Segir Messi ekkert hafa gert fyrir PSG Lionel Messi hefur ekki gert neitt fyrir Paris Saint-Germain og leggur sig ekki nóg fram fyrir félagið. Þetta segir Jérome Rothen, fyrrverandi leikmaður PSG. Fótbolti 10. mars 2023 11:30
Ten Hag: Við getum endurstillt okkur og komið til baka Erik Ten Hag var mjög ánægður með frammistöðu Manchester United í sigri liðsins á Real Betis í gær. United er í góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna í Evrópudeildinni í næstu viku. Fótbolti 10. mars 2023 07:01
Naumur sigur Juve og öll einvígin galopin Angel Di Maria tryggði Juventus 1-0 sigur á Freiburg í Evrópudeildinni í kvöld. Spenna er í nær öllum einvígjum í Evrópu- og Sambandsdeildunum eftir leiki kvöldsins. Fótbolti 9. mars 2023 22:15
United valtaði yfir Real Betis og svaraði fyrir risatapið Manchester United vann í kvöld 4-1 sigur á Real Betis í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. United er því í góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna á Spáni í næstu viku. Fótbolti 9. mars 2023 22:01
HK jafnaði gegn Vestra í uppbótartíma HK og Vestri gerðu 1-1 jafntefli í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld en liðin mættust í Kórnum. Fótbolti 9. mars 2023 21:37
Banna áfengi í nágrannaslagnum Bjórinn fær vanalega að flæða á fótboltaleikjum í Þýskalandi og því vekur athygli áfengisbann á nágrannaslag Schalke og Borussia Dortmund um komandi helgi. Fótbolti 9. mars 2023 20:30
Góður sigur hjá Roma og markaveisla í Berlín Roma vann góðan 2-0 sigur á Real Sociedad í Evrópudeildinni í kvöld. West Ham náði í sigur til Kýpur í Sambandsdeildinni og það var boðið upp á markaveislu í leik Union Berlin og Saint-Gilloise. Fótbolti 9. mars 2023 20:01
Allt galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum Arsenal og Sporting skildu jöfn þegar liðin mættust í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Einvígið er galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum. Fótbolti 9. mars 2023 19:42
Tap hjá Ronaldo í toppslag Cristiano Ronaldo og félagar hans í Al-Nassr máttu sætta sig við tap í toppslag gegn Al-Ittihad í kvöld. Al-Ittihad fer upp fyrir Al-Nassri með sigrinum og í toppsætið. Fótbolti 9. mars 2023 19:28
Pogba mætti of seint og er ekki í hóp í kvöld Paul Pogba verður ekki í leikmannahópi Juventus gegn Freiburg í Evrópudeildinni í kvöld. Pogba er nýkominn aftur eftir langvarandi meiðsli en var tekinn úr leikmannahópnum vegna agabrots. Fótbolti 9. mars 2023 17:49
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á leikmann Tvítugur stuðningsmaður PSV Eindhoven hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á Marko Dmitrovic, markvörð Sevilla, í Evrópuleik liðanna tveggja í febrúar. Fótbolti 9. mars 2023 15:30
Dæmdu fyrrum fyrirliða landsliðsins í lífstíðarbann Fótboltaferill Ahmed Al-Saleh er á enda. Honum er hreinlega bannað að stíga aftur inn á fótboltavöllinn. Fótbolti 9. mars 2023 15:01
Dramað heldur áfram og Diacre látin fjúka Nú þegar aðeins fjórir mánuðir eru í að HM kvenna í fótbolta hefjist í Eyjaálfu hefur Corinne Diacre verið rekin úr starfi landsliðsþjálfara Frakka, eftir mikla óánægju nokkurra leikmanna með hennar störf. Fótbolti 9. mars 2023 13:54
Dæmdir í fangelsi vegna mannskæða troðningsins Tveir embættismenn knattspyrnuliðs voru dæmdir í fangelsi vegna troðningsins sem myndaðist á leikvangi í Malang í Indónesíu í dag. Á annað hundrað manns lést í troðningnum eftir að lögreglumenn skutu táragasi á aðdáendur sem þustu út á völlinn. Erlent 9. mars 2023 11:56
Þjálfari franska kvennalandsliðsins neitar að hætta og talar um rógsherferð Corinne Diacre er þjálfari franska kvennalandsliðsins í fótbolta og vill vera það áfram þrátt fyrir að hafa fengið á sig mikla gagnrýni síðustu vikur. Fótbolti 9. mars 2023 11:42
Albert valinn besti leikmaður umferðarinnar Albert Guðmundsson var valinn besti leikmaður síðustu umferðar í Seríu B á Ítalíu en deildin gaf þetta út á miðlum sínum. Fótbolti 9. mars 2023 08:00
Grindavík náði í stig á Hlíðarenda og KR lagði ÍA KR vann góðan endurkomusigur á ÍA þegar liðin mættust í Lengjubikarnum í kvöld. Þá gerði Lengjudeildarlið Grindavíkur góða ferð á Hlíðarenda og náðu í stig gegn sterku liði Vals. Fótbolti 8. mars 2023 22:41
Milan hélt hreinu í Lundúnum og skildi Tottenham eftir í sárum Ítalíumeistarar AC Milan eru komnir áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 0-0 jafntefli gegn Tottenham í kvöld. Milan vann fyrri leikinn og skilur Tottenham eftir með sárt ennið. Fótbolti 8. mars 2023 22:15
Messi og félagar úr leik í Meistaradeildinni eftir tap í Munchen Bayern Munchen er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á PSG á heimavelli í kvöld. Bayern vann 1-0 sigur í fyrri leiknum og einvígið 3-0. Fótbolti 8. mars 2023 22:04
Annar sigurinn í röð hjá Eyjamönnum ÍBV vann sinn annan sigur í röð í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Leikni 2-0 í Breiðholtinu. Fótbolti 8. mars 2023 19:07
Stórt skref Sverris Inga og félaga í átt að bikarúrslitum Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem vann 5-1 stórsigur á Lamia í gríska bikarnum í knattspyrnu í dag. Fótbolti 8. mars 2023 18:56
Aron Einar skoraði þegar Al-Arabi fór áfram í bikarnum Aron Einar Gunnarsson var á skotskónum hjá Al-Arabi þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Emír-bikarsins í Katar. Fótbolti 8. mars 2023 18:30
Samúel Kári og Viðar Örn þurftu að sætta sig við tap gegn toppliðinu Atromitos beið lægri hlut gegn AEK frá Aþenu í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. AEK vann 1-0 útsigur en Viðar Örn Kjartansson og Samúel Kári Friðjónsson leika með Atromitos. Fótbolti 8. mars 2023 17:31
Formaður knattspyrnudeildar ÍR í eigendahóp lögfræðistofu Axel Kári Vignisson hefur bæst í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar. Aðrir eigendur eru hæstaréttarlögmennirnir Arnar Kormákur Friðriksson, Haukur Örn Birgisson og Ómar Örn Bjarnþórsson. Viðskipti innlent 8. mars 2023 16:58
Stelpur með sama rétt og strákar til að spila fótbolta eftir bréf enska landsliðsins Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 600 milljónum punda, jafnvirði yfir 100 milljarða króna, á næstu tveimur árum í að stelpur fái sömu tækifæri í skólaíþróttum og strákar. Fótbolti 8. mars 2023 15:01
Mbappe: Leikurinn í kvöld mun ekki ráða framtíð minni hjá PSG Framtíð Kylian Mbappe hjá Paris Saint-Germain veltur ekki á útkomu leiks liðsins á móti Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld ef marka má viðtal við kappann. Fótbolti 8. mars 2023 13:31
Næsti HM-draumur stelpnanna okkar gæti ræst í Brasilíu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta var hársbreidd frá því að komast á sitt fyrsta heimsmeistaramót í sögunni þegar liðið tapaði í framlengingu í umspilsleik á móti Portúgal í lok síðasta árs. Fótbolti 8. mars 2023 13:00
„Við keyptum aldrei dómara“ Joan Laporta, forseti Barcelona, segir ekkert til í þeim fréttum að félagið hafi keypt dómara eða reynt að hafa áhrif á þá. Fótbolti 8. mars 2023 12:31
Sjáðu Chelsea bjarga Potter með afar umdeildum hætti og Benfica í ham Leikmenn Chelsea náðu að koma liðinu áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og hjálpa Graham Potter að halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins, með 2-0 sigri gegn Dortmund í gær. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins má nú sjá á Vísi. Fótbolti 8. mars 2023 12:02
Bellingham: Brandari að Chelsea hafi fengið að endurtaka vítaspyrnuna Jude Bellingham, miðjumaður Borussia Dortmund, var allt annað en sáttur með kringumstæðurnar í markinu sem skaut liði hans út úr Meistaradeildinni í gærkvöldi. Fótbolti 8. mars 2023 10:30