Kunnugleg andlit á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, skipar fyrsta sæti lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í Norðvesturkjördæmi kom saman klukkan 18 í dag og hefur samþykkt framboðslista. Innlent 25. október 2024 18:50
Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Listar Vinstri grænna fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður og suður voru samþykktir á fundi flokksins sem hófst á Nauthóli klukkan 17:30 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Kunnugleg andlit skipa fyrstu sæti beggja lista en athygli vekur að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, skipar heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Það er kjördæmið sem hún skipaði áður forystusætið. Innlent 25. október 2024 17:58
Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Flestir myndu vilja fá sér drykk með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, af formönnum stjórnmálaflokkanna. Næst flestir myndu vilja drekka með Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. Þó myndu enn fleiri ekki vilja drekka með neinum af stjórnmálaleiðtogunum. Lífið 25. október 2024 17:02
Gerir engar kröfur um ráðherrastól Dagur B. Eggertsson kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu og vilja vera þingmaður fyrir alla landsmenn, fái hann þingsæti. Hann segir uppi mikla kröfu um nýja ríkisstjórn en gerir engar kröfur um ráðherrasæti myndi Samfylking nýja ríkisstjórn. Innlent 25. október 2024 16:06
Gerði ekki kröfu um oddvitasæti og fær annað sætið Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, gaf kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi kosningum. Hann taldi rétt að sækjast eftir því í stað oddvitasætis í ljósi þess að hann er að hefja nýjan kafla í stjórnmálaþátttöku sinni. Innlent 25. október 2024 14:46
Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, sem bauð sig fram til þriðja eða fjórða sætis á lista Samfylkingar í Reykjavík verður ekki að ósk sinni. Hann greinir frá því í færslu á Facebook. Innlent 25. október 2024 14:36
Dagur mun ekki skipa oddvitasæti í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, mun ekki skipa efsta sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum. Viðbúið er að hann skipi annað sætið á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 25. október 2024 14:09
Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaþingmaður, hefur verið tilnefnd af uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í annað sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Kosið verður um lista Samfylkingarinnar á morgun. Innlent 25. október 2024 13:46
Þrúgandi þögn fyrir stóru ákvörðun Kristrúnar Yfirleitt spyrst út þegar einhverjir eru á framboðsskóm og berast þá jafnan inn á ritstjórnargólf. En ekki hjá Samfylkingu nú um stundir. Þar halda menn spilum þétt að sér. Víst er að þar er við nokkurn vanda að etja þegar raða skal í efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmunum norður og suður. Innlent 25. október 2024 13:25
Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis Samfylkingin skar sig úr í frumkvæðisathugun Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, með víðtækri notkun persónusniða á grundvelli skráningar Facebook á áhugamálum notenda. Viðreisn nýtti sér upplýsingar um þá sem líkað höfðu við flokkinn á Facebook og Instagram og heimsótt vefsíðu hans. Þó var ekki talið tilefni til að beita valdheimildum Persónuverndar. Innlent 25. október 2024 11:31
Segir ráðherra bera skyldu til að afgreiða umsóknir um hvalveiðar Jón Gunnarsson, nýr fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir að hvalveiðar séu eitt þeirra mála sem hann ætli að skoða þar. Ráðherra beri skylda til að afgreiða umsóknir um veiðileyfi. Jón fer hörðum orðum um fyrrverandi félaga sína í ríkisstjórn úr Vinstri grænum. Innlent 25. október 2024 09:17
Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Nú þegar líður að kosningum má gera ráð fyrir að hitna muni verulega í umræðunum víða. Ekki síst á vinnustöðum. Atvinnulíf 25. október 2024 07:03
Sendi út neyðarkall vegna meðmælasöfnunar Vinstri grænna Ragnar Auðun Árnason framkvæmdastjóri Vinstri grænna sendi í morgun neyðarkall á félaga í Vinstri grænum og sagði meðmælasöfnun áhyggjuefni. Hann segist ekki hafa sömu áhyggjur í kvöld. Meðmælasöfnun gangi vel en sé þó ekki lokið. Innlent 24. október 2024 23:02
Arna Lára leiðir lista Samfylkingar í Norðvestur Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og ritari Samfylkingarinnar, leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ), er í öðru sæti. Innlent 24. október 2024 22:38
Samþykktu listann í Kraganum: Jón skipar fimmta sætið Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Jón sóttist upprunalega eftir 2. sæti, því sama og hann skipaði í síðustu kosningum, en Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður flokksins hafði betur í kosningu. Innlent 24. október 2024 21:29
„Þurfum á því að halda að það verði breyting á stjórn landsins“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn er í þriðja sæti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann segir kominn tíma á breytingu á stjórn landsins. Innlent 24. október 2024 21:14
Stefna að því að ljúka vinnu við fjárlög um miðjan nóvember Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis segir ganga vel að ljúka við fjárlög. Nefndin miði við 15. eða 16. nóvember sem síðasta dag þannig málinu verði lokið fyrir alþingiskosningar í lok sama mánaðar. Innlent 24. október 2024 21:01
Þorbjörg, Jón og Aðalsteinn efstu þrjú hjá Viðreisn í Reykjavík suður Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður og fyrrverandi saksóknari, leiðir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður í komandi þingkosningum. Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri, skipar annað sætið og Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, er í þriðja sæti. Innlent 24. október 2024 20:49
Víðir leiðir í Suðurkjördæmi: „Þjóðin þarf festu í landstjórnina núna“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra, leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu, er í öðru sæti. Innlent 24. október 2024 20:46
Hanna Katrín, Pawel og Grímur efst á lista Viðreisnar í Reykjavík norður Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, mun leiða lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum. Í öðru sæti er Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og varaborgarfulltrúi. Þriðja sætið skipar Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, og í fjórða sæti er Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, klínískur barnasálfræðingur. Innlent 24. október 2024 20:45
Guðbrandur leiðir Viðreisn í Suðurkjördæmi Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, leiðir listann. Í öðru sæti er Sandra Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi í Hveragerði. Þriðja sætið skipar Mathias Bragi Ölvisson, háskólanemi, og í fjórða sæti er Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar. Innlent 24. október 2024 20:41
Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda furðar sig á því að fyrirhuguð gjaldtaka á nikótínvörur fari eftir þyngd pakkninga en ekki styrkleika. Breytingin sé ekki til þess fallin að efla lýðheilsu. Fjáraukalög voru til umræðu á Alþingi í dag. Viðskipti innlent 24. október 2024 20:01
Forystukonan sem sögð er hafa grátið sig á þing Inga Sæland formaður Flokks fólksins mætir í Samtalið með Heimi Má í opinni dagskrá á Stöð 2 strax að loknum fréttum og Íslandi í dag í kvöld. Hún segir eðlilega breytingar eiga sér stað á framboðslistum flokksins, þótt einn þingmanna hans hafi sagt sig úr flokknum vegna þeirra. Innlent 24. október 2024 16:00
Vísar því til föðurhúsanna að hann sé „með orðljótari mönnum“ „Ég kannast ekki alveg við þessa lýsingu á sjálfum mér,“ segir Sigurjón Þórðarson, oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, eftir að hafa verið sagður „með orðljótari mönnum“. Innlent 24. október 2024 15:26
„Við þurfum að losa okkur við það fólk“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að stoppa þurfi þá sem sækja um vernd á Íslandi en koma hingað fyrst og fremst til að fremja glæpi. Innlent 24. október 2024 15:23
Hátt á annað hundrað milljónir vegna óvæntra forsetaskipta Auknar fjárheimildir upp á tæpar 150 milljónir króna vegna ófyrirséðra forsetaskipta eru lagðar til í fjáraukalögum starfandi fjármálaráðherra. Þar af er kostnaður við öryggismál og endurbætur á íbúðarhúsnæði á Bessastöðum um 86 milljónir króna. Innlent 24. október 2024 14:49
Varaþingmaður hættur í flokknum og úthúðar Ásthildi Lóu Georg Eiður Arnarson, varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, hefur sagt sig úr flokknum. Hann segir Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann flokksins í kjördæminu, hafa sagst ekki hafa tíma fyrir kjördæmið og ekki efni á að kalla inn varaþingmann. Innlent 24. október 2024 11:59
Ugla og Eldur mætast í Norðvestur Áhugaverður slagur er að teiknast upp í Norðvesturkjördæmi, þar sem oddviti eins flokks er trans kona og oddviti annars er yfirlýstur baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, en hefur mótmælt réttindabaráttu trans fólks ötullega. Innlent 24. október 2024 10:48
Jakob Frímann yfirgefur Flokk fólksins Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, las í upphafi þingfundar í morgun þá athugasemd að Jakob Frímann Magnússon hafi nú yfirgefið Flokk fólksins. Innlent 24. október 2024 10:41
Þau skipa efstu sætin á listum Lýðræðisflokksins Lýðræðisflokkurinn hefur kynnt þau sem munu skipa efstu sætin á listum flokksins í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember næstkomandi. Innlent 24. október 2024 09:01