Lopetegui hættur sem þjálfari Wolves sex dögum fyrir fyrsta leik Spánverjinn Julen Lopetegui hefur látið af störfum sem þjálfari Wolves, aðeins tæpri viku fyrir fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 8. ágúst 2023 22:31
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Fylkir 1-1 | Pétur bjargaði stigi fyrir Fylki Fram og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Pétur Bjarnason reyndist hetja Fylkismanna er hann jafnaði metin fyrir liðið þegar um stundarfórðungur lifði leiks og kom um leið í veg fyrir að Fylkir færi niður í fallsæti. Fótbolti 8. ágúst 2023 22:14
„Man ekki hvort helvítis fylgdi með eða ekki“ Arnar Bergmann Gunnlaugsson missti stjórn á skapi sínu í eitt augnablik þegar lið hans, Víkingur, vann 3-1 sigur gegn FH í leik liðanna í Bestu deild karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í kvöld. Arnar Bergmann þurfti þar af leiðandi að horfa á lærisveina sína úr stúkunni frá því um miðbik fyrri hálfleiks. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:53
Færeyingarnir fara með forystu til Noregs eftir endurkomusigur Færeysku meistararnir í KÍ Klaksvík unnu magnaðan 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti Noregsmeisturum Molde í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:28
Skagamenn aftur upp í annað sætið ÍA vann öruggan 3-1 útisigur er liðið heimsótti Gróttu í seinasta leik 15. umferðar Lengjudeildar karla í kvöld. Með sigrinum komu Skagamenn sér aftur upp í annað sæti deildarinnar. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:15
Orri kom inn af bekknum í Meistaradeildarjafntefli Orri Steinn Óskarsson lék síðustu tuttugu mínúturnar fyrir FCK er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Sparta Prague í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2023 20:23
Vestri batt enda á sigurgöngu Selfyssinga Vestri vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Selfossi í Lengjudeild karla í kvöld. Selfyssingar höfðu unnið þrjá leiki í röð í deildinni og sigur hefði komið þeim upp í umspilssæti. Fótbolti 8. ágúst 2023 19:51
Fresta leik eftir að stuðningsmaður var stunginn til bana Leik AEK Athens frá Grikklandi og Dinamo Zagreb frá Króatíu sem fram átti að fara í kvöld í forkeppni Meistaradeildar Evrópu hefur verið frestað eftir að stuðningsmaður varstunginn til bana í grísku höfuðborginni. Fótbolti 8. ágúst 2023 17:45
39 ára Iniesta fær nýjan samning með möguleika á framlengingu Andrés Iniesta spilaði ekki síðasta fótboltaleikinn sinn í Japan því Spánverjinn hefur skrifað undir nýjan samning hjá Emirates Club. Fótbolti 8. ágúst 2023 17:01
Í fjórða sæti yfir þá markahæstu í sögu félagsins eftir aðeins fjóra leiki Lionel Messi er bara búinn að spila fjóra leiki fyrir Inter Miami í Bandaríkjunum en er þegar kominn upp í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn félagsins. Fótbolti 8. ágúst 2023 16:01
Birkir sagður fara frítt eftir að hafa spilað nánast kauplaust Birkir Bjarnason, sá leikjahæsti í sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, virðist hafa lokið dvöl sinni hjá Viking í Noregi. Hann gæti verið á leið aftur til Ítalíu, á kunnuglegar slóðir. Fótbolti 8. ágúst 2023 14:01
Íslandsvinurinn William Morris á nýjum fótboltatreyjum Fótboltafélagið Walthamstow FC tilkynnti um treyjur félagsins fyrir næsta tímabil í síðustu viku. Treyjurnar eru skreyttar mynstri eftir textílhönnuðinn og íslandsvininn William Morris. Tíska og hönnun 8. ágúst 2023 13:16
Frakkar flugu áfram Frakkland átti ekki í neinum vandræðum með að slá út Marokkó í 16-liða úrslitum HM kvenna í fótbolta í dag. Fótbolti 8. ágúst 2023 13:00
Hetja enska landsliðsins í þriðja sinn á einu ári Enska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár með því að vinna tvo titla og nú með því að komast í átta liða úrslit á HM. Einn leikmaður liðsins virðist alltaf stíga fram þegar mest á reynir. Fótbolti 8. ágúst 2023 11:31
Tottenham landaði hollenska varnarmanninum Enska knattspyrnufélagið Tottenham tilkynnti í dag um kaupin á hollenska varnarmanninum Micky van de Ven sem félagið fær frá þýska félaginu Wolfsburg. Fótbolti 8. ágúst 2023 11:17
Úrslitaleikurinn í september vegna árangurs KA Nú er orðið ljóst að úrslitaleikur Mjólkurbikars karla í fótbolta fer ekki fram í ágúst eins og til stóð, heldur verður hann spilaður laugardaginn 16. september, á Laugardalsvelli. Fótbolti 8. ágúst 2023 10:53
Kólumbía braut múrinn mikla og mætir Englandi Jamaíka er úr leik á HM kvenna í fótbolta eftir að hafa fengið á sig aðeins eitt mark á öllu mótinu. Það var annað spútniklið á mótinu, Kólumbía, sem braut múrinn mikla og sló Jamaíku út með 1-0 sigri í 16-liða úrslitum í dag. Fótbolti 8. ágúst 2023 09:57
Faðir Neymars kallaði eitt frægasta íþróttablað heims L'Efake Franska stórblaðið L'Equipe sló því upp í gærkvöldi að Brasilíumaðurinn Neymar vildi komast í burtu frá franska félaginu Paris Saint-Germain. Fréttin reiddi föður Neymars til reiði. Fótbolti 8. ágúst 2023 08:10
Age Hareide tjáir sig um framtíð Gylfa Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, vonast til að Gylfi Þór Sigurðsson muni snúa aftur á fótboltavöllinn sem fyrst. Fótbolti 8. ágúst 2023 07:01
Grískur stuðningsmaður stunginn til bana í aðdraganda leiks kvöldsins Stuðningsmaður gríska fótboltaliðsins AEK Aþenu var stunginn til bana í gærkvöldi þegar ólæti brutust út í aðdraganda mikilvægs leiks félagsins í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2023 06:30
Neymar óskar eftir sölu og nýr sóknarmaður mættur til PSG Luis Enrique er að setja saman nýtt lið hjá franska stórveldinu PSG. Fótbolti 7. ágúst 2023 23:01
Ísak sagður á leið í þýsku B-deildina Ísak Bergmann Jóhannesson mun að öllum líkindum yfirgefa danska stórveldið FCK í sumar. Fótbolti 7. ágúst 2023 21:00
„Mjög ólíklegt að hún verði með í bikarúrslitaleiknum“ Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður þegar hann mætti í viðtal eftir sigur liðsins gegn Þór/KA í dag. Fótbolti 7. ágúst 2023 19:21
Arnór Ingvi skoraði tvö og Guðmundur Baldvin þreytti frumraun í stórsigri Fjórir Íslendingar komu við sögu í leikjum dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 7. ágúst 2023 18:55
Bayern ekki hættir þó lokatilboðinu hafi verið hafnað Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham hefur engan áhuga á því að selja ofurstjörnuna sína; enska sóknarmanninn Harry Kane þrátt fyrir gylliboð Bayern Munchen. Enski boltinn 7. ágúst 2023 16:36
Ísak Bergmann ekki í hóp hjá FCK Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er ekki í leikmannahópi danska meistaraliðsins FCK sem mætir Sparta Prag í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun. Fótbolti 7. ágúst 2023 15:25
LASK bíður Blika komist þeir áfram gegn Zrinjski Dregið var í næstu umferð Evrópudeildarinnar í dag. Íslenski boltinn 7. ágúst 2023 13:16
Danir úr leik eftir tap gegn heimakonum Ástralía er komið í 8-liða úrslit á HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Danmörku í Sydney í dag. Fótbolti 7. ágúst 2023 12:27
Seldur fyrir metfé og brast í grát við kveðju Freys Danski knattspyrnumaðurinn Lucas Hey gekk í raðir Nordsjælland frá Íslendingaliðinu Lyngby í dag en hann lék sinn síðasta leik fyrir Lyngby í 4-1 sigri á Midtjylland í gær. Fótbolti 7. ágúst 2023 11:46
Rautt spjald kom ekki í veg fyrir að England færi áfram Evrópumeistarar Englands eru komnar í 8-liða úrslit á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi eftir sigur á Nígeríu í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum keppninnar í morgun. Fótbolti 7. ágúst 2023 10:29
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn