Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Erlent 2. mars 2026 06:27
Felldu háttsettan Hezbollah-liða í sprengjuárás á Beirút Fimm létust í loftárás Ísraels á líbönsku höfuðborgina Beirút í dag, þar á meðal starfsmannastjóri hernaðarvægs Hezbollah. Tveimur dögum áður hafði forseti Líbanon lýst því yfir að hann væri tilbúinn í samningsviðræður við Ísraelsmenn. Nú íhuga Hezbollah-liðar að svara árásinni. Erlent 23. nóvember 2025 23:35
Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Veitingastaðurinn Sumac blæs til líbanskrar veislu föstudaginn og laugardaginn 26.-27. september en þá mæta tveir gestakokkar í hús, þær Joyce og Gab sem báðar eru frá Líbanon. Lífið samstarf 22. september 2025 09:02
Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Háttsettur íranskur embættismaður fundaði á miðvikudag með ráðamönnum í Líbanon vegna áætlana um að afvopna Hezbollah-samtökin, sem hafa notið stuðnings frá klerkastjórninni í Íran frá því þau voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 14. ágúst 2025 07:02
Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Síðasta sunnudag brutust út blóðug átök í borginni Sweida í suðurhluta Sýrlands á milli vopnaðra hópa Drúsa og Bedúína. Nýviðtekin ríkisstjórn Sýrlands, undir forystu Ahmads al-Sharaa, sendi herlið í borgina undir því yfirskini að stilla til friðar en við það stigmögnuðust átökin. Erlent 23. júlí 2025 13:58
Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Átökin í Mið-Austurlöndum stigmögnuðust gríðarlega í gærkvöldi þegar Bandaríkjaher hóf loftárásir á Íran. Níu dagar eru síðan Ísraelar hófu að skjóta á Íran en átökin eiga sér lengri aðdraganda. Erlent 22. júní 2025 14:45
Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda. Erlent 16. júní 2025 22:57
Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Lofther Ísraelsher gerði fyrstu loftárásina í Beirút, höfuðborg Líbanon, síðan vopnahlé var samþykkt milli Ísrales og Hezbollah samtakanna undir lok síðasta árs. Erlent 28. mars 2025 14:31
Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Varnarmálaráðherra Ísrael segir að ef til þess kemur að vopnahléið við Hezbollah í Líbanon haldi ekki, muni stjórnvöld ekki gera greinarmun á Hezbollah annars vegar og Líbanon hins vegar. Erlent 3. desember 2024 12:53
Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27. nóvember 2024 14:47
Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27. nóvember 2024 06:45
Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26. nóvember 2024 20:10
Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna. Erlent 26. nóvember 2024 14:12
Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ísraelsríki og Hezbollah-samtökin eru sögð nálgast samkomulag um vopnahlé. Axos-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að skilmálar vopnahlésins liggi fyrir þó enn eigi eftir að staðfesta þá. Erlent 25. nóvember 2024 15:02
Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Sjö særðust í umfangsmikilli árás Hezbollah á Ísrael í gær en samtökin eru talin hafa skotið um 250 eldflaugum og drónum yfir landamærin. Sumar eldflauganna náðu til Tel Aviv. Erlent 25. nóvember 2024 07:08
Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti ellefu eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka. Erlent 23. nóvember 2024 08:34
Líbönsk landsliðskona lífshættulega slösuð eftir árás Ísraelsmanna Celine Haidar berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir að hafa særst illa í sprengjuárás Ísraelsmanna í suðurhluta Berút. Fótbolti 20. nóvember 2024 07:02
Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina. Erlent 17. nóvember 2024 14:21
„Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísrael, sagði í gær að „ákveðinn árangur“ hefði náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon. Talsmenn Hezbollah staðfesta að viðræður eigi sér stað en segja engar ákveðnar tillögur liggja fyrir að svo stöddu. Erlent 12. nóvember 2024 06:59
Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. Erlent 29. október 2024 11:47
Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Klerkastjórn Íran er þegar byrjuð að gera lítið úr árásum Ísrael á landið í nótt. Þær eru sagðar hafa beinst gegn hernaðarskotmörkum í landinu og segja ráðamenn í Íran að skaðinn hafi verið „takmarkaður“. Ísraelar segja árásunum lokið og að þær hafi verið gerðar á loftvarnarkerfi, eldflaugaverksmiðjur og önnur skotmörk. Erlent 26. október 2024 07:29
Segja Hezbollah fela gull og fúlgur fjár undir sjúkrahúsi í Beirút Sahel-sjúkrahúsið í Dahiyeh-hverfinu í Beirút í Líbanon var rýmt eftir að Ísrael sagði Hezbollah-samtökin geyma hundruð milljóna dollara í reiðufé og gulli í byrgi undir spítalanum. Erlent 22. október 2024 07:28
Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Hundruð íbúa Beirút flúðu heimili sín í gærkvöldi eftir að Ísraelsher gaf út að árásir væru yfirvofandi á útibú fjármálasamsteypunnar Al-Qard Al-Hassan Association. Erlent 21. október 2024 06:52
„Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað Hezbollah um að reyna að ráða sig af dögum í dag eftir að dróna frá Líbanon var skotið í átt að heimili hans í bænum Caesarea. Hvorki forsætisráðherrann né kona hans voru heima og sakaði engan. Erlent 19. október 2024 22:17
Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sprengjudróni hæfði heimili Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, snemma í morgun. Um er að ræða hús hans í Sesareu í norðurhluta Ísraels. Erlent 19. október 2024 10:42
Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16. október 2024 06:44
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14. október 2024 06:48
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13. október 2024 13:15
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10. október 2024 23:09
Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ræða við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gegnum síma í dag um fyrirhugaðar árásir Ísrael á Íran. Erlent 9. október 2024 06:37