Rannsaka tengsl framboðs og stjórnar Trump við arabíuríki Helsti fjáraflari framboðs Trump var í nánum samskiptum við Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin í kosningabaráttunni og í upphafi valdatíðar forsetans. Erlent 30. júlí 2019 11:53
A$AP Rocky neitar sök við réttarhöld í Stokkhólmi Rapparinn, ásamt tveimur öðrum mönnum, er sakaður um að hafa ráðist á mann í borginni í lok júní. Erlent 30. júlí 2019 10:16
Trump skrifar undir fjárveitingu til viðbragðsaðila 11. september Bandaríkjaforseti, Donald Trump hefur undirritað frumvarp sem gerir það að verkum að heilbrigðisþjónustusjóður, sem ætlaður er viðbragðsaðilum sem komu til aðstoðar eftir hryðjuverkaárásirnar í New York þann 11. September 2001, verði aldrei uppurinn. Erlent 29. júlí 2019 23:49
Trump heldur áfram árásum á svarta leiðtoga Nú er það svartur mannréttindafrömuður og klerkur sem er skotspónn reiði forseta Bandaríkjanna. Erlent 29. júlí 2019 12:02
Yfirmaður leyniþjónustunnar hættir og Trump tilnefnir bandamann Samskipti Trump forseta og Dan Coats, leyniþjónustustjóra, hafa lengi verið stirð. Coats hefur verið tilbúinn að lýsa mati leyniþjónustunnar þó að það stangist á við orð forsetans. Erlent 29. júlí 2019 10:03
Trump sagði umdæmi þingmanns "ógeðslegt og morandi í rottum og nagdýrum“ Cummings er þingmaður Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar. Hann hefur gagnrýnt Trump harðlega í gegnum tíðina, meðal annars innflytjendastefnu ríkisstjórnar hans. Erlent 28. júlí 2019 10:41
Hæstiréttur heimilar Trump að nota ríkisfé í múrinn Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur greitt veginn fyrir uppbyggingu hins umdeilda múrs sem Donald Trump Bandaríkjaforseti vill reisa á landamærum landsins Erlent 26. júlí 2019 22:55
Handtóku aðdáanda A$AP Rocky í sænska sendiráðinu fyrir mótmæli, eignaspjöll og hótanir Rebecca Kanter, sem var handtekin í sænska sendiráðinu, er alls ekki sú eina sem hefur mótmælt því sjálfur Bandaríkjaforseti hefur undanfarna daga reynt að fá A$AP Rocky lausan úr haldi. Erlent 26. júlí 2019 11:30
Bílaframleiðendur sömdu við Kaliforníu um strangari losunarreglur Samkomulagið er ekki lagalega bindandi fyrir fyrirtækin en kemur þeim og Kaliforníu í kringum andstöðu Trump-stjórnarinnar við að ríkið setji strangari reglur um sparneytni bíla og losun þeirra. Viðskipti erlent 26. júlí 2019 10:45
Telja Rússa hafa reynt að brjótast inn í kosningakerfi allra ríkja Bandaríkjanna Leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings telur alríkisstjórnina hafa brugðist í að gera ríkjum grein fyrir alvarleika árása á kosningarnar árið 2016. Erlent 26. júlí 2019 10:12
Trump ósáttur með aðgerðaleysi Löfven í máli A$AP Rocky Bandaríkjaforseti, Donald Trump, lýsti í dag yfir vonbrigðum sínum með aðgerðaleysi forsætisráðherra Svíþjóðar, Stefan Löfven í máli rapparans bandaríska A$AP Rocky sem situr í gæsluvarðhaldi í Svíþjóð Erlent 25. júlí 2019 22:53
Hafna frumvörpum ætlað að tryggja öryggi kosninga þvert á viðvörun Mueller Niðurstaðan er sögð vekja sérstaka athygli í ljósi þess að frumvörpunum var hafnað aðeins fáeinum klukkustundum eftir að Robert Mueller, sem stýrði rannsókn á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum árið 2016, varaði þingmenn við áframhaldandi tilraunum erlendra valdhafa til að hafa áhrif á framgöngu kosninga þar í landi. Erlent 25. júlí 2019 19:44
A$AP Rocky ákærður fyrir líkamsárás í Svíþjóð Sænskur saksóknari segir að myndband af meintri árás sé alls ekki eina sönnunargagnið í málinu. Lífið 25. júlí 2019 09:07
Mueller var tregur í taumi en gagnorður um afskipti Rússa Demókrata og repúblikanar reyndu að fá Mueller til að hjálpa málstað sínum en hann þráaðist við. Harðorðastur var hann um afskipti Rússa af kosningum og vilja framboðs Trump til að taka við aðstoð. Erlent 25. júlí 2019 08:49
Epstein fannst „hálfmeðvitundarlaus“ í fangaklefa Auðkýfingurinn Jeffrey Epstein, sem m.a. er ákærður fyrir mansal og misnotkun á tugum stúlkna, fannst "hálfmeðvitundarlaus“ í fangaklefa sínum í New York í gær. Erlent 25. júlí 2019 07:48
Trump tísti um óánægju með vitnisburð Muellers Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór með rangt mál þegar hann sagði að rannsókn Roberts Mueller, sérstaks saksóknara, á Rússamálinu hafi leitt í ljós að forsetinn væri alsaklaus af ásökunum um að hann hafi hindrað framgang réttvísinnar. Erlent 25. júlí 2019 06:00
Suður-Kórea segir Norður-Kóreu hafa skotið flaugum út á haf Suður-kóresk yfirvöld hafa greint frá því að nágrannar þeirra í norðri hafi skotið tveimur flaugum út á haf frá austurströnd Norður-Kóreu. Erlent 24. júlí 2019 22:29
Robert Mueller við þingnefnd: „Forsetinn var ekki hreinsaður af sök“ Hægt er að fylgjast með framburði fyrrverandi sérstaka rannsakandans í beinni útsendingu á Vísi. Erlent 24. júlí 2019 11:56
Sérstaki rannsakandinn ber vitni í dag Ólíklegt er talið að Robert Mueller svari spurningum þingmanna með öðru en því sem kemur fram í rannsóknarskýrslu hans. Erlent 24. júlí 2019 08:23
Samþykktu að halda áfram fjárveitingu til aðstandenda og eftirlifenda árásanna 11. september Öldungadeildin samþykkti frumvarpið með 97 atkvæðum gegn tveimur. Erlent 23. júlí 2019 22:13
Lögreglumaður sem sagði að skjóta þyrfti þingkonu rekinn Alexandria Ocasio-Cortez var skotspónn níðs tveggja lögregluþjóna sem nú hefur verið vikið frá störfum. Hún er ein fjögurra þingkvenna sem Trump forseti hefur gagnrýnt linnulítið undanfarið. Erlent 23. júlí 2019 14:34
Afgönsk stjórnvöld vilja að Trump skýri ummæli um gereyðingu Trump fullyrti að hann gæti unnið stríðið í Afganistan með því að má landið af yfirborði jarðar. Hann vildi þó ekki drepa tíu milljónir manna. Erlent 23. júlí 2019 09:01
Sömdu um fjárlög og hækkun skuldaþaksins Samkomulag repúblikana og demókrata ætti að bægja frá hættunni á annarri lokun alríkisstofnana eins og varð í vetur. Erlent 23. júlí 2019 08:11
Trump segir að það séu þingkonurnar sem eigi að biðjast afsökunar á ummælum sínum Trump vakti mikla reiði fyrir viku síðan þegar hann tísti um að fjórar þingkonur Demókrataflokksins ættu að "fara aftur þangað sem þær komu frá upprunalega“ þrátt fyrir að þær séu allar bandarískir ríkisborgarar og þrjár þeirra séu fæddar í Bandaríkjunum. Erlent 21. júlí 2019 23:37
Segir Trump hafa notið rasískra hrópa stuðningsmanna sinna Ein þingkvennanna sem var skotmark rasískra ummæla Bandaríkjaforseta segir að stefna hans snúist um kynþátt og rasisma. Erlent 21. júlí 2019 11:41
Trump bauðst til að ábyrgjast A$AP Rocky persónulega Fjölmiðlafulltrúi sænska forsætisráðherrans greindi frá því að Löfven hafi í samtali sínu við Trump lagt áherslu á sjálfstæði sænska dómskerfisins og að stjórnvöld geti ekki reynt að hafa áhrif á framgöngu málsins. Erlent 20. júlí 2019 19:13
Trump gæti náð endurkjöri með lægra hlutfalli atkvæða en síðast Greining New York Times bendir til að Trump gæti náð endurkjöri jafnvel þó að hann fengi fimm prósentustigum færri atkvæði en mótframbjóðandinn á næsta ári. Erlent 20. júlí 2019 11:12
Ætlar að hringja í „hinn hæfileikaríka“ forsætisráðherra Svíþjóðar til að fá A$AP Rocky lausan Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst setja sig í samband við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, og reyna að fá bandaríska rapparann A$AP Rocky lausan úr fangelsi í Stokkhólmi. Rapparinn var handtekinn í byrjun júlí grunaður um líkamsárás. Erlent 19. júlí 2019 23:00
Hætta við að banna skordýraeitur sem er talið valda heilaskaða í börnum Umfangsmikil rannsókn bendir til þess að eitrið valdi heilaskaða í fóstrum og börnum. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna telur ekki mark takandi á rannsókninni. Erlent 19. júlí 2019 14:34
Trump tók virkan þátt í þagnargreiðslu til klámleikkonu Reuters-fréttastofan segir að gögn sem leynd hefur verið létt af bendi til þess að þáverandi forsetaframbjóðandinn hafi átt þátt í umræðum um greiðsluna þrátt fyrir að hann hafi ítrekað neitað vitneskju um hana. Erlent 19. júlí 2019 12:51