Kalmar á toppinn eftir sigur á meisturum Häcken | Hákon Rafn hélt hreinu í stórsigri Hákon Rafn Valdimarsson spilaði allan leikinn í 5-0 sigri Elfsborg á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Það gerði Davíð Kristján Ólafsson einnig í óvæntum 3-1 útisigri Kalmar á meisturum Häcken. Fótbolti 15. apríl 2023 17:32
„Þetta var þolinmæðisverk“ Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með 2-0 sigur á Keflavík í dag. KR var sterkari aðilinn í leiknum í Keflavík í dag og er liðið komið með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 15. apríl 2023 16:50
Dortmund og Bayern töpuðu stigum Dortmund varð af dýrmætum stigum í toppbaráttunni í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar þeir gerðu 3-3 jafntefli við Stuttgart. Bayern gerði slíkt hið sama í jafntefli gegn Hoffenheim Fótbolti 15. apríl 2023 15:48
Sveindís með tvö mörk þegar Wolfsburg fór í úrslit Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar eftir stórsigur á Íslendingaliði Bayern Munchen í dag. Fótbolti 15. apríl 2023 14:17
Gæti sloppið við leikbann þrátt fyrir fólskulega árás á bílastæði Santiago Bernabeu Árás Federico Valverde á Alex Baena hefur vakið mikla athygli í íþróttaheiminum síðustu daga. Enn er óljóst hvort Valverde hlýtur refsingu og einnig hvort Baena viðhafði þau ummæli sem Valverde sakar hann um. Fótbolti 15. apríl 2023 12:30
Nef Zlatan til sölu fyrir tæpar 15 milljónir Nefið af styttunni sem gerð var af Zlatan Ibrahimovic virðist vera til sölu en hópur sem kallar sig „The Noze Club“ hefur boðið ýmsum það til kaups á síðustu dögum. Fótbolti 15. apríl 2023 10:30
„Hann er orkumikill og hvetjandi“ Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður Vals, spilaði á sínum tíma fyrir Åge Hareide hjá Rosenborg og er spenntur fyrir ráðningu hans í landsliðsþjálfarastarfið. Hólmar segir að Hareide sé búinn að sanna sig bæði hjá félagsliðum og ekki síst sem landsliðsþjálfari. Fótbolti 15. apríl 2023 10:01
Verður Messi kynntur til leiks hjá Barcelona innan skamms? Virtur spænskur íþróttablaðamaður segir að markaðsdeild knattspyrnuliðsins Barcelona sé þegar byrjuð að vinna í tilkynningu um komu Lionel Messi til liðsins en samningur hans við PSG rennur út í sumar. Fótbolti 15. apríl 2023 07:01
Viktor Örlygur framlengir við Víkinga Viktor Örlygur Andrason hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Víkings til ársins 2025 en þetta kemur fram í tilkynnigu sem félagið sendi frá sér í dag. Fótbolti 14. apríl 2023 21:30
Willum Þór á skotskónum í tapi Willum Þór Willumsson skoraði mark Go Ahead Eagles þegar liðið tapaði fyrir Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 14. apríl 2023 19:58
Gylfi geti sótt bætur vilji hann það Hæstaréttarlögmaður segir að Gylfi Þór Sigurðsson geti að öllum líkindum fengið skaðabætur úr hendi breska ríkisins nú þegar hann er laus allra mála þar í landi. Fótbolti 14. apríl 2023 19:01
Erlendir fjölmiðlar greina frá máli Gylfa Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um mál Gylfa Sigurðssonar í dag. Flestir enskir fjölmiðlar hafa enn ekki nafngreint Gylfa en nafn hans hefur verið birt í miðlum annarra landa. Fótbolti 14. apríl 2023 18:32
Vandræði meistaranna halda áfram Sænska meistaraliðið FC Rosengård hefur byrjað nýtt tímabil í sænsku úrvalsdeildinni illa. Í dag tapaði liðið gegn Djurgården og er því aðeins með eitt stig eftir þrjá fyrstu leikina. Fótbolti 14. apríl 2023 17:56
Hitti Hareide á heimavelli Åge Hareide var fyrsti kostur KSÍ í leit að nýjum landsliðsþjálfara karlaliðs Íslands í knattspyrnu. Fótbolti 14. apríl 2023 16:04
Ekkert því til fyrirstöðu að velja Gylfa aftur í landsliðið Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, segir ekkert því til fyrirstöðu að Gylfi Þór Sigurðsson verði valinn aftur í íslenska landsliðið. Fótbolti 14. apríl 2023 15:29
Í sex leikja bann fyrir rasisma Framherji New York Red Bulls í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir rasisma. Auk bannsins fékk Vanzeir sekt og þá þarf hann að sækja fræðslunámskeið. Fótbolti 14. apríl 2023 15:15
Sonur Hareides óskar honum og íslenska landsliðinu góðs gengis á leiðinni á EM Sonur Åges Hareide virðist vera spenntur fyrir því að fylgjast með næstu skrefum hjá íslenska karlalandsliðinu, nú þegar faðir hans hefur verið ráðinn þjálfari þess. Fótbolti 14. apríl 2023 14:31
Hareide ráðinn landsliðsþjálfari Norðmaðurinn Åge Hareide hefur verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Fótbolti 14. apríl 2023 13:39
„Hann fær þessi ár ekki aftur“ „Hann fær aldrei aftur möguleika á að spila þessi tvö ár sem nú eru liðin. Maður veit því aldrei hvað hefði getað orðið,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtaka Íslands, um Gylfa Þór Sigurðsson sem eftir tæplega tveggja ára bið er nú laus allra mála í Bretlandi. Fótbolti 14. apríl 2023 12:50
KSÍ tjáir sig ekki um mál Gylfa strax KSÍ ætlar ekki að tjá sig um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar að svo stöddu. Í dag var greint frá því að hann yrði ekki ákærður vegna meintra brota gegn ólögráða einstaklingi. Fótbolti 14. apríl 2023 11:45
Gylfi laus allra mála Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki ákærður vegna meintra brota gegn ólögráða einstaklingi, sem hann var handtekinn vegna í júlí 2021, og er hann því laus allra mála. Fótbolti 14. apríl 2023 11:04
Ekkert líkur Lagerbäck, skoðanaglaður og getur snöggreiðst Norðmaðurinn Åge Hareide tekur við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta með glæsta ferilskrá í farteskinu. Vísir fékk norskan blaðamann sem gjörþekkir Hareide til að kynna betur manneskjuna og þjálfarann sem á að koma Íslandi á næsta stórmót. Fótbolti 14. apríl 2023 11:00
Meiðsli Martínez líta ekki vel út en hásinin óslitin Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að meiðsli Lisandros Martínez líti ekki vel út. Hann er þó ekki með slitna hásin. Fótbolti 14. apríl 2023 10:30
Fundirnir sem felldu Arnar Örlög Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara karla í fótbolta réðust endanlega á fjörutíu mínútna fundi stjórnar KSÍ á Teams 30. mars. Fótbolti 14. apríl 2023 09:48
Fótboltakonur borði of lítið Ný rannsókn í Háskóla norðurslóða í Noregi sýnir fram á að margar knattspyrnukonur sem spila á hæsta stigi borða of lítið til að geta náð fram sínu besta í leikjum og á æfingum. Fótbolti 14. apríl 2023 09:00
Daníel Guðjohnsen orðlaus í aðalliðið: „Besta tilfinning sem ég hef fundið“ Þrátt fyrir að hafa rétt orðið 17 ára í síðasta mánuði þá er knattspyrnumaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen búinn að vinna sér inn sæti í aðalliðshópi sænska úrvalsdeildarfélagsins Malmö. Fótbolti 14. apríl 2023 08:31
Fastan og fótboltinn fari vel saman Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti í gær að leyfa leikmönnum að óska eftir drykkjarhléi í fótboltaleikjum á Íslandi á meðan á Ramadan, heilagasti mánuður múslima, stendur. Mánuðinum fylgir fasta og Sami Kamel, leikmaður Keflavíkur, fastar þessa dagana og fagnar reglubreytingunni. Íslenski boltinn 14. apríl 2023 08:00
Síðast varð Hareide að segja nei við Íslandi Åge Hareide segist hafa fengið tilboð um að verða landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta haustið 2020, áður en Arnar Þór Viðarsson var svo ráðinn, en orðið að hafna því. Fótbolti 14. apríl 2023 07:30
Ten Hag eftir hörmulegan endi: „Ekki skemmtilegt kvöld“ Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, var eðlilega mjög ósáttur þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir að hans menn höfðu glutrað niður tveggja marka forystu gegn Sevilla í 8-liða úrslitum Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Fótbolti 14. apríl 2023 07:01
Fær sex leikja bann fyrir að skalla stjóra erkifjendanna Craig McPherson, aðstoðarþjálfari Rangers í skosku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að skalla Fran Alonso, þjálfara Celtic, í viðureign liðanna undir lok síðasta mánaðar. Fótbolti 13. apríl 2023 23:30