
Rob Green fann til með Rúnari Alex
Robert Green, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands sem og Norwich City, West Ham United og Leeds United, fann til með Rúnari Alex Rúnarssyni í kvöld.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Robert Green, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands sem og Norwich City, West Ham United og Leeds United, fann til með Rúnari Alex Rúnarssyni í kvöld.
Manchester City vann öruggan 4-1 sigur á Arsenal í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld er liðin mættust á Emirates í Lundúnum.
B-deildarlið Brentford gerði sér lítið fyrir og lagði Newcastle United af velli í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld, lokatölur 1-0.
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, spilaði flestar mínútur af atvinnumönnum í fótbolta á árinu 2020. Þessar tölur ná einnig til markvarða.
Mohamed Salah hefur svarað nýjustu vangaveltunum um framtíð hans á Anfield og notaði hann samfélagsmiðla sína til þess.
Gary Neville og Jamie Carragher eru hluti af sjónvarpsþættinum Monday Night Football sem fer fram, eðlilega, á mánudagskvöldum á Sky Sports.
Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, er ekki hrifinn af dómaranum Lee Mason. Mason dæmdi leik Wolves og Burnley í gærkvöldi sem endaði með 2-1 sigri Burnley.
Þetta hafa verið erfiðir síðustu dagar fyrir knattspyrnustjóra Arsenal en Mikel Arteta segir að tölfræðin sé með Arsenal þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki dottið með liðinu.
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og nú spekingur hjá Sky Sports, skilur lítið í því að uppeldisfélag hans sé í öðru sæti deildarinnar.
Það er nóg um að vera á Stöð 2 sport og hliðarrásum í dag. Fótbolti frá þremur löndum í Evrópu ásamt HM í pílu og Lokasókninni, þætti þar sem farið er yfir allt það helsta í NFL-deildinni.
Enska knattspyrnusambandið ákvað í dag að fresta úrslitaleik deildarbikarsins fram í lok apríl í þeirri von um að áhorfendur fái að mæta á úrslitaleikinn sem fram fer á Wembley-leikvanginum í Lundúnum.
Chelsea vann 3-0 sigur á grönnum sínum í West Ham United í síðari leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Burnley vann nokkuð óvæntan 2-1 sigur á Wolverhampton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Var þetta þriðji sigur liðsins á tímabilinu en Jóhann Berg Guðmundsson er enn frá vegna meiðsla.
Ljóst er að landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson fær nokkurra daga frí eftir að upp kom hópsmit hjá liði hans Millwall í ensku B-deildinni. Hefur næstu tveimur leikjum liðsins verið frestað.
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er ekki með enska knattspyrnufélaginu Burnley er það tekur á móti Wolverhampton Wanderers í kvöld.
Í dag er nákvæmlega eitt ár liðið síðan að Carlo Ancelotti tók við knattspyrnustjóri Everton.
Roy Keane, sparkspekingur Sky Sports og fyrrum leikmaður Manchester United, er hrifinn af leikstíl Marcelo Bielsa hjá Leeds. Þetta sagði harðjaxlinn á Sky Sports eftir leik United og Leeds í gær.
Frammistaða Leeds United gegn Manchester United var til umræðu í Sportinu í dag. Strákarnir voru sammála um að leikstíll liðsins væri skemmtilegur þótt hann væri ekki alltaf árangursríkur.
Fyrrum stjóri Manchester United, Louis van Gaal, segir að Ole Gunnar Solskjær, núverandi stjóri United, lifi á fornri frægð hjá félaginu.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað vel í liði Everton eftir að hann kom á ný inn í byrjunarliðið hjá Bítlaborgarfélaginu í leiknum gegn Chelsea um síðustu helgi.
Getspakur knattspyrnuáhugamaður „sá“ fyrir 7-0 og 6-2 sigra hjá Liverpool og Manchester United um helgina og veðjaði á það. Hann hefði samt getað grætt miklu meiri pening en hann gerði.
Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og Mohamed Salah er markahæsti leikmaður deildarinnar. Egyptinn er samt ekki ánægður hjá Liverpool ef marka má orð vinar hans.
Vikan varð enn betri fyrir Liverpool og knattspyrnustjóra liðsins í gærkvöldi þegar Liverpool var sigursælt á uppskeruhátíð íþróttaársins á breska ríkisútvarpinu.
Aston Villa er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á nýliðum WBA er liðin mættust á The Hawthorns í kvöld.
Scott McTominay, miðjumaður enska stórliðsins Manchester United, skráði sig í sögubækurnar í dag er hann skoraði tvö mörk í 6-2 stórsigri United á Leeds.
Manchester United gerði sér lítið fyrir og vann 6-2 sigur á Leeds er erkifjendurnir mættust í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sextán ár.
Brendan Rodgers og lærisveinar hans gerðu góða ferð til Lundúna í dag þegar þeir heimsóttu Tottenham í toppbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni.
Það gengur hvorki né rekur hjá Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni og er liðið enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu.
Enska B-deildarliðið Watford er ekki þekkt fyrir að sýna knattspyrnustjórum mikla þolinmæði og það virðist ekkert hafa breyst eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Jurgen Klopp hefur stimplað sig inn sem sigursælasti knattspyrnustjóri Liverpool frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar.