
Ráðgjafi Trump neitar sök um lygar
Roger Stone kom fyrir dómara í Washington-borg í dag. Hann er sakaður um að hafa logið að Bandaríkjaþingi um samskipti við Wikileaks og framboðs Donalds Trump.
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.
Roger Stone kom fyrir dómara í Washington-borg í dag. Hann er sakaður um að hafa logið að Bandaríkjaþingi um samskipti við Wikileaks og framboðs Donalds Trump.
Donald Trump Bandaríkjaforseti mun flytja stefnuræðu sína (e. state of the union) á þriðjudaginn í næstu viku, 5. febrúar.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virðist ekki hafa miklar áhyggjur af mögulegu forsetaframboði Howard Schultz, fyrrverandi forstjóri kaffihúsakeðjunnar Starbucks. Forsetinn segir forstjórann fyrrverandi ekki hafa kjark til þess að bjóða sig fram til forseta.
Ræðuhöfundur Trump forseta er sagður hafa sagst verða hamingjusamur ef enginn flóttamaður stigi fæti á bandaríska jörð nokkru sinni aftur.
Ný skoðanakönnun bendir til þess að kjósendur telji Trump standa sig verr en þeir bjuggust við þegar hann tók við embætti fyrir tveimur árum.
Howard Schultz segir báða stóru flokkana í Bandaríkjunum stunda hefndarstjórnmál og skoðar óháð framboð til forseta.
Roger Stone, samstarfsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta til margra ára, sagði í gær að hann myndi svara öllum spurningum Roberts Mueller, sérstaks saksóknara, sem rannsakar tengsl forsetaframboðs Trumps við rússnesk yfirvöld, af hreinskilni.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er tilbúinn til að loka þriðjungi alríkisstofnanna Bandaríkjanna á nýjan leik í febrúar, náist ekki samningur sem honum þykir ásættanlegur um byggingu múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Roger Stone var handtekinn í vikunni í tengslum við Rússarannsókn Roberts Mueller.
Margir af bandamönnum og helstu stuðningsmönnum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eru ósáttir við að forsetinn hafi gefið eftir í deilunni um vegginn og bundið endi á lengstu lokun alríkisstofnanna í sögu Bandaríkjanna, án þess að fá fjármagn til að hefja byggingu múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Roger Stone var sleppt gegn tryggingu eftir að hann var handtekinn í morgun. Hann er sakaður um að hafa logið um samskipti við Wikileaks og Trump-framboðið.
Bráðabirgðasamkomulag hefur náðst um að opna alríkisstofnanir aftur tímabundið.
Roger Stone, náinn bandamaður og ráðgjafi Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur verið handtekinn í Flórída vegna Rússarannsóknar Robert Mueller.
Þingmenn Repúblikanaflokksins sögðu Mike Pence, varaforseta, að lausn þyrfti að finnast sem fyrst.
Hvíta húsið er sagt undirbúa yfirlýsingu um neyðarástand á landamærunum til að gera Trump kleift að hefja framkvæmdir við múrinn.
60 þingmenn þarf til að ná öðru hvoru frumvarpinu í gegn um deildina. Hvorugur flokkurinn hefur slíkan þingstyrk.
Forseti Venesúela gefur bandarískum erindrekum þrjá sólahringa til að koma sér úr landi.
Fyrrverandi lögmaður Trump forseta átti að koma fyrir þingnefnd í byrjun næsta mánaðar. Hann segist þurfa að setja öryggi fjölskyldu sinnar í fyrsta sæti.
Stjórnarandstaðan vill nýta skriðþunga mótmælanna til að taka völdin af Madúró.
Forsetinn og ráðgjafar hans eru, samkvæmt heimildum fjölmiðla í Bandaríkjunum, að íhuga að meina Guiliani að fara í viðtöl við fjölmiðla.
Til stendur að greiða atkvæði um tvö frumvörp sem gætu skorið á hnútinn og opnað lokaðar alríkisstofnanir. Hvorugt þeirra er líklegt til að hljóta samþykki þingsins.
Rétturinn aflétti lögbanni á stefnu forsetans sem bannar transfólki að þjóna í hernum.
Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Kamala Harris tilkynnti í dag að hún bjóði sig fram til forseta Bandaríkjanna. Hinn 54 ára gamli demókrati hefur þótt ein helsta vonarstjarna demókrata undanfarin ár.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur reynst grínþættinum Saturday Night Live endalaus uppspretta gríns á undanförnum árum. Engin breyting varð á því í fyrsta þætti ársins sem sýndur var í Bandaríkjunum á laugardaginn.
Demókratar þykja ekki líklegir til þess að samþykkja nýjasta útspil Trump í baráttunni um landamæramúrinn.
Bush sendi leiðtogum Bandaríkjanna sneið á Instagram í dag.
Embætti sérstaks saksóknara bandaríska dómsmálaráðuneytisins, sem Robert Mueller gegnir, hefur svarað umfjöllun bandaríska vefmiðilsins Buzzfeed News um lygar Michael Cohen og sagt umfjöllunina vera ranga.
BuzzFeed News segir Trump hafa skipað lögmanni sínum að ljúga að þinginu. Tilnefndur dómsmálaráðherra sammála því að slíkt teldist hindrun á framgangi réttvísi. Bæði dómsmála- og upplýsingamálanefnd þingsins ætla að rannsaka.
Tveir nafnlausir heimildamenn fréttastofu Buzzfeed News segja Bandaríkjaforseta, Donald Trump, hafa skipað fyrrum lögmanni sínum , Michael Cohen að fremja meinsæri með því að ljúga að þingnefnd um viðskipti Trump í Rússlandi í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2016.
Donald Trump bandaríkjaforseti og Kim Jong Un leiðtogi Norður-Kóreu munu funda í annað skiptið í lok febrúar.