

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Breiðablik lenti undir á móti botnliði Skagamönnum í Bestu deild karla í gær en toppliðið snéri leiknum við með þremur mörkum á níu mínútna kafla í seinni hálfleiknum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var heilt yfir sáttur við lærisveina sína í 3-1 sigri liðsins á móti Skagamönnum í 15. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.
Breiðablik bar sigurorð af ÍA með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 15. umferðar í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Skagamenn komust yfir í leiknum en þrjú mörk Blika á níu mínútna kafla tryggðu heimamönnum sigur og níu stiga forystu á toppi deildarinnar.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, sagði jafntefli líklega hafa verið sanngjörn úrslit í leik ÍBV og Keflavíkur sem fram fór í Bestu deildinni í fótbolta í dag.
ÍBV hafði unnið síðustu tvo leiki áður en þeir fengu Keflavík í heimsókn á laugardegi á Þjóðhátíð. Leikurinn var mikil skemmtun og endaði með tvö-tvö jafntefli.
Stjarnan og Víkingur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í lokaleik 14. umferðar í Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í dag. Bæði lið hefðu sárlega þurft á stigunum að halda í toppbaráttunni.
Kristall Máni Ingason lék í vikunni sinn síðasta leik fyrir Víking Reykjavík, að minnsta kosti í bili. Hann þakkaði ekki einungis stuðningsmönnum þeirra fyrir sig, heldur allra hinna liðanna í deildinni einnig.
Greint var frá því á heimasíðu Víkings frá Reykjavík í dag að Kristall Máni Ingason hefði leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Hann heldur út til Noregs þar sem hann hefur samið við Rosenborg.
Breiðablik tók á móti KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikið var að nýju eftir rúmlega mánaðar pásu á deildinni vegna Evrópumóts kvenna í knattspyrnu. Breiðablik komst yfir í fyrri hálfleik og á síðustu 20 mínútunum bættu þær fjórum mörkum við til viðbótar.
Besta deild-kvenna fór aftur á stað eftir að hlé var gert á deildinni vegna þátttöku Íslands á EM. Stjarnan heimsótti topplið Vals. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og voru keimlík.
Keppni í Bestu deild kvenna hefst aftur í kvöld með tveimur leikjum. Elísa Viðarsdóttir, sem er nýkomin af Evrópumótinu í Englandi, og stöllur hennar í Val taka á móti Stjörnunni.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍR var í október á síðasta ári ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti, með því að hafa í starfi sínu dregið sér samtals tæpar 3,2 milljónir króna og greitt eigin reikninga með kreditkorti félagsins fyrir tæpar 1,6 milljónir króna. Hann var samt sem áður liðsstjóri liðsins um helgina og keyrði rútu liðsins til og frá leikstað.
Pálmi Rafn Pálmason, fyrirliði KR, tábrotnaði í 3-3 jafnteflinu gegn Val í Bestu deildinni. Þrátt fyrir það vonast hann til að ná næsta leik liðsins.
Einn af landsliðsmarkvörðum Íslands á Evrópumótinu er komin í nýtt félag fyrir lokasprettinn í Bestu deildinni því hún mun klára tímabilið í Vestmannaeyjum.
Leiknir R. hefur fengið danska framherjann Zean Dalügge á láni frá Lyngby. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Að mati Kristjáns Óla Sigurðssonar gerði Valur verstu kaupin í Bestu deild karla fyrir tímabilið. Mikael Nikúlásson sagði hins vegar að FH og KR hefðu keypt köttinn í sekknum.
Afturelding gerði góða ferð austur fyrir fjall og vann 1-4 sigur á Selfossi í 14. umferð Lengjudeildar karla í gær. Þetta var þriðji sigur Mosfellinga í röð en þeir eru komnir upp í 5. sæti deildarinnar.
Lasse Petry er orðinn leikmaður Vals á ný eftir tæpa þriggja mánaða dvöl hjá FH. Það þarf ekki að koma mikið á óvart því Ólafur Jóhannesson er tekinn við Valsliðinu á ný.
Maciej Makuszewski, sem á að baki fimm leiki fyrir pólska landsliðið í fótbolta, hefur yfirgefið Leikni og heldur heim á leið.
Knattspyrnudeild Aftureldingar hefur samið við þrjá leikmenn um að leika með kvennaliði félagsins í Bestu-deild kvenna.
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Í þeim voru skoruð tíu mörk.
KR og Valur áttust við í stórveldaslag í Vesturbænum í 14. umferð Bestu-deildar karla. Eftir rólegan fyrri hálfleik sprakk leikurinn út í þeim síðari og fjögur mörk voru skoruð á tíu mínútna kafla. Bæði lið gátu verið svekkt með jafnteflið en leikar enduðu með 3-3 jafntefli, í fyrsta leik Ólafs Jóhannessonar í endurkomu sinni til Vals.
Valur gerði jafntefli gegn KR á Meistaravöllum í sex marka leik. Ný ráðinn þjálfari Vals, Ólafur Jóhannesson, taldi næstu skref sín sem þjálfari Vals vera að laga varnarleik liðsins.
ÍA, botnlið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, tóku á móti nýliðum deildarinnar, Fram, á Akranesi í 14. umferð deildarinnar. Nýliðarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu stórsigur á Skipaskaga, 0-4. Magnús Þórðarson, Már Ægisson, Alex Freyr Elísson og Guðmundur Magnússon skoruðu mörkin.
Tveir leikir voru á dagskrá í Bestu-deild karla í knattspyrnu í gær þegar Keflavík tók á móti KA annars vegar og topplið Breiðabliks heimsótti FH-inga.
FH gerði markakaust jafntefli við topplið Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta þegar liðin mættust á Kaplakrikavelli í kvöld.
FH og Breiðablik skildu jöfn í 14. umferð Bestu-deildarinnar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með hvernig hans menn spiluðu manni færri í tæplega 85 mínútur.
Keflvíkingar tóku á móti KA-mönnum suður með sjó þar sem að tvö mörk KA í uppbótartíma skiluðu þeim þremur stigum. KA-menn unnu 3-1 en Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, fékk rautt spjald eftir rúmlega tíu mínútna leik og spiluðu Keflvíkingar því bróðurpart leiksins manni færri.
ÍBV vann 4-1 sigur á Leikni Reykjavík á heimavelli síðarnefnda liðsins í Breiðholti í fyrsta leik 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. ÍBV vann þar með annan leik sinn í röð.
FH hefur fengið framherjann Úlf Ágúst Björnsson til baka úr láni frá Njarðvík, hvar hann lék fyrri hluta sumars. Úlfur er næstmarkahæsti maður 2. deildar.