

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið
B-deildarliðið Coventry City var hársbreidd frá því að fella risann Manchester United í undanúrslitum FA bikarsins. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli og framlenging dugði ekki til að skilja liðin að. United fór áfram eftir vítaspyrnukeppni.

Liverpool jafnar efsta sætið að stigum
Liverpool hefur átt í vandræðum að undanförnu. Hvernig gengur þeim er þeir heimsækja Fulham til Lundúna klukkan 15:30?

Palace menn fóru mjög illa með West Ham
Crystal Palace vann óvæntan stórsigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag og Aston Villa kom til baka á móti Bournemouth.

Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti
Everton vann gríðarlega mikilvægan botnbaráttuslag á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sá sem bjargaði starfi Sir Alex gæti ýtt Ten Hag nær dyrunum
Í augum margra er það nánast formsatriði fyrir Manchester United að tryggja sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins enda mætir liðið b-deildarliði í undanúrslitaleiknum á Wembley í dag. Spekingur BBC sér óvænt úrslit skrifuð í skýin.

Guardiola æfur út í „algjörlega óásættanlegt“ leikjaálag
Pep Guardiola fagnaði 1-0 sigri Manchester City gegn Chelsea í undanúrslitum FA bikarsins. Hann gagnrýndi enska knattspyrnusambandið þó fyrir að láta liðið spila í dag.

Skytturnar skutu sér á toppinn
Arsenal kom sér í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag með 0-2 sigri gegn Wolverhampton Wanderers.

Bikarmeistararnir leika aftur til úrslita
Manchester City mun aftur leika til úrslita ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur gegn Chelsea í undanúrslitum á Wembley í dag.

Jóhann Berg skoraði í lífsnauðsynlegum sigri Burnley
Burnley og Brentford unnu bæði mikilvæga sigra í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Brentford fjarlægðist fallsætin en Burnley mátti alls ekki tapa þessum leik.

Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár
Cole Palmer hefur slegið í gegn hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur og hann verður í sviðljósinu á móti sínum gömlu félögum í undanúrslitaleik ensku bikarsins í dag.

Fyrrverandi hirti fernu-boltann
Rússneski knattspyrnumaðurinn Andrey Arshavin átti eitt flottasta kvöldið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði fjögur mörk fyrir Arsenal á móti Liverpool fyrir fimmtán árum síðan. Menn hafa furðað sig á því hvar leikboltinn endaði.

Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea
Erling Braut Håland er tæpur fyrir leik bikarmeistara Manchester City og Chelsea. Þetta staðfesti Pep Guardiola, þjálfari Man City, á blaðamannafundi fyrir leikinn sem fram fer síðar í dag. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Garnacho búinn að biðjast afsökunar
Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, hefur beðist afsökunar á að líka við færslu á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, þar sem Erik ten Hag þjálfari liðsins var gagnrýndur.

Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna
Ann-Katrin Berger hefur ákveðið að ganga í raðir Gotham FC frá Englandsmeisturum Chelsea. Gotham fór alla leið í WNSL-deildinni í Bandaríkjunum á síðasta ári og er Berger því að fara úr einu meistaraliði í annað.

Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool
Liverpool hefur misst af tveimur titlum á stuttum tíma og um leið misst efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald
Ef þú ert á leiðinni í vítakeppni þá er gott að vita af Argentínumanninum Emiliano Martínez í markinu.

Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga
Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir er mætt aftur til æfinga hjá liði sínu West Ham United í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa eignast sitt annað barn 7. febrúar á þessu ári.

Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United
Stuðningsmenn Manchester United grínast kannski með ófarir enskra erkifjenda sinna í Evrópukeppnum þessa dagana en gera sér ef til vill ekki grein fyrir því að það hefur bein áhrif á möguleika þeirra sjálfra að vera með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“
Bastian Schweinsteiger, fyrrverandi leikmanni Manchester Untied, var meinaður aðgangur að búningsklefa aðalliðsins á æfingarsvæði félagsins eftir að Portúgalinn José Mourinho tók við stjórnartaumunum hjá félaginu. Schweinsteiger sagði sögu sína í viðtali hjá Gary Neville, fyrrverandi leikmanni og fyrirliða Manchester United, sem var auðsjáanlega mjög hissa á þeirri sögu sem Schweinsteiger hafði að segja.

Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu
Margir voru hissa að sjá markahæsta leikmann Manchester City tekinn af velli eftir venjulegan leikmtíma.

Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr
Arnór Sigurðsson, leikmaður Blackburn Rovers, viðurkennir að undanfarnar vikur hafi verið mjög erfiðar fyrir sig. Skagamaðurinn var heppinn að ekki skyldi hafa farið verr er hann lenti í fólskulegri tæklingu í mikilvægum leik Íslands og Ísrael á dögunum. Tækling sem sér til þess að hann spilar ekki meira á tímabilinu.

Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld
Liverpool er í mjög slæmri stöðu fyrir seinni leik sinn í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 3-0 tap á móti Atalanta í fyrri leiknum á Anfield. Seinni leikurinn er í kvöld.

Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum
Chelsea vann 3-0 sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Chelsea er nú jafnt Manchester City á toppi deildarinnar.

Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld myndi breyta öllu fyrir félagið.

Rifust um hver átti að taka vítið
Knattspyrnustjóri Chelsea ætti að öllu eðlilegu að vera mjög kátur og glaður eftir 6-0 sigur á Everton en annað kom á daginn í gærkvöldi. Barnalegt rifrildi leikmanna Chelsea liðsins stal senunni frá frábærri frammistöðu.

Everton áfrýjar stigafrádrætti á nýjan leik
Enska knattspyrnufélagið Everton er í slæmri stöðu fjárhagslega. Þar sem félagið hefur ekki staðist fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar voru stig dregin af liðinu. Það hefur nú mótmælt þeim frádrætti.

Palmer skoraði fernu í stórsigri Chelsea
Cole Palmer var allt í öllu hjá Chelsea sem gjörsamlega pakkaði Everton saman í leik liðanna í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Palmer skoraði fjögur í 6-0 sigri en Chelsea hefur ekki tapað deildarleik síðan 4. febrúar.

Skytturnar skutu púðurskotum og Man City heldur toppsætinu
Aston Villa gerði sér lítið fyrir og vann 2-0 útisigur á Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Sigurinn styrkir stöðu Villa í 4. sætinu á meðan Skytturnar eru núna tveimur stigum á eftir toppliði Manchester City.

Tottenham og Man United mætast í bikarúrslitum
Tottenham Hotspur og Manchester United mætast í úrslitum ensku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Tottenham lagði Leicester City í undanúrslitum á meðan Man United lagði Englandsmeistara Chelsea.

Allt lagt í sölurnar á Anfield en niðurstaðan grátlegt tap
Liverpool tapaði 0-1 fyrir Crystal Palace og missti af gullnu tækifæri til að koma sér í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.