Álvarez hetja Man City Englandsmeistarar Manchester City unnu 1-0 sigur á Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 19. ágúst 2023 21:10
Willum Þór á skotskónum á meðan Albert og félagar voru kjöldregnir Willum Þór Willumsson skoraði eitt marka Go Ahead Eagles þegar liðið vann 4-1 sigur í 2. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Kristian Nökkvi Hlynsson kom í fyrsta skipti við sögu hjá aðalliði Ajax. Albert Guðmundsson og félagar í Genoa máttu þola 1-4 tap á heimavelli í endurkomu sinni í Serie A. Fótbolti 19. ágúst 2023 20:56
„Verðum að tala um þetta rauða spjald“ Jürgen Klopp, þjálfair Liverpool, var sáttur með 3-1 sigur sinna manna gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag. Hann var hins vegar ekki sáttur með rauða spjaldið sem Alexis Mac Allister fékk. Fótbolti 19. ágúst 2023 20:00
Bellingham getur ekki hætt að skora og Real vann aftur Real Madríd vann 3-1 útisigur á Almería eftir að lenda undir í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski miðjumaðurinn Jude Bellingham skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja. Fótbolti 19. ágúst 2023 19:35
Dortmund marði Köln með marki í blálokin Borussia Dortmund hefur leik í þýsku úrvalsdeildinni með sigri en sá var heldur naumur. Liðið rétt marði Köln 1-0 þökk sé marki undir lok leiks. Fótbolti 19. ágúst 2023 19:05
Tottenham gekk frá Man United í síðari hálfleik Tottenham Hotspur vann 2-0 sigur á Manchester United í 2. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Leikurinn var einkar opinn en gestirnir frá Manchester gátu ómögulega komið boltanum í netið og nokkuð ljóst er að liðinu sárvantar framherja. Enski boltinn 19. ágúst 2023 18:35
Íslenskt mark og tvær íslenskar stoðsendingar gegn toppliðinu Óskar Borgþórsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Jónatan Ingi Jónsson voru allir í byrjunarliði Sogndal er liðið gerði 3-3 jafntefli gegn toppliði Kongsvinger í norsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 19. ágúst 2023 16:57
Öruggir útisigrar hjá Brighton og Brentford Brighton og Brentford unnu örugga útisigra er liðin mættu til leiks í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 19. ágúst 2023 16:05
Tíu leikmenn Liverpool kláruðu Bournemouth Liverpool vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Eftir vandræðagang í upphafi leiks snéru leikmenn Liverpool leiknum sér í hag og unnu 3-1 sigur, þrátt fyrir að vera manni færri seinasta hálftíman. Fótbolti 19. ágúst 2023 15:56
Kolbeinn og félagar nálgast öruggt sæti eftir endurkomusigur Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn fyrir IFK Gautaborg er liðið vann mikilvægan 2-1 útisigur gegn Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 19. ágúst 2023 15:24
„Ef við myndum gera þetta værum við dauðir“ Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, segist ekki geta ímyndað sér hversu mikilli gagnrýni félagið þyrfti að sæta ef það myndi eyða jafn miklu í leikmenn og Chelsea hefur gert undanfarið. Fótbolti 19. ágúst 2023 14:00
Gerði Napoli að meisturum og tekur nú við ítalska landsliðinu Luciano Spalletti, fyrrverandi knattspyrnustjóri ríkjandi Ítalíumeistara Napoli, hefur verið ráðinn þjálfari ítalska landsliðsins. Fótbolti 19. ágúst 2023 12:00
Ragnar stýrir Fram út tímabilið Ragnar Sigurðsson mun stýra knattspyrnuliði Fram út yfirstandandi tímabili í Bestu-deild karla. Fótbolti 19. ágúst 2023 11:31
Messi útskýrir fögn sín Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hefur byrjað af krafti með Inter Miami og skorað 9 mörk í aðeins sex leikjum. Hann hefur fagnað þónokkuð af mörkunum á einstakan hátt og var spurður út í það. Fótbolti 19. ágúst 2023 10:45
Svíar sóttu bronsið með sigri gegn heimakonum Svíþjóð vann til bronsverðlauna á HM kvenna í knattspyrnu er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn heimakonum í Ástralíu í dag. Þetta er í fjórða sinn sem Svíar taka brons á heimsmeistaramóti. Fótbolti 19. ágúst 2023 10:01
Emil um endurkomuna: Hafði alltaf trú á sjálfum mér Sóknarmaðurinn Emil Atlason hafði alltaf trú á því að hann kæmi til baka eftir ítrekuð meiðsli. Hann blómstrar nú í Bestu deildinni í knattspyrnu og er með sjálfstraustið í botni. Íslenski boltinn 19. ágúst 2023 09:00
Eftirsóttur af Man City en sætir rannsókn vegna mögulegra brota á veðmálareglum Lucas Paquetá, miðjumaður brasilíska landsliðsins í knattspyrnu og West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, sætir nú rannsókn vegna mögulegra brota á veðmálareglum enska og Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Enski boltinn 19. ágúst 2023 07:00
Zaniolo mættur til Villa á láni Nicolò Zaniolo er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa á láni frá Galatasaray í Tyrklandi út tímabilið sem er nýhafið. Enski boltinn 18. ágúst 2023 23:30
Man United fær brasilíska landsliðskonu frá Barcelona Hin 25 ára gamla Geyse Ferreira er gengin í raðir Manchester United frá Barcelona. Hún er framherji sem hefur spilað í Brasilíu, Portúgal og Spáni til þessa á ferli sinum. Enski boltinn 18. ágúst 2023 23:01
Varamaðurinn Wood hetja Forest Nottingham Forest er komið á blað í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á nýliðum Sheffield United í kvöld. Enski boltinn 18. ágúst 2023 21:01
Bayern byrjar á sigri þar sem Kane lagði upp og skoraði Þýskalandsmeistarar Bayern München byrja tímabilið þar í landi á þægilegum 4-0 útisigri á Werder Bremen. Nýi maðurinn, Harry Kane, skoraði annað mark Bæjara eftir að hafa lagt upp fyrsta markið. Fótbolti 18. ágúst 2023 20:31
„Við hefðum aldrei getað skrifað þessa sögu“ Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason er genginn í raðir belgíska félagsins Eupen frá Íslendingaliðinu Lyngby í Danmörku. Hann segist spenntur að komast aftur í belgísku deildina. Sport 18. ágúst 2023 19:45
Orri Steinn kominn á blað í dönsku úrvalsdeildinni Framherjinn Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrra mark FC Kaupmannahafnar í 2-0 útisigri á Hvidovre í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. FCK er því áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Fótbolti 18. ágúst 2023 19:00
Þvertekur fyrir orðróma: „Ég er ekki á förum“ Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, ætlar sér að starfa út samninginn sinn við enska knattspyrnusambandið sem gildir til ársins 2025. Frá þessu greindi hún í viðtali við BBC. Fótbolti 18. ágúst 2023 17:00
Ensku ljónynjurnar fá styttu af sér fyrir utan Wembley Enska kvennalandsliðið á enn eftir að spila úrslitaleikinn á HM í fótbolta en það er þegar ljóst að þær verða gerðar ódauðlegar fyrir utan Wembley-leikvanginn í nánustu framtíð. Fótbolti 18. ágúst 2023 16:00
Rúnar Alex til Cardiff: Leitaði ráða hjá Aroni Einari Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Rúnar Alex Rúnarsson hefur gengið til liðs við enska B-deildar liðið Cardiff City á láni frá Arsenal út tímabilið. Þetta staðfestir félagið í tilkynningu á heimasíðu sinni. Fótbolti 18. ágúst 2023 13:45
Útskrifaður af sjúkrahúsi og bata hans lýst sem kraftaverki Sergio Rico, markvörður franska stórliðsins Paris Saint-Germain hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi en þar hefur hann dvalið síðan undir lok maí eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg. Fótbolti 18. ágúst 2023 13:31
Hvað á gera við stórstjörnuna sem hefur verið í banni í tveimur síðustu leikjum? Enska kvennalandsliðið í fótbolta er komið alla leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins sem fer fram á sunnudaginn. Það gerði liðið án þess að vera að vera með sinn markahæsta og stoðsendingahæsta leikmann. Fótbolti 18. ágúst 2023 13:00
Spánardrottning mætir á úrslitaleikinn en breska konungsfjölskyldan situr heima Letizia Spánardrottning ætlar ekki að missa af fyrsta úrslitaleik spænska kvennalandsliðsins á HM frá upphafi þegar liðið mætir Englendingum í Ástralíu á sunnudaginn. Fótbolti 18. ágúst 2023 11:31
Alfreð farinn til Eupen í Belgíu Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason er genginn í raðir belgíska félagsins KAS Eupen frá Íslendingaliði Lyngby í Danmörku. Fótbolti 18. ágúst 2023 10:45