„Var Loga að þakka sem er meistari í að peppa upp góða stemningu“ Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að það sé Loga Geirssyni að þakka að EHF-bikarinn sem Lemgo vann árið 2006 hafi endað hér á landi. Lemgo hafði þá betur í tveimur leikjum gegn Göppingen í úrslitaeinvíginu. Handbolti 21. apríl 2020 18:00
Árni Stefán hættur með Hauka Haukar þurfa að finna þjálfara fyrir kvennalið félagsins fyrir næsta tímabil. Handbolti 21. apríl 2020 13:16
Bjarki Már þriðji íslenski markakóngurinn í Þýskalandi Bjarki Már Elísson fetaði í fótspor Sigurðar Sveinssonar og Guðjóns Vals Sigurðssonar. Þeir hafa allir orðið markakóngar í þýsku úrvalsdeildinni. Handbolti 21. apríl 2020 11:36
Tímabilið í Þýskalandi blásið af | Kiel meistari Ekki verða fleiri leikir leiknir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta á þessu tímabili. Kiel voru krýndir meistarar en Íslendingalið slapp við fall. Handbolti 21. apríl 2020 11:05
Barcelona vildi fá Ásgeir Örn en félagaskiptin duttu upp fyrir eftir að þjálfarinn var rekinn Flest benti til þess að Ásgeir Örn Hallgrímsson væri á leið til Barcelona áður en örlögin gripu í taumana. Handbolti 21. apríl 2020 11:00
Ásgeir um Guðmund: Lausnin hans sú besta í heiminum og leikmennirnir byrja að trúa því Ásgeir Örn Hallgrímsson segist aldrei hafa verið ósáttur með lítinn spiltíma í landsliðinu enda hafi hann gert sér grein fyrir því að í byrjunarliðinu í hans stöðu hafi einn besti handboltamaður Íslands fyrr og síðar verið, Ólafur Stefánsson. Fótbolti 21. apríl 2020 07:00
Dagskráin í dag: Fannar mætir til Rikka, krakkamótin og bikartitill Selfoss Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Fótbolti 21. apríl 2020 06:00
Vignir einnig hættur Vignir Svavarsson er annar leikmaður Hauka og fyrrum landsliðsmaður sem tilkynnir það að handboltaskórnir séu komnir upp í hillu. Handbolti 20. apríl 2020 18:22
„Hefðum átt að vinna gull á Ólympíuleikunum 2012“ Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að það hafi sviðið sárt að hafa ekki unnið til gullverðlauna með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í London 2012. Handbolti 20. apríl 2020 16:05
Ásgeir Örn leggur skóna á hilluna Farsælum ferli handboltamannsins Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar er lokið. Aðeins einn leikmaður hefur farið á fleiri stórmót með íslenska landsliðinu en hann. Handbolti 20. apríl 2020 15:18
Sportið í dag í heild sinni: Víðir í heimsókn og farið yfir víðan völl Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var gestur Kjartans Atla Kjartanssonar og Henrys Birgis Gunnarssonar í Sportinu í dag á föstudaginn. Farið var um víðan völl í þættinum sem nú má sjá í heild sinni hér á Vísi. Sport 19. apríl 2020 12:00
Guðrún Erla úr Hafnarfirði í Safamýri Guðrún Erla Bjarnadóttir, einn besti leikmaður Hauka í Olís-deild kvenna undanfarin ár, er á leiðinni til Fram Handbolti 18. apríl 2020 20:00
Breki í fótspor föður síns og æskuvinar Framarar hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í Olís-deild karla í handbolta en þeir hafa samið við Breka Dagsson, besta leikmann Fjölnis á síðustu leiktíð. Handbolti 18. apríl 2020 17:00
Anna fékk dýrmæt ár með mömmu og sýtir ekki lengur hvernig fór með atvinnumennskuna Handboltadrottningin sigursæla Anna Úrsúla Guðmundsdóttir missti mömmu sína fyrir þremur árum og segir það hafa sett hlutina í samhengi fyrir sig. Hún svekki sig ekki lengur á því að lítið hafi orðið úr atvinnumannsferlinum. Handbolti 18. apríl 2020 12:00
Kári rifjaði upp draumakvöld á Lundanum Kári Kristján Kristjánsson rifjaði meðal annars upp af hverju hann var eitt sinn á kassanum/bumbunni á veitingastaðnum Lundanum í Vestmannaeyjum árið 2005, í nýjasta innslaginu úr skúrnum sínum í Sportinu í dag. Handbolti 17. apríl 2020 23:00
Íris Björk hætt: Fyrsti titillinn með Gróttu á sérstakan stað í hjartanu Íris Björk Símonardóttir, landsliðsmarkvörður og markvörður ríkjandi Íslandsmeistara Vals, hefur lagt handboltaskóna á hilluna. Hún ræddi um ákvörðun sína í Sportpakkanum á Stöð 2. Handbolti 17. apríl 2020 19:30
Íris Björk tekur sér hlé frá handbolta en Valur fær Sögu Sif Margfaldi Íslandsmeistarinn og markvörðurinn Íris Björk Símonardóttir hefur ákveðið að taka sér frí frá handbolta og mun því ekki leika með Val í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Valur hefur klófest Sögu Sif Gísladóttur frá Haukum. Handbolti 17. apríl 2020 12:42
Vann nítján af þrjátíu stórum titlum sem í boði voru á síðasta áratug Ein sigursælasta handboltakona Íslands frá upphafi hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum. Handbolti 17. apríl 2020 12:03
Anna Úrsúla hætt: „Síðustu handboltaskórnir mínir komnir í ruslið“ Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, ein sigursælasti leikmaður íslenska kvennahandboltans undanfarin ár, er hætt í handbolta en Anna Úrsúla tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Handbolti 17. apríl 2020 09:04
Dagskráin í dag: Spurningakeppni í Körfuboltakvöldi, dramatískur oddaleikur KR og Grindavíkur, goðsagnir efstu deildar og margt fleira Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Sport 17. apríl 2020 06:00
Kári Kristján tók siðlausa svindlara fyrir Kári Kristján Kristjánsson rifjaði upp sögur af miklum svindlurum í innslagi sínu úr bílskúrnum í Vestmannaeyjum í Sportinu í dag. Handbolti 16. apríl 2020 23:00
Nýr þjálfari hjá Gróttu og HK fær leikmann Maksim Akbachev hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu sem verður nýliði í Olís-deildinni á næstu leiktíð. HK-ingar, sem féllu úr deildinni, hafa fengið leikmann frá Haukum. Handbolti 16. apríl 2020 20:30
Fór langt í viðræðum við tvö önnur félög: „Mjög spenntur fyrir því að fara á Selfoss“ „Ég mun fara beint á Kaffi Krús. Síðan er það sundlaugin og ein góð pylsa,“ sagði handboltamaðurinn Guðmundur Hólmar Helgason léttur í bragði í Sportinu í dag þar sem tilkynnt var að hann hefði samið við Selfoss. Handbolti 16. apríl 2020 19:00
KA fær landsliðsmarkvörð Handknattleiksdeild KA hefur fengið liðsstyrk fyrir næsta vetur með komu markvarðarins Nicholas Satchwell. Satchwell sem er fæddur árið 1991 er landsliðsmarkvörður Færeyja. Handbolti 16. apríl 2020 17:33
Staðfesta komu Geirs: „Stoltur að vera orðinn Haukamaður“ Geir Guðmundsson hefur gert þriggja ára samning við Hauka. Handbolti 16. apríl 2020 16:26
Velunnarar Selfoss söfnuðu fyrir Guðmundi Hólmari Guðmundur Hólmar Helgason gengur í raðir Selfoss frá West Wien í Austurríki. Handbolti 16. apríl 2020 15:31
Úrslitahelgi Meistaradeildarinnar verður milli jóla og nýárs Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast í Köln 28. og 29. desember. Handbolti 16. apríl 2020 11:15
Dagskráin í dag: Garnirnar raktar úr Arnari Gunnlaugs, leið Selfoss að fyrsta titlinum og úrslitaleikur Keflavíkur og Snæfells Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Sport 16. apríl 2020 06:00
„Söluræðan“ virkaði á Berg og Birgi Grótta, sem verður nýliði í Olís-deild karla í handbolta næsta vetur, hefur fengið til sín þá Birgi Stein Jónsson og Berg Elí Rúnarsson. Báðir skrifuðu undir samning til tveggja ára við félagið. Handbolti 15. apríl 2020 21:29
Engir áhorfendur verði tímabilið klárað í Þýskalandi Ef takast á að ljúka keppnistímabilinu í boltaíþróttunum í Þýskalandi í sumar þá verður það gert fyrir luktum dyrum. Stórar samkomur eru bannaðar í landinu út ágúst. Sport 15. apríl 2020 21:00