Norður-Kóreu hafa reynt að stela mikilvægum gögnum frá lyfjafyrirtækjum og öðrum sem koma að mikilvægri þróun bóluefna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Microsoft þar sem fram kemur að flestar árásirnar hafi ekki heppnast. Erlent 13. nóvember 2020 15:40
Kim grét, baðst afsökunar og sýndi ný vopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, táraðist og baðst hann afsökunar á þeim harðindum sem þegnar hans hafa þurft að ganga í gegnum að undanförnu. Erlent 12. október 2020 12:03
Danskur kokkur og fjölskyldufaðir myndaði vopnaviðskipti Norður-Kóreu Ólögleg vopnaviðskipti Norður-Kóreu eru meðal þess sem náðst hefur á filmu af danska kokkinum og fjölskylduföðurnum Ulrich Larsen. Erlent 11. október 2020 13:21
Fyrsta hersýningin í Norður-Kóreu í tvö ár Langdræg flugskeyti voru meðal þeirra vopna sem sýnd voru á hersýningu í Norður-Kóreu sem haldin var í nótt, aðfaranótt laugardags, til að fagna því að 75 ár eru liðin frá því að verkamannaflokkur Norður-Kóreu var stofnaður. Erlent 10. október 2020 14:25
Kim Jong Un sendi Donald Trump „ástarbréf“ Í leynilegu bréfi sem Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, sendi Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember 2018 líkir hann sambandi þeirra félaga við blómstrandi Hollywood-ástarsamband. Erlent 1. október 2020 18:40
Lofar að skila líki suðurkóresks manns Spenna hefur farið vaxandi milli Norður- og Suður-Kóreu undanfarin misseri og tilkynntu norðurkóresk yfirvöld í dag að þau myndu afhenda lík suðurkóresks manns sem drepinn var af hersveitum Norður-Kóreu finnist hann í leitaraðgerðum. Innlent 26. september 2020 23:26
Kim Jong-un biður Suður-Kóreu afsökunar Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu hefur beðið granna sína í suðri formlega afsökunar á drápinu á suður-kóreskum embættismanni á dögunum. Erlent 25. september 2020 06:46
Dularfullir draugabátar og ólöglegar veiðar Hundruðum norðurkóreskra fiskibáta hefur skolað á strendur Japans undanfarin ár. Beinagrindur dáinna sjómanna eru eini farmurinn. Erlent 15. september 2020 09:00
Trump sagður ljúga meðvitað um kórónuveiruna Alvarleiki kórónuveirufaraldursins var Donald Trump Bandaríkjaforseta fullljós í vetur á sama tíma og hann sagði almenningi að veiran væri ekki hættulegri en hefðbundin flensa. Erlent 9. september 2020 16:47
Kim glímir við fellibyl ofan í faraldur Einræðisherra Norður-Kóreu hvetur stjórn sína til að búa sig undir hættuástand sem kanna að skapast vegna fellibyljar og faraldurs kórónuveirunnar. Erlent 26. ágúst 2020 07:57
Hleypur undir bagga með bróður sínum og fær meiri völd Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur veitt systur sinni Kim Yo Jong og öðrum nánum ráðgjöfum aukin völd varðandi stjórn ríkisins. Erlent 20. ágúst 2020 10:19
Hertar aðgerðir í Norður-Kóreu vekja áhyggjur um faraldur Einræðisstjórn Norður-Kóreu hefur sett þúsundir íbúa í sóttkví og flutt matvæli til borgar sem hefur verið lokað vegna áhyggja af útbreiðslu Covid-19 þar. Erlent 6. ágúst 2020 10:59
Hafna því að flóttamaðurinn sé smitaður Yfirvöld í Suður-Kóreu hafna því að maður sem flúði til Suður-Kóreu og er sagður hafa snúið aftur til Norður-Kóreu fyrir rúmri viku síðan sé smitaður af kórónuveirunni. Erlent 27. júlí 2020 07:18
Covid-berinn grunaður um nauðgun í Suður-Kóreu Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur lýst yfir neyðarástandi og komið á útgöngubanni í bæ á landamærum Norður- og Suður-Kóreu eftir að ríkismiðlar sögðu frá því að maður sem laumaðist yfir landamæri ríkjanna sé grunaður um að hafa flutt nýju kórónuveiruna til landsins. Erlent 26. júlí 2020 08:50
Grunur um kórónuveirusmit í Norður-Kóreu Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, kallaði til neyðarfundar eftir að einstaklingur sem grunaður erum að vera smitaður af veirunni laumaðist yfir landamæri Norður- og Suður-Kóreu fyrr í mánuðinum. Erlent 25. júlí 2020 22:48
Engin áform um að ræða við Washington Norður-kóresk yfirvöld hafa áréttað að engin áform sé uppi um að hefja viðræður um kjarnorkuvopnamál við yfirvöld í Washington. Ekki nema að Bandaríkjastjórn láti af því sem kallað eru fjandsamlegum stefnum í málefnum Norður-Kóreu. Erlent 4. júlí 2020 15:54
Norður-Kórea hættir við hernaðaraðgerðir gegn Suður-Kóreu Norður-Kórea hefur ákveðið að hætta við það að beita Suður-Kóreu hernaðaraðgerðum. Erlent 23. júní 2020 23:06
Ekkert lát á bæklingasendingum til Norður-Kóreu Aðgerðasinnar í Suður-Kóreu sendu bæklinga með áróðursefni norður yfir landamærin í nótt, í trássi við tilmæli stjórnvalda. Spennan á Kóreuskaga hefur aukist mikið undanfarna daga. Erlent 23. júní 2020 19:00
Sendu bæklingablöðrur til Norður-Kóreu í nótt Hópur fólks sem flúið hefur frá Norður-Kóreu sendi í nótt blöðrur hlaðnar áróðursbæklingum gegn einræðisstjórn Kim Jong Un yfir landamæri Norður og Suður-Kóreu, þvert á vilja yfirvalda beggja ríkja. Erlent 23. júní 2020 07:39
Ætla að senda eigin áróðursbæklinga suður Yfirvöld Suður-Kóreu hafa beðið einræðisstjórn Norður-Kóreu um að senda ekki um tólf milljónir áróðursbæklinga yfir landamærin, eins og til stendur að gera. Erlent 22. júní 2020 07:11
Norðurkóreskir hermenn sjást við landamærin Svo virðist sem Norður-Kóreumenn hafi staðið við hótun sína um að senda hermenn að hlutlausa svæðinu á landamærunum við Suður-Kóreu. Frá þessu greindu suður-kóreskir miðlar í dag. Erlent 18. júní 2020 19:00
Sameiningarráðherra Suður-Kóreu stígur til hliðar vegna deilna við norðrið Suðurkóreski sameiningarráðherrann hefur tilkynnt afsögn sína vegna snöggaukinnar ólgu milli landsins og Norður-Kóreu. Ráðherrann, Kim Yeon-chul, tók einnig ábyrgð á vaxandi spennu milli ríkjanna. Erlent 17. júní 2020 08:30
Enn syrtir í álinn á Kóreuskaga Suður-Kóreustjórn varaði Norður-Kóreu í dag við frekari aðgerðum á landamærunum eftir að einræðisríkið sprengdi hús samvinnustofnunar ríkjanna í loft upp í morgun. Erlent 16. júní 2020 19:00
Norður-Kórea sprengir samvinnustofnun Kóreuríkjanna á landamærunum Norður-Kórea hefur sprengt upp samvinnustofnun Kóreuríkjanna nærri landamærabænum Kaesong, samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Suður-Kóreu. Erlent 16. júní 2020 07:23
Heita því að byggja upp öflugri her Ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ætlar að byggja upp öflugri her, til að verjast hernaðarógnun Bandaríkjanna. Erlent 12. júní 2020 15:21
Systir Kim skipar sér stærri sess Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, virðist vera að skipa sér stærri sess í ríkisstjórn landsins. Hún hefur tekið yfir stjórn á samskiptum ríkisins við Suður-Kóreu og hefur mikil harka færst í leikana. Erlent 10. júní 2020 12:00
Hætta öllum samskiptum við suðrið Norðurkóresk stjórnvöld hafa lokað öllum samskiptaleiðum milli Norður- og Suður-Kóreu. Þar á meðal er bein samskiptalína milli leiðtoga ríkjanna tveggja, Kim Jong-un í norðri og Moon Jae-in í suðri. Erlent 9. júní 2020 06:38
Norður-Kórea opnar skóla á ný Skólar í Norður-Kóreu verða opnaðir aftur í mánuðinum eftir að skólahaldi var frestað í apríl vegna ótta við kórónuveirufaraldur. Erlent 1. júní 2020 22:05