Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Alma Möller landlæknir vill leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður tilkynnti í dag að hann hygðist ekki gefa kost á sér vegna heilsubrests. Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona flokksins stefnir á sama sæti. Innlent 19. október 2024 12:57
Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) býður sig fram í annað efstu sæta í Norðvesturkjördæmi fyrir Samfylkingu. Hann bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2014 en kveðst hafa fjarlægst flokkinn síðustu ár. Innlent 19. október 2024 12:14
Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist sjálfur hafa ákveðið að óska eftir því við kjörstjórn að Halla Hrund Logadóttir fengi oddvitasætið á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Innlent 19. október 2024 11:46
Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Guðmundur Árni sækist ekki lengur eftir oddvitasæti hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Það tilkynnti hann á Facebook rétt í þessu. Í tilkynningu sinni vísar hann til tímabundinna heilsufarsástæðna. Það sé að læknisráði sem hann taki þessa ákvörðun. Hann segist styðja Ölmu Möller í forystu í kjördæminu. Innlent 19. október 2024 11:14
Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Sjálfstæðisstefnan grundvallast á því að eignarréttur, réttur til frelsis séu frumréttindi einstaklings og að heill þjóðfélagsins byggist á frjálsu atvinnulífi með frjálsri samkeppni. Hugmyndafræðin er sú að hver og einn fái tækifæri til að blómstra sem verður að endingu til þess að efla og styrkja Ísland. Skoðun 19. október 2024 10:31
Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Snorri Másson fjölmiðlamaður sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi Alþingiskosningum. Innlent 19. október 2024 09:58
Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir greiðslur sem hún hafa þegið sem þingmaður landsbyggðarkjördæmis lögbundnar og ekki valkvæðar. Hún hafi kannað það fyrir nokkrum árum hvort hægt væri að afþakka greiðslurnar en fengið það svar að það væri ekki hægt. Innlent 19. október 2024 09:35
Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki Vala Árnadóttir lögfræðingur gefur kost á sér í 3. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Ragnhildur Jónsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti í sama kjördæmi en fyrir eru nokkur framboð í sömu sæti. Innlent 19. október 2024 09:31
Kæru vinir og stuðningsfólk Kæru vinir og stuðningsfólk, frá því ég man eftir mér hef ég verið knúin áfram af ástríðu fyrir landinu okkar, auðlindunum sem við eigum, og þeim tækifærum sem þær gefa okkur sem þjóð. Skoðun 19. október 2024 09:01
Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur lagt sjálfan sig að veði í komandi alþingiskosningum með því að taka annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Þar með baráttusætið því flokkurinn hefur ekki mælst með mann inni úr kjördæminu í nýjustu könnunum. Innlent 19. október 2024 08:02
Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við Það er komið að kosningum enn á ný. Við stöndum frammi fyrir því að fela stjórnmálafólki, enn eina ferðina, valdið til að stýra þessu landi – landinu okkar. Við treystum þeim fyrir lífi okkar, lífi barna okkar og framtíðinni. Skoðun 19. október 2024 08:02
„Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Halla Hrund Logadóttir fráfarandi orkumálastjóri og verðandi oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi segir alveg ljóst að nýta þurfi auðlindir landsins, en nýtingin þurfi að vera ábyrg. Hún segir að Framsókn sé samvinnuflokkur sem geti unnið þvert á pólitíska hagsmuni. Innlent 18. október 2024 23:54
Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir annar þingmaður Norðvesturkjördæmis, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur þegið húsnæðis- og dvalarkostnaðargreislur upp á samtals 13,8 milljón krónur frá árinu 2016. Þórdís er frá Akranesi en hefur búið í Kópavogi síðastliðinn áratug. Hún er langt í frá eini þingmaðurinn sem fær greiðslurnar lögbundnu sem koma sumum spánskt fyrir sjónir. Innlent 18. október 2024 23:08
Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Það er morgunljóst að fleiri þvottavélar á afslætti verða á skjám landsmanna vikuna fyrir kosningar en frambjóðendur. Þetta segir hugmyndasmiður á auglýsingastofu sem segir öll bestu auglýsingaplássin löngu uppbókuð. Innlent 18. október 2024 21:20
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Um síðastliðna helgi birtist grein á visir.is eftir undirritaðan með hrollvekjandi lýsingum á aðstæðum sem kvöldinu áður höfðu blasað við fárveikum einstaklingi í 7 klukkustunda bið á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Skoðun 18. október 2024 20:02
Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit gefa til kynna gríðarlega spennu en ekkert er fast í hendi, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Hún spáir því að VG eigi meira inni en kannanir gefi til kynna en Sjálfstæðismönnum gengur enn erfiðlega að afla fylgis til baka. Formaður Framsóknar setji þrýsting á kjósendur sem vilja ekki að hann falli af þingi að kjósa flokkinn. Innlent 18. október 2024 19:16
Fullveldi Það er táknrænt að talning atkvæða í fyrirhuguðum alþingiskosningum mun fara fram aðfaranótt fullveldisdagsins 1. desember. Skoðun 18. október 2024 19:02
Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Páll Valur Björnsson býður sig fram í forystusæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar. Páll sat á þingi fyrir Bjarta Framtíð árin 2013 - 2016, og var varaþingmaður Samfylkingarinnar 2017 - 2021. Innlent 18. október 2024 18:49
Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Jasmina Vajzovic Crnac hefur gefið kost á sér í efsta sæti Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Jasmina er stjórnmálafræðingur að mennt, og er eigandi IZO ráðgjafar sem veitir ráðgjöf og fræðslu þegar kemur að innflytjendum og flóttafólki. Innlent 18. október 2024 17:28
„Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Ég mun gleyma því seint þegar pabbi gamli heitinn sagði einu sinni við mig: Skoðun 18. október 2024 16:32
Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Halla Hrund Logadóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og fráfarandi orkumálastjóri, hefur tilkynnt að hún sé gengin til liðs við Framsóknarflokkinn. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, leggur sjálfan sig að veði og leggur til við kjörstjórn að Halla Hrund fái oddvitasætið í Suðurkjördæmi. Innlent 18. október 2024 15:15
Í upphafi kosningabaráttu Við sem komin erum á þann aldur eða höfum náð þeim þroska að við erum hreint ekki viss um að lifa heilt kjörtímabil, við áttum mörg hver sameiginlegan draum: Okkur dreymdi um að skila kynslóðunum sem tækju við, skila barnabörnunum okkar, betri heimi en þeim sem við hefðum fengið að láni um stuttan tíma. Skoðun 18. október 2024 14:01
„Eigum við ekki að fara yfir þann þröskuld þegar við komum að honum?“ Þórunn Sveinbjarnardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson, gamalreyndar stjórnmálakempur sem báðar sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingar í Kraganum, svara því ekki hvort þau þæðu sæti neðar á lista. Mikil spenna ríkir einnig fyrir baráttu um annað sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í kjördæminu, sem skera á úr um á sunnudag. Innlent 18. október 2024 13:37
Vill úr borgarstjórn á Alþingi Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu Pírata á Alþingi og býður sig fram í Reykjavík. Innlent 18. október 2024 12:52
Ákall um annars konar hagkerfi Áskorun okkar tíma er að finna jafnvægi milli efnahagslegra framfara og verndunar náttúrunnar. Skoðun 18. október 2024 12:31
Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Björn Leví Gunnarsson þingmaður varð undrandi þar sem hann stóð í sakleysi sínu fyrir utan Vínbúðina og var að safna undirskriftum fyrir Pírata en var rekinn þaðan í burtu. Innlent 18. október 2024 12:02
Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum Fylgi Samfylkingar, Pírata og Flokks fólksins minnkar milli mánaða á meðan Viðreisn bætir við sig töluverðu fylgi. Ómarktækur munur er á milli Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins. Vinstri græn hanga inni á þingi. Innlent 18. október 2024 11:56
Vill að rödd hins almenna launamanns heyrist á Alþingi Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins ætlar að blanda sér í pólitíkina og gefur kost á sér í 2. sæti hjá Samfylkingunni í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. Hvort þeirra? Kristján Þórður segir að það verði svo bara að koma á daginn hvernig uppstillingarnefnd hagi sínum störfum. Innlent 18. október 2024 11:32
Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ég hef verið að velta þessari spurningu fyrir mér, undanfarið og ég hef komist að niðurstöðu hvað mig varðar. Skoðun 18. október 2024 11:32
„Fólk hefur verið að ýta við mér“ Flosi Eiríksson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segist íhuga það alvarlega að skella sér í pólitíkina á ný ef félagar hans í Samfylkingunni vilja njóta liðsinnis hans. Innlent 18. október 2024 10:37