

CrossFit
Fréttir af keppendum og mótum í CrossFit.

Katrín Tanja: Ekki verið hlustað á okkur
Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir er ein þeirra sem hafa minnst serbneska CrossFit mannsins Lazar Dukic. Hún er líka í hópi þess fólks í CrossFit fjölskyldunni sem hefur bent á þá staðreynd að íþróttafólkið hafi lengi haft áhyggjur af öryggi sínu í krefjandi keppni við hættulegar aðstæður.

Sorgmædd Sara Sigmunds tjáir sig um andlát Lazar Dukic
Sara Sigmundsdóttir, ein helsta afrekskona Íslands í CrossFit, minntist Lazar Dukic sem lést á heimsleikunum, í færslu á Instagram-síðu sinni.

Anníe Mist: Íþróttin sem við elskum öll brást Lazar
Íslenska CrossFit goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir skrifaði minningarorð um Lazar Dukic. Hún hefur eins og fleiri í CrossFit heiminum, átt mjög erfitt með að meðtaka þennan hryllilega atburð þegar Dukic drukknaði í fyrstu grein heimsleikanna á fimmtudaginn var.

„Í lokin var ákvörðunin bara það sem CrossFit samtökin vildu sjálf“
Eiginkona eins keppandans á heimsleikunum í CrossFit hefur gagnrýnt hvernig staðið var að ákvörðuninni um að halda keppni áfram á heimsleikunum. Það var gert þrátt fyrir að einn keppandi hafi drukknað í fyrstu grein leikanna.

Aðeins fimmtíu metra frá marki þegar hann drukknaði
Rudy Trevino var eitt af vitnunum er Lazar Dukic drukknaði í fyrstu grein heimsleikanna í CrossFit.

Búið að safna yfir 58 milljónum fyrir fjölskyldu Dukic
Serbinn Lazar Dukic drukknaði í fyrstu grein á heimsleikunum í CrossFit á fimmtudaginn og fljótlega fór í gang söfnun fyrir kærustu hans og fjölskyldu.

Björgvin Karl endaði sextándi á heimsleikunum í CrossFit
Bandaríkjamaðurinn James Sprague og ástralska konan Tia-Clair Toomey urðu um helgina heimsmeistarar í CrossFit.

Keppni heldur áfram á heimsleikunum: „Það er ekkert allt íþróttafólkið andlega tilbúið“
Heimsleikarnir í CrossFit hófust á fimmtudag en keppni var skyndilega hætt þegar Lazar Ðukic drukknaði. Umdeild ákvörðun var svo tekin í gær um að halda keppni áfram yfir helgina. Umboðsmaðurinn Snorri Barón segir íþróttafólk ekki allt andlega tilbúið til þess.

Ríkjandi heimsmeistarar í CrossFit draga sig úr keppni
Ríkjandi heimsmeistarar í CrossFit, bæði í flokki karla og kvenna, hafa ákveðið að draga sig úr keppni á heimsleikunum í ár í kjölfar andláts Lazar Đukić á leikunum í gær.

Snorri Barón: Keppnin heldur áfram með blessun fjölskyldu Lazars
„Það undirbýr sig enginn fyrir þetta, þetta er algjörlega óhugsandi að einhver láti lífið í keppni,“ segir umboðsmaðurinn Snorri Barón Jónsson, sem staddur er í Texas á heimsleikunum í CrossFit þar sem keppandinn Lazar Đukić drukknaði í gær.

Heimsleikarnir halda áfram þrátt fyrir fráfall Dukic
Þrátt fyrir að keppandi á heimsleikunum í CrossFit, Lazar Dukic, hafi látist í gær halda leikarnir áfram.

Katrín Tanja minnist Dukic: „Sorglegra en orð fá lýst“
Katrín Tanja Davíðsdóttir, fyrrverandi heimsmeistari í CrossFit, minnist Lazar Dukic, sem lést á heimsleikunum, í færslu á Instagram.

Söfnun hafin fyrir fjölskyldu Dukic
Söfnun er hafin fyrir fjölskyldu Lazar Dukic sem lést á heimsleikunum í CrossFit í dag. Dukic drukknaði þegar fyrsta keppnisgrein dagsins fór fram.

Mikil viðbrögð eftir atvikið hræðilega á heimsleikunum
Forsvarsmenn heimsleikanna í CrossFit fá mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir dauðsfall keppanda á leikunum í dag. Annie Mist Þórisdóttir hefur sent fjölskyldu hins látna samúðarkveðjur.

Keppandi á heimsleikunum í CrossFit drukknaði í keppni
Forsvarsmenn heimsleikana í CrossFit hafa staðfest að keppandi hafi fundist látinn eftir að hafa drukknað í einni af greinum dagsins. Leit hafði staðið yfir eftir að keppandinn skilaði sér ekki yfir endalínuna í sundhluta greinarinnar.

Ætla að ameríkuvæða „Húsafellshelluna“ á þessum heimsleikum
Það styttist í heimsleikana í CrossFit og að venju hafa lekið út upplýsingar um hvaða og hvernig greinar bíða besta CrossFit fólks heims í baráttunni um heimsmeistaratitilinn í ár.

Má ekki koma til Bandaríkjanna og missir því af heimsleikunum
Rússinn Ilya Makarov fékk óvænt keppnisrétt á heimsleikunum í CrossFit á dögunum vegna lyfjahneykslis mótherja hans en ekkert verður þó að því að hann keppi á leikunum.

Snorri um upphaf sitt og Söru: „Væflaðist inn á skrifstofu hjá mér“
Umboðsmaðurinn Snorri Barón Jónsson er gríðarlega þekktur innan CrossFit-heimsins, allavega hér á landi. Hann segir upphafið að því ævintýri megi rekja til ársins 2016 þegar Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir „væflaðist inn á skrifstofu“ hjá honum.

Guðbjörgu boðið á CrossFit mót í Egyptalandi
Íslenska CrossFit konan Guðbjörg Valdimarsdóttir fékk boð um að keppa á CrossFit mótinu Combat Games sem verður haldið í Egyptalandi í september.

Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn
Það styttist í heimsleikana í CrossFit sem að þessu sinni fara fram í Texas fylki í Bandaríkjunum.

Féll á lyfjaprófi og lið hennar fær ekki að keppa á heimsleikunum
Carla Cornejo, fyrirliði CrossFit Complex Wodex liðsins, gerði liðsfélögum sínum mikinn óleik og sá til þess að hún og liðsfélagarnir fá ekki að upplifa drauminn sinn að keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár.

Var kominn inn á heimsleikana í CrossFit en féll á lyfjaprófi
Það eru ekki góðar fréttir af undanúrslitamóti Asíu fyrir heimsleikanna í CrossFit því í ljós kom að þrír höfðu svindlað í keppninni.

Rödd CrossFit fær ekki lengur að lýsa heimsleikunum
CrossFit samtökin tóku stóra ákvörðun á dögunum þegar ákveðið var að reka frægasta lýsanda íþróttarinnar.

„Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“
Harpa Lind átti við mikla þreytu að stríða ásamt því að hún fór í liðþófa aðgerð árið 2021 en með tilkomu Natures Aid hefur líðan í líkamanum verið betri til muna.

„Markmiðið klárlega að vinna heimsleikana“
Bergrós Björnsdóttir stefnir hraðbyri í að verða næsta stjarna Íslands í CrossFit. Hún stefnir langt, ætlar sér að verða atvinnumaður í íþróttinni, og hefur gengið í gegnum viðburðaríka mánuði upp á síðkastið.

Engin dóttir í fyrsta sinn í sextán ár
CrossFit staðreyndasíðan Known & Knowable vekur á athygli á fjarveru íslenskra CrossFit kvenna á heimsleikunum í haust.

Vinalegi risinn í CrossFit heiminum er frá Íslandi
Íslendingar munu aðeins eiga einn keppanda í meistaraflokki á heimsleikunum í CrossFit í ár sem er Björgvin Karl Guðmundsson en það verður samt annar Íslendingur með mikið undir á leikunum.

Katrín Tanja á skurðarborðið: Ég er svo stressuð
Katrín Tanja Davíðsdóttir varð að hætta keppni á miðju CrossFit tímabili vegna meiðsla og nú er ljóst að hvíldin er ekki nóg.

Gat ekki gengið fyrir nokkrum dögum en vann síðan sögulegt silfur á HM
Hin sautján ára gamla Bergrós Björnsdóttir varð um helgina fyrst Íslendinga til að komast á verðlaunapall á heimsmeistaramóti í ólympískum lyftingum og það þrátt fyrir að vera á hækjum aðeins nokkrum dögum fyrr.

Tileinkar látnum vini sínum sögulegan árangur: „Bjarki, þetta var fyrir þig“
Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson varð á dögunum fyrsti maðurinn í sögu CrossFit íþróttarinnar sem nær að tryggja sig inn á ellefu heimsleika í röð.