

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Jafnt í Íslendingaslag í Þýskalandi
Íslendingaliðin Melsungen og Flensburg áttust við í fyrri leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Þórir Hergeirs forviða á spurningu blaðamanns | „Heimskasta spurning sem ég hef heyrt“
Þórir Hergeirsson er á leið í enn einn úrslitaleikinn á stórmóti í dag þegar stelpurnar hans í norska handboltalandsliðinu mæta Dönum í úrslitaleik EM.

Þakkar Seinni bylgjunni fyrir - ,,Ekki gerst síðan út á Nesi árið 2003”
Ragnar Þór Hermannsson, þjálfari Hauka, var virkilega ánægður með átta marka sigur Hauka gegn HK í Olís-deild kvenna í dag. Bæði lið voru með tvö stig fyrir þennan leik; Haukar í sjötta sæti og HK í áttunda sæti.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - HK 35-27 | Haukar höfðu betur í fallbaráttuslag
Haukar unnu marka sigur á HK - Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Haukar tóku frumkvæðið í seinni hálfleik og heimakonur bjuggu til forskot sem þær létu ekki af hendi.

Íslendingalið á sigurbraut
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í kvöldleikjum þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - ÍBV 38-28 | Fyrsti sigur Ásgeirs og Haukar upp úr fallsæti
Haukar unnu sinn fyrsta leik síðan 22. september. Haukar tóku frumkvæðið í fyrri hálfleik og voru í bílstjórasætinu allan leikinn og heimamenn unnu tíu marka sigur 38-28.Það var mikill hiti í leiknum og fengu Heimir Óli og Petar Jokanovic báðir beint rautt.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Hörður 27-27 | Harðverjar sóttu sitt fyrsta stig í sögunni í efstu deild
Grótta tók á móti Herði í 11.umferð Olís-deildar karla. Hörður, er enn í leit að sínum fyrsta sigri í deildinni eftir jafntefli á móti Gróttu í æsisspennandi leik.

„Núna er mér alveg drullusama um þetta undir lokin“
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var skýjum ofar eftir sigurinn á Fram í Úlfarsárdalnum í dag, 30-31. KA-menn voru sterkari aðilinn í leiknum en voru nálægt því að kasta sigrinum frá sér undir lokin.

Ómar Ingi markahæstur í tapi gegn Kiel
Meistaralið Magdeburg beið lægri hlut fyrir Kiel í stórleik helgarinnar í þýska handboltanum.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 30-31 | Ber er hver að baki nema sér Bruno eigi
KA varð í dag fyrsta liðið til að vinna Fram á nýja heimavellinum í Úlfarsárdal í Olís-deild karla. Lokatölur 30-31, KA-mönnum í vil.

„Skutum á markið eins og ég veit ekki hvað“
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var svekktur eftir tapið fyrir KA, 30-31, í Olís-deild karla í dag. Hann er orðinn langþreyttur á lélegri færanýtingu sinna manna.

Valskonur áfram með fullt hús stiga
Valur trónir á toppi Olísdeildarinnar í handbolta og styrkti stöðu sína með tveggja marka sigri á KA/Þór að Hlíðarenda í dag.

Sigurður Bragason: Þetta var bara svolítil geðveiki
ÍBV vann frábæran sigur á Fram á útivelli fyrr í dag í Olís-deild kvenna í handknattleik en fyrir leikinn voru liðin jöfn í deildinni. Framarar voru einu skrefi á undan bróðurpart leiksins en rétt undir lokinn snéru Eyjakonur blaðinu við og sigldu sigrinum heim. Lokatölur í Framhúsi 25-27. Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, var hæstánægður að leik loknum.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 25-27 | ÍBV kom til baka í síðari hálfleik og vann sætan sigur
ÍBV vann góðan útisigur á Fram í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag en fyrir leik voru liðin jöfn stiga í deildinni. Lokatölur 25-27 en Eyjakonur komu til baka í síðari hálfleik og sigldu sigrinum heim.

Ísland dróst gegn Ungverjalandi í umspili um sæti á HM
Nú rétt í þessu var dregið í umspil Evrópuþjóða fyrir heimsmeistarakeppni kvenna í handknattleik sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á næsta ári. Ísland dróst gegn Ungverjalandi en umspilsleikirnir fara fram í apríl á næsta ári.

Elliði Snær um Guðjón Val: „Hann hefur gert allt og það er rosalega gott að leita ráða hjá honum“
Elliði Snær Viðarsson er að gera góða hluti hjá Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik en hann skrifaði nýlega undir nýjan samning við félagið. Þá er Elliði orðinn fastamaður í landsliðinu og verður væntanlega í eldlínunni með liðinu á HM í janúar.

Umfjöllun: Valur - Stjarnan 35-29 | Logar serían fram að jólum?
Valsmenn unnu Stjörnuna í fyrsta leik tíundu umferðar Olís-deildar karla í handbolta, 35-29, þrátt fyrir að lenda sex mörkum undir í fyrri hálfleiknum.

Oddur og Daníel Þór á toppnum í Þýskalandi
Íslendingarlið Balingen-Weilstetten er með fjögurra stiga forskot á toppi þýsku B-deildarinnar í handbolta eftir þriggja marka útisigur á Lübbecke, lokatölur 23-26. Þeir Oddur Gretarsson og Daníel Þór Ingason leika með Balingen.

„Mér fannst hann tæta okkur“
Eins kátur og Patrekur Jóhannesson gat verið eftir fyrri hálfleik Stjörnunnar gegn Val í kvöld þá var þjálfarinn alls ekki ánægður með seinni hálfleikinn, í 35-29 tapi Stjörnumanna í Olís-deildinni í handbolta í kvöld.

Noregur mætir Danmörku í úrslitum EM
Noregur, lið Þóris Hergeirssonar, er komið í úrslit Evrópumótsins í handbolta eftir frábæran sigur á Frakklandi í kvöld. Noregur er ríkjandi meistari en lið Þóris varð Evrópumeistari eftir sigur á Frakklandi árið 2020.

Danmörk í úrslitaleik Evrópumótsins
Danmörk er komið í úrslit EM kvenna í handbolta eftir fjögurra marka sigur á Svartfjallalandi, lokatölur 27-23. Síðar í kvöld kemur í ljós hvort það verði Noregur eða Frakkland sem mætir Danmörku í úrslitum.

Kristín og sænsku stelpurnar tóku fimmta sætið
Hinn sænsk-íslenska Kristín Þorleifsdóttir var í sigurliði Svíþjóðar í dag þegar þær sænsku tryggðu sér fimmta sætið á EM kvenna í handbolta með fimm marka sigri á Hollandi.

Markafjöldi í handbolta rokið upp eftir reglubreytingarnar
Breytingar sem voru gerðar á handboltareglunum fyrir þetta tímabil hafa orðið til þess að mörkum hefur fjölgað verulega.

Stórleikur í Eyjum og KA spilar í Garði
Það verður sannkallaður stórleikur í Vestmannaeyjum í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta eftir tæpan mánuð þegar ÍBV tekur á móti meisturum Vals.

Dönum létt eftir kórónuveirukaos
Eftir umtalsvert krísuástand í herbúðum danska kvennalandsliðsins í handbolta er nú orðið ljóst að allir leikmenn liðsins eru gjaldgengir í leikinn við Svartfjallaland í dag í undanúrslitum EM.

Elliði um yngri bróður sinn: Hann verður enn hataðri en ég eftir nokkur ár
Elliði Snær Viðarsson er kominn langt í handboltanum, orðinn fastamaður í íslenska landsliðinu og hefur nýverið framlengt samning sinn við þýska Bundesligu liðið VfL Gummersbach. Hann er hins vegar ekki eini handboltamaðurinn í fjölskyldunni.

Óðinn atkvæðamikill þegar Kadetten Schaffhausen gerði jafntefli
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk fyrir Kadetten Schaffhausen sem gerði jafntefli við Pfadi Winterthur í svissneska handboltanum í kvöld. Schaffhausen er í efsta sæti deildarinnar.

Bjarki með fjögur mörk þegar Veszprem skoraði fimmtíu í einum leik
Leikur Telekom Veszprem og Ferencvaros TC í ungversku deildinni í handknattleik í dag fer líklega í einhverjar sögubækur. Veszprem vann þar 50-40 sigur í ótrúlegum markaleik.

Það má aldrei líta af Ómari Inga: Geggjað mark hans vekur athygli
Handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon hefur átt magnað ár sem Íþróttamaður ársins og íslenska stórskyttan heldur áfram að gera frábæra hluti með liði Magdeburg í þýsku deildinni.

Hlaðvarp Seinni bylgjunnar: Veðmál í gangi hjá KA
Stefán Árni Pálsson og Ingvi Þór Sæmundsson fóru saman yfir umferð helgarinnar í Olís deild karla í handbolta í nýjasta hlaðvarpþætti Seinni bylgjunnar.