

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Stóðu og klöppuðu fyrir James eftir afrek sem aðeins Jordan hafði náð
LeBron James setti niður níu þriggja stiga skot fyrir Los Angeles Lakers og var hylltur af heimafólki í New York í gærkvöld, eftir 116-104 sigur Lakers á Brooklyn Nets í NBA-deildinni.

Eitthvað verður undan að láta í Texas
Tvö heitustu lið NBA-deildarinnar mætast í kvöld klukkan 23:00 þegar Dallas Mavericks sækja Houston Rockets heim. Heimamenn í Houston hafa unnið ellefu leiki í röð en Dallas sex.

Nýliðinn Wemby með 40-20 leik í NBA
Það dugði ekki New York Knicks liðinu í nótt að bakvörðurinn Jalen Brunson skoraði 61 stig á móti San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta.

Versti vítaskotstíll NBA-deildarinnar fundinn
Að skjóta vítaskotum í körfubolta er ákveðin kúnst. Meðan þeir bestu klikka varla af línunni eru aðrir sem eiga í stökustu vandræðum með að viðhalda góðri nýtingu þaðan. Moses Brown, leikmaður Portland Trail Blazers, er sannarlega einn af þeim.

Ótrúleg mynd sem sýnir breytinguna á NBA-deildinni síðustu tuttugu árin
Það má með sanni segja að Stephen Curry hafi umbreytt NBA-deildinni í körfubolta. Síðan hann skaust fram á sjónarsviðið með sínum ótrúlegu þriggja stiga skotum hefur deildin færst meira í þann stíl heldur en það sem áður var.

Kallaði dómarana og fjölskyldur þeirra tíkur
Kelly Oubre Jr., leikmaður 76ers í NBA-deildinni, vandaði dómurunum í leik 76ers og Clippers aðfararnótt fimmtudags ekki kveðjunnar en hann kallaði hvern og einn þeirra tík og nokkra úr stjórfjölskyldum þeirra einnig.

Meiðsli herja áfram á Ball-bræðurna
NBA-bræðurnir LaMelo og Lonzo Ball eru óheppnari en flestir þegar kemur að meiðslum. Sá fyrrnefndi mun ekki spila á meira á leiktíðinni á meðan Lonzo hefur ekki spilað síðan í janúar 2022.

„Veit að Kobe væri stoltur af mér“
Dejounte Murray, leikmaður Atlanta Hawks, tók 44 skot í óvæntum sigri Hawks á Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Aðeins Russell Westbrook og Kobe Bryant hafa tekið fleiri skot í einum og sama leiknum á undanförnum 20 árum.

NFL ætlar að taka jólin frá NBA
NFL-deildin pakkaði NBA-deildinni saman í sjónvarpsáhorfi á síðasta jóladegi og nú lítur út fyrir að NFL ætli sér hreinlega að eigna sér þennan dag.

Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“
Leikur Houston Rockets og Utah Jazz í NBA-deildinni í körfubolta er til umræðu í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Aðallega eru þó verið að ræða „slagsmálin“ sem orsökuðu að Kris Dunn og Jabari Smith Jr. voru báðir dæmdir í leikbann. Dunn fer í tveggja leikja bann en Jabari eins leikja.

James Harden var bara að reyna að hafa gaman
Eitt undarlegasta atvik tímabilsins í NBA-deildinni átti sér stað í leik LA Clippers og Portland Trail Blazers aðfararnótt síðasta miðvikudags þegar James Harden virtist reyna að verja skot liðsfélaga síns.

Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn
Leikmenn Boston Celtics virðast ætla að fara á miklu flugi inn í úrslitakeppni NBA-deildarinnar, sem nú fer að styttast í, en þeir unnu sinn áttunda sigur í röð í nótt þegar þeir lögðu Detroit Pistons að velli, 129-102.

Lögmál leiksins: Dream Team eða Redeem Team?
Lögmál leiksins, umfjöllunarþáttur Stöðvar 2 um NBA deildina, var sundurklofinn eftir rökræður um landslið Bandaríkjanna í körfubolta árin 1992 og 2012. Hreinstefnusinnarnir Kjartan Atli og Tómas Steindórsson létu ekki af sannfæringu sinni gegn módernistunum Sigurði Orra og Herði Unnsteinssyni.

Tróð svo svakalega að puttinn fór úr lið og hann sjálfur fékk gæsahúð
Það var um fátt annað talað eftir NBA-nóttina en rosalega kraftatroðslu Anthony Edwards. Hann tróð svo svakalega yfir John Collins hjá Utah Jazz að þeir meiddust báðir.

Skellihlógu vegna treyjuskipta í NBA: Hver átti hugmyndina?
Í þættinum Lögmál leiksins í kvöld verður meðal annars farið yfir mjög sérstök treyjuskipti leikmanna í NBA-deildinni í körfubolta á dögunum.

Mögnuð sigurkarfa Irving gegn meisturunum
Kyrie Irving var hetja liðs Dallas Mavericks þegar liðið vann tveggja stiga sigur á meisturum Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Tók meira en tuttugu mínútur að spila síðustu tvær mínútur leiksins
Vegna ítrekaðra endurskoðana dómara og bilana í skotklukku tók meira en tuttugu mínútur að spila síðustu tvær mínútur leiksins þegar Golden State Warriors unnu 128-121 gegn Los Angeles Lakers í nótt.

Jókerinn dró vagninn er Denver fór á toppinn
Nikola Jokic var stigahæsti maður vallarins er Denver Nuggets vann sterkan ellefu stiga útisigur gegn San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 106-117.

Luka-laust Dallas gætið endað í umspili
Oklahoma City Thunder lagði Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Tapið þýðir að Dallas – líkt og Phoenix Suns – eru við það að falla niður í umspilssæti Vesturdeildar ef Los Angeles Lakers og Golden State Warriors girða sig í brók.

Steph Curry um forsetaframboð í framtíðinni: „Kannski“
Stephen Curry er besta skytta NBA-sögunnar og labbar örugglega inn í Heiðurshöll körfuboltans við fyrsta tækifæri. Framtíð hans gæti legið í stjórnmálunum.

Klaufalegar stafsetningarvillur á Kobe-styttunni
Los Angeles Lakers heiðraði Kobe Bryant heitinn í síðasta mánuði með því að afhjúpa styttu af honum í treyju númer átta er hann gekk af velli eftir að skora 81 stig gegn Toronto Raptors árið 2006. Neðst á styttunni má finna stigayfirlit frá þessum fræga leik en þar má því miður finna nokkrar heldur klaufalegar stafsetningarvillur.

„Ef hann væri að spila í dag værum við að tala um hann eins og Trae Young“
Nei eða Já var á sínum stað í síðasta þætti af Lögmál leiksins. Þar var meðal annars farið yfir hversu sigurstrangleg Bandaríkin eru á Ólympíuleikunum 2024 og hvort Allen Iversson hafi verið ofmetinn leikmaður.

Sektaður um nærri fjórtán milljónir króna fyrir að gera „peningamerki“
Rudy Gobert, leikmaður Minnesota Timberwolves, fékk heldur betur að borga fyrir að gera „peningamerki“ með fingrunum í tapi liðsins gegn Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta um liðna helgi.

Boston verður í vandræðum undir lok stóru leikjanna
Í þættinum Lögmál leiksins í kvöld verður farið yfir lokaandartökin í leik Boston Celtics og Denver Nuggets sem fram fór á dögunum en Nuggets vann þann leik nokkuð tæpt undir lokin.

Luka sá fyrsti í sögunni með sex þrennur í röð með þrjátíu stigum
Luka Doncic náði sögulegu afreki í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar Dallas Mavericks vann 142-124 sigur á Detroit Pistons.

Rak hausinn í hringinn þegar hann varði skot á ögurstundu
Anthony Edwards, leikmaður Minnesota Timberwolves, er mikill háloftafugl. Það kom bersýnilega í ljós í leik gegn Indiana Pacers í nótt.

Kominn með fleiri stig en Magic og Bird til samans
Tveir af bestu NBA leikmönnum allra tíma ná ekki LeBron James þrátt fyrir að leggja stig sín saman.

Nei eða já: Fáum við að sjá Embiid aftur á tímabilinu?
Nei eða já var á sínum stað í síðasta þætti af Lögmál leiksins í gærkvöldi og eins og svo oft áður fóru strákarnir um víðan völl.

Fara yfir ótrúlegt afrek LeBron: „Það er ekkert að hægjast á honum“
Lögmál leiksins verður á sínum stað á Stöð 2 Sport 2 í kvöld þar sem farið verður yfir allt það helsta úr heimi NBA-deildarinnar í körfubolta.

LeBron fyrstur í fjörutíu þúsund stig
LeBron James varð í nótt fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta til að skora fjörutíu þúsund stig.