

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Voru bestir á Íslandi fyrir áratug en taka nú ekki þátt: „Leiðinleg og erfið ákvörðun“
Tíu árum eftir að Snæfell varð Íslands- og bikarmeistari karla í körfubolta teflir félagið ekki fram meistaraflokki karla.

Segir starfi sínu lausu eftir að Clippers henti einvíginu gegn Nuggets frá sér
Doc Rivers er hættur sem þjálfari Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta.

Haukur Helgi frá næstu fimm vikurnar
Haukur Helgi Pálsson, einn þriggja íslenskra landsliðsmanna í körfubolta sem leikur á Spáni, verður ekki með liði sínu næstu fimm vikurnar vegna meiðsla.

Kristófer þarf að treysta á hraðar hendur nefndarmanna
Kristófer Acox þarf að treysta á að aga- og úrskurðanefnd KKÍ hafi hraðar hendur í vikunni, og úrskurði honum í vil, svo hann geti leikið með Val gegn Stjörnunni á föstudagskvöld.

Snæfell fær þunga sekt
Körfuknattleiksdeild Snæfells fær þunga sekt fyrir að draga karlalið sitt úr keppni í 1. deild og útlit er fyrir að ekki komi lið inn í deildina í staðinn.

Spáin fyrir Domino´s deild karla 2020-21: Þrjú lið sem berjast fyrir lífi sínu í vetur (10.-12. sæti)
Fallbaráttan í Domino´s deild karla verður hörð eins og oft áður. Vísir er að spá fyrir um lokaröð liðanna og í dag er komið að þremur neðstu sætunum.

Snæfell hættir rétt fyrir mót | Erfiðleikar í rekstri og mönnun
Karlalið Snæfells, sem varð Íslands- og bikarmeistari í körfubolta fyrir tíu árum, hefur dregið lið sitt úr keppni í 1. deild en leiktíðin þar hefst á föstudagskvöld.

Allt klárt fyrir úrslitaeinvígi NBA
Los Angeles Lakers og Miami Heat hefja einvígi sitt um NBA-meistaratitilinn á miðvikudagskvöld eftir að Miami sló Boston Celtics út í nótt.

Hlynur Bærings: Bara „glorified“ æfingaleikur
Hlynur Bæringsson, landsliðsfyrirliði og fyrirliði Stjörnunnar, var sáttur með sigur í Meistarakeppni KKÍ í kvöld gegn Grindavík, 106-86.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Grindavík 106-86 | Stjarnan meistari meistaranna
Stjarnan er meistari meistaranna í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík í Meistarakeppni KKÍ í kvöld. Leikurinn fór fram í Mathús Garðabæjar-höllinni í Garðabæ og endaði með nokkuð öruggum sigri heimamanna, 106-86.

Kvennalið KR og Keflavíkur í sóttkví
Dominos-deildarliðin Keflavík og KR í kvennaflokki eru komin í sóttkví ef marka má heimildir miðilsins Karfan.is.

Magnaður LeBron og Lakers í úrslitin í fyrsta sinn í tíu ár
Los Angeles Lakers er komið í úrslit NBA-deildarinnar eftir sigur á Denver Nuggets, 117-107, í fimmta leik liðanna í undanúrslitunum.

Dagskráin í dag: Átján beinar útsendingar
Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag en alls verða átján beinar útsendingar í boði.

Boston hélt sér á lífi
Boston Celtics er enn á lífi í úrslitaeinvígi austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum eftir 121-108 sigur á Miami í fimmta leik liðanna í nótt.

Tryggvi skilaði flottum tölum í tapi gegn risanum
Íslenski körfuboltalandsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti ágætis leik er Zaragoza tapaði fyrir Real Madrid, 102-83.

Martin stiga- og stoðsendingahæstur í sannfærandi sigri Valencia
Martin Hermannsson spilaði mjög vel í fyrsta sigri Valencia liðsins í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta á tímabilinu.

Sakar Kristófer um að leyna meiðslum
Páll Kolbeinsson, gjaldkeri körfuknattleiksdeildar KR, segir Kristófer Acox hafa leynt meiðslum þegar hann skrifaði undir samning við félagið í fyrrasumar. Þessu hafnar Kristófer alfarið og gögn sýna að þáverandi þjálfari KR vissi að hann væri meiddur.

KR fær liðsstyrk frá Riga
Karlalið KR í körfubolta hefur bætt við sig þriðja erlenda leikmanninum fyrir komandi tímabil í Dominos-deildinni.

Svona var kynningarfundurinn fyrir Domino's deild karla
Vísir varr með beina útsendingu frá kynningarfundi KKÍ fyrir Domino's deild og 1. deild karla í körfubolta.

Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum í Domino´s deild karla
Félögin og fjölmiðlamenn voru ekki sammála um það hvaða lið verður Íslandsmeistari í Domino´s deild karla næsta vor.

Kristófer segir KR skulda sér milljónir
Kristófer Acox kveðst eiga inni háa upphæð hjá körfuknattleiksdeild KR vegna vangreiddra launa. Hann hefur leitað til lögfræðings til að freista þess að fá upphæðina greidda.

Lakers einum sigri frá fyrsta úrslitaeinvíginu í áratug
Los Angeles Lakers náði 3-1 forystu í einvíginu gegn Denver Nuggets í úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt.

Dagskráin í dag: Olís deildar tvíhöfði, Stúkan og Martin gegn Hauki
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í kvöld sem og alla helgina.

Nýliðarnir byrjuðu frábærlega og Blikakonur unnu meistaraefnin
Gaupi fór yfir fyrstu umferðina í Domini´s deild kvenna í körfubolta sem fór fram í gærkvöldi en fyrstu leikir vetrarins buðu upp á óvænt úrslit.

KR neitaði að skrifa undir félagaskipti Kristófers
Félagaskipti Kristófers Acox frá KR í Val eru komin inn á borð aga- og úrskurðanefndar KKÍ.

Hetjuframmistaða hjá nýliðanum og Miami einum sigri frá úrslitunum
Tyler Herro skoraði 37 stig þegar Miami Heat komst í 3-1 í einvíginu gegn Boston Celtics í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar.

Sigrún Sjöfn: Ég tek þessi tvö stig
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var ekki himinlifandi með frammistöðu liðsins síns, Skallagríms, í kvöld en liðið Hauka í Hafnarfirði naumlega, 51-54.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Skallagrímur 51-54 | Bikarmeistararnir byrja á sigri
Haukar tóku á móti bikarmeisturum Skallagríms í 1. umferð Domino's deildar kvenna í körfubolta. Bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur.

Tap hjá deildarmeisturunum og Keflavík niðurlægði KR
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra stiga sigur á deildarmeisturum Vals í kvöld, 71-67, í fyrstu umferð Dominos-deildar kvenna.

Áhorfendum gæti verið vísað úr húsi taki þeir niður tölfræði á körfuboltaleikjum í vetur
KKÍ hefur gert nýjan samning við Genius Sports, aðilann sem sér um allt umsýslu-, móta- og tölfræðikerfi sambandsins.