

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Stórveldin Bayern München og Real Madríd mætast í kvöld í síðari undanúrslitaleik sínum í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 klukkan 19.00 í kvöld.
Liam Rosenior var einn af þremur sem kom til greina sem þjálfari ársins í ensku b-deildinni. Í gær ákvað Hull City samt sem áður að reka hann úr starfi sínu aðeins nokkrum dögum eftir að tímabilinu lauk.
Edin Terzić, þjálfari Borussia Dortmund, var eðlilega svífandi um á bleiku skýi þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir 1-0 sigur sinna manna í París. Dortmund lagði París Saint-Germain samanlagt 2-0 í einvígi liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Borussia Dortmund gerði sér lítið fyrir og sló París Saint-Germain út í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dortmund, sem situr í 5. sæti heima fyrir, vann báða leikina gegn verðandi Frakklandsmeisturum PSG 1-0 og einvígið þar með 2-0.
Starfslið Manchester United telur að liðið hafi saknað leiðtogahæfileika Lisandro Martínez á leiktíðinni. Argentíski miðvörðurinn hefur verið mikið meiddur og aðeins tekið þátt í 11 leikjum á leiktíðinni.
Spænska knattspyrnufélagið Girona tryggði sér nýverið þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það er þó enn óvíst hvort liðið fái að taka þátt þar sem það er að hluta til í eigu City Football Group sem á meðal annars Englandsmeistara Manchester City.
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt Arnar Grétarsson, þjálfara Vals í Bestu deild karla í tveggja leikja bann.
Birkir Már Sævarsson er eini uppaldi Valsmaðurinn sem er að spila í Bestu deild karla.
Viðar Örn Kjartansson segir að fjarvera sín í leik KA og KR hafi verið blásin full mikið upp og segir málinu lokið. Hann segist enn eiga eitthvað í land til að komast í sitt besta form en er staðráðinn í að hjálpa KA-mönnum að komast á sigurbraut.
Baldur Sigurðsson og Atli Viðar Björnsson voru ekki alveg sammála þegar kom að valinu á úrvalsliði aprílmánaðar í Bestu deild karla í fótbolta, en þeir kynntu liðin sín í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld.
Stöð 2 Sport náði myndum af því þegar þeir Adam Ægir Pálsson og Arnar Grétarsson mættu í búningsklefann á Kópavogsvelli í kjölfarið af því að þeim hafði báðum verið sýndur reisupassinn í leik Vals við Breiðablik.
Óvíst er hvenær Tindastóll getur leikið heimaleiki að nýju á gervigrasvelli sínum á Sauðárkróki vegna mikilla skemmda sem urðu á vellinum í vatnsveðri í apríl.
Áfrýjun enska knattspyrnufélagsins Nottingham Forest bar ekki árangur og nú er ljóst að félagið þarf að sætta sig við fjögurra stiga refsinguna sem liðið hlaut, í ensku úrvalsdeildinni.
Napoli hefur blandað sér í slaginn um Albert Guðmundsson, landsliðsmann í fótbolta, sem er eftirsóttur af bestu liðum Ítalíu eftir stórkostlega leiktíð með Genoa.
Guðmundur Benediktsson, stjórnandi Stúkunnar á Stöð 2 Sport, segir að Viðar Örn Kjartansson hafi ekki mætt á æfingu hjá KA á leikdegi. Framherjinn var ekki í leikmannahópi liðsins gegn KR á sunnudaginn.
Jamie Carragher fór ekki fögrum orðum um frammistöðu Casemiros í 4-0 tapi Manchester United fyrir Crystal Palace í gær og sagði að Brassinn gæti ekki lengur spilað á hæsta getustigi.
Það gekk á ýmsu í stórleik fimmtu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta hvar Breiðablik og Valur áttust við.
Erik ten Hag stýrir Manchester United í bikarúrslitaleik gegn Manchester City 25. maí en það gæti jafnframt orðið síðasti leikurinn hans sem stjóri United.
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, fór „langt yfir strikið“ í reiðikasti sínu á Kópavogsvelli í gærkvöld en á nokkuð í land með að ná nafna sínum Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, sem er „langgrófasti þjálfarinn“ í Bestu deildinni í fótbolta.
Knattspyrnuþjálfarinn Marcelo Bielsa er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir. Hann er í dag landsliðsþjálfari Úrúgvæ og heldur áfram að gera hlutina eftir eigin höfði. Stefnir Bielsa á að velja áhugamann í næsta landsliðshóp Úrúgvæ.
Manchester United mátti þola 4-0 tap gegn Crystal Palace á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gat leyft sér að fagna þrátt fyrir að hafa fengið að líta rautt spjald gegn Breiðabliki í kvöld. Hans menn unnu sterkan 3-2 sigur þrátt fyrir að spila stærstan hluta seinni hálfleiks manni færri.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvö mörk er tíu Valsmenn unnu sterkan 3-2 útisigur gegn Breiðabliki í kvöld.
Lille er í harðri baráttu um að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en henti frá sér unnum leik og þar með 3. sætinu þegar það tapaði 4-3 á heimavelli fyrir Lyon í frönsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Hákon Arnar Haraldsson spilaði allan lekinn og nældi sér í gult spjald.
Þrátt fyrir að leika manni færri nánast allan seinni hálfleikinn unnu Valsmenn gríðarlega sterkan 3-2 sigur er liðið heimsótti Breiðablik í stórleik fimmtu umferðar Bestu-deildar karla í kvöld.
Ömurlegt tímabil Manchester United náði enn einum lágpunktinum í kvöld þegar liðið mátti þola 4-0 tap á útivelli gegn Crystal Palace. Palace hafði skorað 45 mörk í 35 leikjum fyrir leik kvöldsins eða tæplega 1,3 að meðaltali í leik.
Hollenski miðvörðurinn Virgil Van Dijk vill hjálpa að skrifa næsta kafla í sögu knattspyrnufélagsins Liverpool. Hann er sem stendur fyrirliði liðsins og samningur hans við félagið rennur út sumarið 2025.
Sara Björk Gunnarsdóttir hafði betur gegn Alexöndru Jóhannsdóttur þegar Juventus vann 2-0 útisigur á Fiorentina. í Serie A, efstu deild kvenna í knattspyrnu, á Ítalíu.
Úrúgvæinn Darwin Nunez ýtti undir sögusagnir þess efnis að hann gæti verið á förum frá Liverpool í sumar á samfélagsmiðlum.
Valsmönnum hefur gengið illa að skora á Kópavogsvelli síðustu ár og þurfa að bæta úr því í kvöld þegar þeir mæta Blikum, eftir slæma byrjun á leiktíðinni í Bestu deild karla í fótbolta.