

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Tvenna Toney sökkti Burnley
Christian Eriksen og Ivan Toney voru allt í öllu þegar Brentford lagði Burnley að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool eykur pressuna á City
Liverpool átti ekki í miklum erfiðleikum með Brighton & Hove Albion í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann leikinn 0-2 á Amex vellinum í Brighton.

Haaland nær samkomulagi við Man City
Breskir og þýskir fjölmiðlar hafa margir verið að greina frá því síðasta sólarhring að Manchester City sé búið að ná samkomulagi við norsku markamaskínuna Erling Braut Haaland.

Abramovich bannaður frá enskum fótbolta
Enska úrvalsdeildin gaf út tilkynningu rétt í þessu að deildin hafi bannað Abramovich frá frekari aðkomu að deildinni sem stjórnandi Chelsea.

Salah ætlar ekki að samþykkja nýjan samning
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, mun ekki samþykkja nýtt samningstilboð Liverpool samkvæmt félagaskipta sérfræðingnum Fabrizio Romano.

Nike mun standa við samning sinn við Chelsea
Íþróttavörurisinn Nike hefur staðfest að félagið mundi standa við gerðan samning við enska knattspyrnuliðið Chelsea. Mörg fyrirtæki hafa rift samningi sínum við félagið eftir að allar eignir Romans Abramovich, eiganda Chelsea, í Englandi voru frystar.

Bankareikningum Chelsea lokað tímabundið
Bankareikningum enska knattspyrnufélagsins Chelsea hjá Barclays-bankanum hefur verið lokað tímabundið. Er þetta enn eitt höggið sem félagið verður fyrir eftir að breska ríkisstjórnin ákvað að banna Roman Abramovich, rússneskum eiganda félagsins, að eiga í viðskiptum innan Bretlands.

Umbinn hans Salahs grenjar úr hlátri yfir ummælum Klopps
Umboðsmanni Mohameds Salah fannst ekki mikið til ummæla Jürgens Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, um samningsstöðu Egyptans koma, allavega ef marka má færslu hans á Twitter.

Liverpool og Newcastle fá mánaðarverðlaunin í ensku úrvalsdeildinni
Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle United, var í dag valinn knattspyrnustjóri febrúar í ensku úrvalsdeildinni og besti leikmaðurinn var valinn Joel Matip, miðvörður Liverpool.

Á von á svefnlausum nóttum eftir erfiða byrjun í nýju starfi
Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, á ekki von á því að sofa mikið á næstunni eftir slaka byrjun liðsins undir hans stjórn.

Segir Liverpool hafa gert það sem það geti fyrir Salah
Ákvörðunin um það hvort að Mohamed Salah framlengi samning sinn við enska knattspyrnufélagið Liverpool liggur í höndum Egyptans sem nú ætti að vita hvað Liverpool hefur að bjóða.

Hittir strákana sem beittu hann kynþáttaníði
Colin Kazim-Richards, leikmaður Derby County, ætlar að hitta unglingsstrákana sem beittu hann kynþáttaníði eftir leik gegn Nottingham Forest á síðasta tímabili.

Ten Hag verið í sambandi við leikmenn United
Erik ten Hag virðist vera farinn að búa sig undir að taka við Manchester United en hann hefur sett sig í samband við leikmenn liðsins.

Rútuferðir og ódýr hótel fyrir stjörnurnar?
Stjörnurnar í knattspyrnuliði Chelsea gætu þurft að ferðast með áætlunarflugi eða rútu og gista á ódýrum hótelum til að spila útileiki, vegna ákvörðunar bresku ríkisstjórnarinnar um að frysta eigur Romans Abramovich.

Dagný skoraði eina mark West Ham í stóru tapi
Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina mark West Ham í 4-1 tapi liðsins gegn Chelsea í Lundúnaslag ensku Ofurdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Newcastle ekki tapað í seinustu níu | Enn eitt tapið hjá Leeds
Newcastle United vann góðan 2-1 sigur gegn Southampton er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og liðið hefur nú ekki tapað deildarleik síðan fyrir jól. Þá vann Aston Villa öruggan 3-0 sigur gegn Leeds, en þeir síðarnefndu hafa tapað sjö af seinustu átta deildarleikjum sínum.

Chelsea vann öruggan sigur gegn botnliðinu
Leikmennn Chelsea létu fréttir af eiganda félagsins ekki hafa áhrif á sig er liðið heimsótti botnlið Norwich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Chelsea tók forystuna snemma leiks og vann að lokum öruggan 3-1 sigur.

Stærsti styrktaraðili Chelsea hættir stuðningi við félagið
Stærsti styrktaraðili enska knattspyrnufélagsins Chelsea, farsímafyrirtækið Three, hefur hætt stuðningi sínum við félagið, að minnsta kosti tímabundið.

Lengsta vítakeppni sögunnar
Hvorki fleiri né færri en 54 vítaspyrnur þurfti til að knýja fram sigurvegara í leik tveggja enskra utandeildarliða í gær.

Hvetur United til að nýta sér upplausnina hjá Chelsea og krækja í Tuchel
Jamie Carragher segir að forráðamenn Manchester United eigi að nýta sér ástandið í herbúðum Chelsea og fá knattspyrnustjóra liðsins, Thomas Tuchel.

Chelsea gæti misst aðalstyrktaraðilann
Aðalstyrktaraðili Chelsea, fjarskiptafyrirtækið Three, ætlar að endurskoða samstarf sitt við félagið eftir að eignir eiganda þess, Romans Abramovich, voru frystar.

Guardiola: Man. City óttast ekki ensku liðin í Meistaradeildinni
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir lið sitt ekki óttast það að mæta liði úr ensku úrvalsdeildinni þegar dregið verður í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Eignir Abramovichs frystar og salan á Chelsea í uppnámi
Ríkisstjórn Bretlands hefur fryst eignir Romans Abramovich, eiganda Chelsea, vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Abramovich ku hafa sterk tengsl við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en hefur sjálfur hafnað því.

Búist við brottrekstri og tilraun til að taka við Man. Utd
Örlög Mauricio Pochettino hjá PSG virðast endanlega ráðin eftir að liðið féll enn á ný snemma úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta, með tapinu gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum í gær.

Gerrard vill halda Coutinho
Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, óskar eftir því að félagið tryggi sér varanlega þjónustu brasilíska leikstjórnandans Philippe Coutinho.

Mér fannst Eriksen vanta faðmlag
Brentford heimsótti Norwich og vann 1-3 sigur í fallbaráttuslag um liðna helgi. Atvikið sem náði flestum fyrirsögnum úr leiknum var þó hvorki mörk eða boltatækni, heldur tækling Christian Eriksen.

Marcus Rashford sagður dottinn úr enska landsliðinu
Manchester United-framherjinn Marcus Rashford verður ekki í næsta enska landsliðshóp ef marka má upplýsingar sem hafa lekið í fjölmiðla.

„Ókei, maður er greinilega ekki lengur 22 ára“
Jón Daði Böðvarsson segir það hafa gert helling fyrir sig að byrja árið á að skora mark fyrir íslenska landsliðið, eftir að hafa ekki fengið að spila fótboltaleik í marga mánuði.

Wenger ásakaði Liverpool-manninn um að svindla
Arsene Wenger, fyrrum knattspyrnustjóri Arsenal, var allt annað en sáttur þegar hans gamli lærisveinn, Alexis Sanchez, var rekinn af velli í seinni leik Liverpool og Internazionale í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

„Eins og maður sé orðinn tíu kílóum léttari“
„Frá fyrsta degi hefur þetta verið frábært,“ segir Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður í fótbolta, sem hefur upplifað algjöran viðsnúning í sínu fótboltalífi í vetur eftir komuna í fótboltabæinn Bolton þar sem Íslendingar eru í miklum metum.