Lögreglan vill losna við páfagauk Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að eiganda þreytulegs páfagauks sem er nú í fórum embættisins. Innlent 5. júlí 2021 23:50
Braust inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu og réðst á kærastann hennar Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás, brot gegn nálgunarbanni, húsbrot og hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. Karlmaðurinn var tekinn þrisvar fyrir of hraðan akstur sama kvöldið í mars í fyrra. Innlent 5. júlí 2021 14:53
Skemmtun skólafélags í Þrastalundi fór „algerlega úr böndunum“ Lögregla á Suðurlandi var kölluð út þegar skemmtun skólafélags í Þrastalundi í Grímsnesi var „algerlega komin úr böndunum“ síðasta laugardagskvöld. Innlent 5. júlí 2021 14:44
Lögregla vísaði hústökufólki úr íbúð í miðbænum Eigandi íbúðar í miðbænum setti sig í samband við lögreglu í gærkvöldi og sagðist hafa haft fregnir af því að fólk héldi sig til í tómri íbúðinni. Lögregla fór á vettvang og fann sannarlega einstaklinga þar fyrir, sem var vísað á brott. Innlent 5. júlí 2021 06:22
Ráðist á dyraverði í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að ráðist hefði verið á dyraverði í miðborg Reykjavíkur á fjórða tímanum í nótt. Innlent 4. júlí 2021 07:17
Einhverju hafi verið ábótavant við festingar Verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna segir alveg skýrt að eitthvað hafi verið ábótavant við festingar eða frágang þegar hoppukastali tókst á loft á Akureyri í fyrradag. Það vanti skýrari reglur í kring um starfsleyfi slíkra tækja hér á landi. Innlent 3. júlí 2021 11:59
Fjórar líkamsárásir í miðbænum í nótt Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt, einkum á stöð númer eitt, sem þjónustar miðbæ Reykjavíkur, austurbæ, vesturbæ og Seltjarnarnes. Innlent 3. júlí 2021 07:48
Annasamur dagur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Mikið annríki hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Frá því á hádegi í dag hafa lögreglumenn staðið í ströngu við að koma fólki í annarlegu ástandi til aðstoðar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 2. júlí 2021 18:19
Verklagsreglur varðandi uppsetningu Skrímslisins á Akureyri í ólestri Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra segir að aldrei hafi komið til kasta eftirlitsins þegar hoppukastalinn var settur upp í bænum. Innlent 2. júlí 2021 16:59
Vissu af samskiptum innan lögreglu í rannsókn sem beindist að þeim Eigendur Ásmundarsalar vissu af umdeildum ummælum lögregluþjóna á vettvangi á Þorláksmessu áður en nefnd um eftirlit með lögreglu hafði vitneskju um ummælin. Innlent 2. júlí 2021 16:57
Byssumaðurinn í fjögurra vikna gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri, sem var handtekinn með hlaðna skammbyssu við Kaffihús Samhjálpar í hádeginu á mánudag, var á miðvikudag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Héraðssaksóknari heldur utan um rannsókn málsins og hefur meðal annars farið húsleit og lagt hald á vopn og muni í tengslum við rannsóknina. Innlent 2. júlí 2021 14:00
Sex ára barn á gjörgæslu eftir hoppukastalaslysið Sex ára gamalt barn er á gjörgæslu á Landspítala eftir að hoppukastali tókst á loft á Akureyri á þriðja tímanum í gær. Innlent 2. júlí 2021 10:49
Fjöldi barna í risastórum hoppukastala sem tókst á loft á Akureyri Fjöldi barna var í risastórum hoppukastala sem tókst á loft við Skautahöllina við Naustaveg á Akureyri á þriðja tímanum í dag. Sex voru flutt til skoðunar á sjúkrahús á Akureyri og eitt með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur. Innlent 1. júlí 2021 14:28
Lögreglan þögul sem gröfin: Byssumaðurinn sá sem stakk mann með hníf á Sushi Social Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill engar upplýsingar veita um stöðuna á rannsókn á máli karlmanns sem handtekinn var með hlaðna skammbyssu við Kaffihús Samhjálpar í hádeginu á mánudag. Innlent 1. júlí 2021 06:01
Nýtt met í hjólahvísli Allt er gott sem endar vel, segir Hjólahvíslarinn, eða Bjartmar Leósson, sem endurheimti í dag hjól sitt sem hafði verið stolið í nótt. Og þetta eru skilaboðin sem hann segist hafa verið að reyna að senda hjólaþjófum: Það eru augu alls staðar. Innlent 30. júní 2021 16:57
Hjóli sjálfs Hjólahvíslarans stolið Hjóli Bjartmars Leóssonar var stolið í nótt. Sá hvimleiði og því miður nokkuð algengi atburður sem hjólastuldur er væri varla fréttnæmur nema vegna þess að Bjartmar hefur í um tvö ár staðið í hálfgerðu stríði við hjólaþjófa borgarinnar. Svo þekktur er hann fyrir þá baráttu sína að flestir þekkja hann sem Hjólahvíslarann. Innlent 30. júní 2021 14:06
Aurskriða olli skemmdum á skíðasvæðinu í Tindastóli Í morgun barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning um að aurskriða hafi fallið á skíðasvæðið í Tindastóli. Ljóst er að skemmdir hafa orðið á svæðinu. Innlent 30. júní 2021 11:18
Fer fram á opinn nefndarfund um Ásmundarsalarmálið Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþings, hefur lagt það til að nefndin taki fyrir nýlegan úrskurð nefndar um eftirlit með lögreglu sem snýr að Ásmundarsalarmálinu. Innlent 30. júní 2021 09:23
Rýming vegna aurskriðuhættu enn í gildi Rýming húsa við Laugaveg og Norðurbrún í Varmahlíð stendur, að minnsta kosti þar til fundur almannavarnarnefndar fer fram núna í morgunsárið. Tilkynning um framhaldið verður birt á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra kl. 11. Innlent 30. júní 2021 06:31
Ekið á stúlku á reiðhjóli Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um kvöldmatarleytið í gær þess efnis að ekið hefði verið á stúlku á reiðhjóli. Í dagbók lögreglu segir að stúlkan hafi hlotið minniháttar meiðsl en verið flutt á Landspítala til skoðunar. Innlent 30. júní 2021 06:19
Segir Marek sitja heilan heilsu inni á geðdeild Lögmaður mannsins sem dæmdur var til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg síðasta sumar segir hann sæta ómannúðlegri meðferð á réttargeðdeild. Sótt hefur verið um leyfi til að áfrýja dómi héraðsdóms til Landsréttar. Innlent 29. júní 2021 19:00
Ósáttur skipstjóri grunaður um ölvun var sóttur af Gæslunni Tvo daga í röð í síðustu viku hafði Lögreglan á Vestfjörðum afskipti af skipstjórum strandveiðibáta á miðunum fyrir vestan. Innlent 29. júní 2021 15:57
Saurinn reyndist svo sannarlega úr álft Lögreglan á Vestfjörðum hefur tekið af allan vafa um að hvítabjörn hafi ekki verið í nágrenni göngufólks á Hornströndum fyrir viku. Úrgangur sem göngufólkið taldi að gæti verið frá hvítabirni reyndist vera eftir álft. Innlent 29. júní 2021 15:44
Átti von á að fá byssukúlu í bakið Karlmaður segist hafa átt von á því að fá byssukúlu í bakið þegar hann hörfaði inn á Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni í hádeginu. Byssumaðurinn er í haldi lögreglu sem staðfestir að vopnið hafi verið hlaðið. Innlent 29. júní 2021 15:09
Ógnaði fólki með hlaðinni skammbyssu á Kaffistofu Samhjálpar Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók um hádegisbil mann sem hafði ógnað fólki á Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni með hlaðinni skammbyssu. Innlent 29. júní 2021 13:37
Lögregla meðvituð um hópslagsmálin en getur lítið gert Lögregla er meðvituð um hópslagsmálin sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur snemma síðasta sunnudagsmorgun. Hún getur þó lítið gert í málinu á meðan engar kærur hafa komið fram í málinu. Innlent 28. júní 2021 13:57
Volkswagen-bifreiðin komin í leitirnar en enn lýst eftir Lexus Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsti í gærkvöldi eftir tveimur bifreiðum sem var stolið á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Önnur bifreiðin, VW Polo með númerið LR-D39 er komin í leitirnar en enn er lýst eftir ljósgráum Lexus IS300H, árgerð 2018. Innlent 28. júní 2021 06:33
Skemmdarvargur iðraðist og gaf sig fram við lögreglu Snemma í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning vegna einstaklings sem braut rúðu í verslun í miðbænum. Stuttu seinna gaf viðkomandi sig fram við lögreglu og vildi gera hreint fyrir sínum dyrum. Innlent 28. júní 2021 06:17
Hrottaleg hópslagsmál í miðbænum í nótt Hópslagsmál brutust út meðal ungra pilta í miðbænum í nótt. Myndband af atvikinu hefur gengið um samfélagsmiðla og vakið óhug. Það má sjá í færslu hér að neðan í fréttinni. Innlent 27. júní 2021 14:59
„Ég held að í frelsinu geti falist margar lausnir“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar eftir umræðu um frjálsan opnunartíma skemmtistaða í miðborg Reykjavík og óttast að í faraldrinum hafi skapast jarðvegur fyrir stjórnlyndi hér á landi. Innlent 27. júní 2021 13:00