Óla-áhrifin strax byrjuð að segja til sín: Þrír frá Erlangen í liði umferðarinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. mars 2022 15:30 Erlangen vann fyrsta leikinn eftir komu Ólafs Stefánssonar. Ólafur Stefánsson var í fyrsta sinn á hliðarlínunni hjá Erlangen þegar liðið vann N-Lübbecke, 29-22, í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Ólafur var ráðinn aðstoðarþjálfari Erlangen út tímabilið í síðustu viku. Hann hélt utan á föstudaginn og var mættur á hliðarlínuna gegn N-Lübbecke í gær. Innkoma Ólafs virtist hafa góð áhrif á leikmenn Erlangen sem unnu öruggan sjö marka sigur. Erlangen er í 11. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með sautján stig. Þrír leikmenn Erlangen voru valdir í lið umferðarinnar í þýsku úrvalsdeildinni fyrir frammistöðu sína gegn N-Lübbecke; hornamennirnir Hampus Olsson og Christopher Bissel og línumaðurinn Sebastian Firnhaber. Olsson skoraði níu mörk, Bissel sjö og Firnhaber tvö. Einn Íslendingur er í liði umferðarinnar, Gísli Þorgeir Kristjánsson. Hann skoraði átta mörk þegar topplið Magdeburg vann stórsigur á Bergischer, 38-25. Auk Gísla, Olssons, Bissels og Firnhabers eru Niclas Kirkelökke (Rhein-Neckar Löwen), Kevin Möller (Flensburg) og Miro Schluroff (Minden) í liði umferðarinnar. Ólafur aðstoðar Raúl Alonso, þjálfara Erlangen, næstu fjóra mánuðina. Ekki er ólíklegt að hann taki svo við liðinu eftir tímabilið. Næsti leikur Erlangen er gegn Hamburg á útivelli á fimmtudaginn.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira