Mörgum milljörðum komið undan: „Þetta er að gerast fyrir framan nefið á okkur“ Skattrannsóknarstjóri telur að einn milljarður hafi tapast í fyrra vegna nokkurra mála sem eru til rannsóknar sem tengjast skipulögðum glæpahópum. Talið sé að mörgum milljörðum sé komið undan á ári hverju með slíkri svikastarfsemi. Innlent 5. maí 2021 13:49
Kostirnir við Schengen fleiri en gallarnir eins og er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir kostina við Schengen-samstarfið fleiri en gallana. Alltaf þarf að vega og meta kosti og galla slíks samstarfs. Þetta sagði Áslaug Arna í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Til umræðu var meðal annars geta lögreglu til að vísa brotamönnum úr landi. Innlent 5. maí 2021 11:48
Deilir áhyggjum lögreglu af albönsku mafíunni Dómsmálaráðherra tekur undir áhyggjur lögreglu um að albanska mafían fari að láta til sín taka hér á landi. Það þurfi með öllum mætti að tryggja öryggi borgaranna með því að styrkja lögregluna. Innlent 4. maí 2021 17:44
Skorar á ríkisstjórnina að opna augun eftir umfjöllun Kompáss Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa brugðist því að verja þjóðina gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta sagði hún eftir að hafa horft á umfjöllun Kompáss um málefnið. Innlent 4. maí 2021 15:00
„Þetta var bara aftaka“ Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi. Innlent 4. maí 2021 08:00
Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug. Innlent 3. maí 2021 23:08
Rauðagerðismálið til héraðssaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur afhent embætti héraðssaksóknara gögn vegna rannsóknar Rauðagerðismálsins. Mun það falla í hlut embættisins að ákveða hvort ákærur verða gefnar út í málinu. Innlent 3. maí 2021 14:20
Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands. Innlent 3. maí 2021 08:01
Ætlar í mál við Seltjarnarnesbæ og hugsanlega einstaka starfsmenn Seltjarnarnesbær hefur hafnað bótaskyldu í máli Margrétar Lillýar Einarsdóttur, stúlku sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Margrét Lillý ætlar að höfða bótamál gegn bænum og hugsanlega einstaka starfsmönnum sem komu að máli hennar. Innlent 31. mars 2021 12:09
„Þetta rændi æsku minni og það er þessu fólki að kenna“ Stúlka, sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi, fagnar gagnrýnum úrskurði Barnaverndarstofu um slæleg vinnubrögð á Nesinu. Hún ætlar að berjast fyrir því að börn geti treyst kerfinu. Innlent 8. febrúar 2021 20:01
Upplifir sorg en á sama tíma létti að missa heimilið Íbúi á Seyðisfirði segist finna bæði fyrir létti og sorg yfir því að mega ekki lengur búa í húsi sínu vegna skriðuhættu. Erfitt muni reynast að finna annað húsnæði í bænum sem er að stórum hluta á hættusvæði. Innlent 5. febrúar 2021 18:54
Alvarlegar athugasemdir gerðar við meðferð Seltjarnarnesbæjar á máli stúlkunnar Barnaverndarstofa telur verulega annmarka hafa verið á meðferð barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi á máli stúlku, sem segist hafa búið við ofbeldi og vanrækslu á heimili í bænum um árabil. Lögmaður stúlkunnar telur yfirvöld hafa brotið gegn henni með alvarlegum hætti. Innlent 5. febrúar 2021 12:14
Óttast skriður úr hlíðum sem áður töldust öruggar vegna hlýnunar Vísindamenn óttast að skriðuföll úr hlíðum hér á landi sem áður töldust öruggar vegna hlýnandi veðurfars. Stórauka þurfi rannsóknir á sífrerum til fjalla og verði fólk vart við breytingar í hlíðum í sínu umhverfi ætti að láta umsvifalaust vita. Innlent 4. febrúar 2021 21:00
Aukin fjárframlög skipti sköpum við að hraða uppbyggingu varnarvirkja Framlög í Ofanflóðasjóð hafa verið aukin um 1,6 milljarða á ári næstu fjögur árin. Starfsmaður sjóðsins segir það skipta sköpum við að hraða uppbyggingu varnarvirkja. Innlent 2. febrúar 2021 19:00
„Ég fékk sömu tilfinningu, að við myndum aldrei lifa þetta af" Rýma átti hús mun fyrr á Seyðisfirði að mati hjóna í ljósi þess að aldrei hafði mælst meiri rigning á Íslandi dagana fyrir aurskriðurnar. Þegar hættumat var kynnt var tekið fram að mikil hætta yrði ekki yfirvofandi nema í hamfararigningu. Innlent 1. febrúar 2021 19:00
Ógnin í fjallinu Ofanflóð á Flateyri og Seyðisfirði í fyrra hafa minnt Íslendinga rækilega á að baráttunni við að verja byggðir landsins er hvergi nærri lokið. Þrátt fyrir aukið eftirlit og uppbyggingu varnarvirkja mátti litlu muna að manntjón yrði. Innlent 1. febrúar 2021 07:46
Íslenskum börnum greiddar fimm til tíu þúsund krónur fyrir kynferðislegar myndir Hátt í tíu mál voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í desember þar sem karlmenn greiddu allt niður í 13 ára íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Börnin fengu greiddar á bilinu fimm til tíu þúsund krónur fyrir myndina í gegnum forrit í símanum. Innlent 7. janúar 2021 07:01
Viðtöl ársins 2020: Skipsbrot, missir, unaðsbylting og COVID-19 eftirköst Í hundruðum viðtala sem birst hafa á Vísi á þessu ári hafa einstaklingar opnað sig um veikindi, áföll, kynlíf, fíkn, kynferðisofbeldi, starfslok, foreldrahlutverkið, gjaldþrot, missi, skilnað, ófrjósemi og svona mætti lengi telja. Lífið 26. desember 2020 07:02
Fíkn ekki leyst með lagasetningu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir spilafíkn ekki lagaða með lagasetningum heldur þurfi að hjálpa þeim sem glíma við slíkan vanda. Innlent 10. desember 2020 14:45
Langt leiddur spilafíkill settur í bann hjá Hjálparsímanum Spilafíkill sem Rauði kross Íslands segir hafa ítrekað áreitt og haft í hótunum við starfsmenn og sjálfboðaliða Rauða krossins var settur í bann og getur hann ekki hringt lengur í 1717. Maðurinn vildi gagnrýna og ræða rekstur RKÍ á spilakössum. Innlent 9. desember 2020 21:00
Tvítugir að tapa milljónum í íþróttaveðmálum Miklar áhyggjur eru af íþróttaveðmálum ungra karlmanna. Dæmi eru um að tvítugir menn tapi mörgum milljónum á netinu. Engin sérhæfð spilafíklameðferð er í boði á Íslandi. Innlent 3. desember 2020 20:03
Spilafíkn er alvarlegur vandi meðal fólks með þroskahömlun Allmargir úr hópi fólks með þroskahömlun eiga við spilafíkn að stríða og eyða oft síðustu aurunum af örorkulífeyrinum í spilakassa. Verkefnastjóri hjá Þroskahjálp segir skorta fræðslu og sérhæfða fíknimeðferð fyrir hópinn. Innlent 2. desember 2020 20:31
Spilakassar verði svartur blettur á okkar sögu Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að í fyrsta skipti frá árinu 1994 fái spilafíklar frelsi frá spilakössum vegna samkomubannsins. Innlent 2. desember 2020 12:52
„Bið til guðs að þeir opni ekki aftur“ Flestir spilafíklar eru með fíkn í spilakassa. Þeir hafa verið lokaðir í samkomubanni. Heitasta ósk þriggja viðmælenda Kompáss er að kassarnir verði ekki opnaðir aftur. Innlent 1. desember 2020 07:01
Fjölmargar stúlkur haft samband og sagt frá dreifingu nektarmynda á netinu Rebekka Ellen Daðadóttir sem deilir reynslu sinni af stafrænu kynferðisofbeldi í nýjasta Kompás hefur stofnað síðu á Instagram þar sem hún ætlar að halda umræðunni gangandi og vonast til að geta búið til vettvang fyrir fræðslu. Innlent 9. nóvember 2020 12:51
Börn með sjálfsvígshugsanir vegna nektarmynda Dæmi eru um að börn fái sjálfsvígshuganir eftir að nektarmynd af þeim fer í dreifingu á netinu. Verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins segir nokkuð algengt að börn í slíkri stöðu hafi samband. Innlent 5. nóvember 2020 20:30
Vill aukna réttarvernd þeirra sem verða fyrir því að nektarmyndum af þeim er dreift Dómsmálaráðherra segir núverandi löggjöf veita aðeins brotakennda réttarvernd þegar kemur að kynferðisbrotum sem framin eru með stafrænum hætti. Hún mun mæla fyrir frumvarpi í næstu viku sem felur meðal annars í sér aukna vernd þeirra sem verða fyrir því að nektarmyndum af þeim sé dreift. Innlent 5. nóvember 2020 12:51
Hefur fengið hundruð reynslusagna um kynferðislegt ofbeldi á netinu gegn ungum konum Kona sem heldur úti instagramsíðu um stafrænt kynferðisofbeldi segir hundruð ungra kvenna hafa sent sér reynslusögur af slíku ofbeldi. Það vanti úrræði og auka þurfi kynfræðslu. Innlent 4. nóvember 2020 20:01
„Ég óska engum að lenda í þessu“ Allt niður í sjö ára íslensk börn senda af sér nektarmyndir á netinu og eru mörg dæmi um að myndirnar endi á klámsíðu. Einnig hefur málum fjölgað hjá lögreglu þar sem börn eru þvinguð af fullorðnum til að senda af sér kynferðislegt myndefni, til dæmis samneyti við yngri systkini. Innlent 4. nóvember 2020 09:00
Hafa áhyggjur af því að fólk skammist sín og tilkynni ekki um barnaníðsefni á netinu Sextíu tilkynningar um barnaníðsefni hafa borist Barnaheillum á árinu. Lögfræðingur Barnaheilla hefur áhyggjur af því að fólk veigri sér við að tilkynna um barnaníðsefni sem það verður vart við á netinu. Innlent 3. nóvember 2020 20:31