Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir. Erlent 12. júlí 2021 12:32
Jones úr Sex Pistols syrgir tapið með tilfinningaþrungnum blús Steve Jones, gítarleikari pönksveitarinnar Sex Pistols, syrgði tap Englendinga gegn Ítalíu á EM í gær eins og margir samlandar hans hafa líklega gert. Jones birti myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hann spilar tilfinningaþrunginn blús á gítarinn inni á baðherbergi heima hjá sér. Lífið 12. júlí 2021 11:43
Forsíður ensku blaðanna eftir tapið í úrslitaleik EM: Svekkelski, tár fyrir hetjurnar og stolt ljónanna Tapið sára fyrir Ítalíu var að sjálfsögðu áberandi á forsíðum ensku blaðanna í morgun. Fótbolti 12. júlí 2021 09:00
Kókaín fyrir hundruð milljóna á floti við Englandsstrendur Talsvert magn kókaíns fannst í pokum við strendur Austur-Sussex í Englandi. Talið er að söluandvirði efnisins sé rúmlega 340 milljónir íslenskra króna. Erlent 12. júlí 2021 07:42
Strípalingur á Wembley: „Þyrftum eiginlega að hafa Óla Kristjáns á teikniborðinu“ Strípalingur komst inn á völlinn á Wembley í gærkvöld á meðan úrslitaleikur Englands og Ítalíu stóð yfir og sá gat hlaupið töluvert um áður en öryggisverðir sneru hann niður. Farið var yfir atvikið í EM í dag eftir leik gærkvöldsins sem Ítalir unnu eftir vítakeppni. Fótbolti 12. júlí 2021 07:01
Sjáðu mörkin, vítakeppnina og bikarinn á loft Ítalía varð í kvöld Evrópumeistari karla í fótbolta í annað sinn eftir 3-2 sigur á Englandi í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli liðanna á Wembley í Lundúnum. Mikil dramatík var í leiknum. Fótbolti 11. júlí 2021 23:30
Vann Opna skoska eftir bráðabana Ástralinn Min Woo Lee fagnaði sigri á Opna skoska meistaramótinu í golfi í dag eftir gríðarjafna keppni. Þrír kylfingar voru jafnir á toppnum og bráðabana þurfti til að útkljá úrslit mótsins. Golf 11. júlí 2021 18:30
Reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn Allt að hundrað manns ruddu sér leið í gegnum vegatálma við Wembley-leikvanginum og reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn sjálfan. Úrslitaleikur Evrópumótsins milli Englands og Ítalíu fer fram á vellinum í kvöld en fólkið mun hafa reynt að ryðja sér leið inn eftir klukkan fimm í dag. Erlent 11. júlí 2021 18:01
Enska knattspyrnusambandið sektað vegna hegðunar stuðningsmanna Enska knattspyrnusambandið hefur verið sektað um 30.000 evrur vegna hegðunar stuðningsmanna enska landsliðsins í undanúrslitaleik liðsins gegn Danmörku. Fótbolti 10. júlí 2021 14:16
Fyrrum framherji enska landsliðsins látinn Paul Mariner, fyrrum framherji enska landsliðsins, er látinn. Mariner, sem var 68 ára, lést í faðmi fjölskyldunnar eftir stutta baráttu við krabbamein. Fótbolti 10. júlí 2021 09:31
Þúsund Ítalir fá að fljúga til Lundúna á úrslitaleikinn Þrátt fyrir varnaðarorð ferðamálaráðherra Bretlands þá munu þúsund Ítalir fá að fljúga til Lundúna og mæta á Wembley á sunnudagskvöld, í von um að sjá sína menn landa Evrópumeistaratitlinum með sigri á Englendingum. Fótbolti 9. júlí 2021 16:30
Couzens játar að hafa myrt Everard Breski lögreglumaðurinn Wayne Couzens hefur játað að hafa myrt Söruh Everard í mars síðastliðnum Couzens rændi Everard, þegar hún var að ganga heim frá vini sínum í Clapham þann 3. mars, áður en hann keyrði með hana í burt á bíl sem hann hafði tekið á leigu. Erlent 9. júlí 2021 13:01
Heimilisofbeldi í Englandi eykst um 38 prósent þegar enska liðið tapar Umfangsmikil herferð gegn heimilisofbeldi hefur farið af stað í Englandi vegna þátttöku Englands á Evrópumeistaramótinu í fótbolta. Englandi hefur gengið nokkuð vel í keppninni og mun leika til úrslita gegn Ítalíu á mótinu á sunnudaginn næsta. Erlent 9. júlí 2021 10:16
Johnson kallar herlið Bretlands í Afganistan heim Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að herlið Bretlands í Afganistan verði fljótlega kallað aftur heim. Breskar hersveitir hafa verið með viðveru í Afganistan í tuttugu ár, frá hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnana árið 2001. Erlent 8. júlí 2021 13:53
Heita því að vista Assange ekki við verstu aðstæður og leyfa honum að afplána í Ástralíu Bandarísk stjórnvöld hafa heitið því að vista Julian Assange ekki við verstu aðstæður ef hann fæst framseldur frá Bretlandi. Þá yrði honum heimilað að afplána mögulegan dóm í heimalandi sínu, Ástralíu. Erlent 8. júlí 2021 10:37
Öryggismál á fæðingardeildum enn í ólestri Ef tíðni andvana fæðinga og nýburadauða væri sú sama í Bretlandi og Svíþjóð, myndu þúsund færri börn deyja í Bretlandi á ári hverju. Þetta eru niðurstöður þingnefndar um aðbúnað og öryggi á breskum fæðingardeildum. Erlent 6. júlí 2021 07:10
Fimmtán ára drengur dæmdur fyrir morðið á tólf ára vini sínum Fimmtán ára drengur hefur verið sakfelldur í Bretlandi fyrir að myrða tólf ára vin sinn. Roberts Buncis fannst látinn þann 12. desember síðastliðinn nærri bænum Boston í Lincoln-skíri á austurströnd Englands. Erlent 5. júlí 2021 23:16
„Verðum að læra að lifa með vírusnum“ Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag nýja áætlun ríkisstjórnar hans um það að „lifa með Covid-19“ en sú áætlun snýr að því að fella niður sóttvarnaaðgerðir og félagsforðun á Englandi. Niðurfellingarnar munu hefjast þann 19. júlí. Erlent 5. júlí 2021 16:49
Ræða hvort taka skuli tillit til tilfinninga dýra Breskir þingmenn rökræða nú um hvort að rétt sé að taka tillit til tilfinninga dýra þegar menn setja sér lög og reglur. Frumvarp þessa efnis er sagt ganga enn lengra en Evrópulög sem eru talin ganga hvað lengst í þá átt í heiminum. Erlent 5. júlí 2021 13:24
Vísindamenn uggandi yfir afléttingaráætlun stjórnvalda Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun í dag tilkynna um afléttingar á öllum sóttvarnaraðgerðum sem taka munu gildi 19. júlí næstkomandi. Vísindamenn hafa fordæmt fyrirætlanir stjórnvalda, þar sem kórónuveirufaraldurinn virðist vera í vexti. Erlent 5. júlí 2021 07:06
Prinsarnir afhjúpuðu styttu af Díönu prinsessu Bretaprinsarnar Vilhjálmur og Harry afhjúpuðu styttu af móður sinni Díönu prinsessu af Wales við hátíðlega athöfn í garði Kensington-hallar. Erlent 1. júlí 2021 14:54
Afhjúpa styttu af Díönu í tilefni af sextíu ára fæðingarafmælinu Bretaprinsarnir Vilhjálmur og Harry munu síðar í dag afhjúpa styttu af móður sinni, Díönu, prinsessu af Wales, í garði Kensington-hallar. Díana, sem lést í París í ágúst 1997, hefði orðið sextug á þessum degi hefði henni enst aldur til. Erlent 1. júlí 2021 09:56
Óttast að þúsundir gætu misst réttindi í Bretlandi Frjálsri för Evrópubúa í Bretlandi og Breta í Evrópu lýkur á morgun. Félagasamtök í Bretlandi óttast að þúsundir evrópskra borgara sem búa gætu misst ýmis réttindi því þeir átta sig ekki á að þeir þurftu að sækja um áframhaldandi dvöl í síðasta lagi í dag. Erlent 30. júní 2021 10:10
FFP3 grímurnar veittu mun meiri vörn en skurðstofugrímurnar Vísindamenn í Bretlandi hafa komist að því að svokallaðar FFP3 grímur veita umtalsvert meiri vörn en hefðbundar skurðstofugrímur. Samtök heilbrigðisstarfsmanna í landinu hafa löngum kallað eftir því að fá betri verndarbúnað. Erlent 29. júní 2021 07:07
Mikill eldur á Elephant & Castle stöðinni í London Slökkvilið í London hefur verið kallað út vegna mikils elds á Elephant & Castle lestarstöðinni í suðausturhluta borgarinnar. Erlent 28. júní 2021 14:41
Leynileg skjöl breska varnarmálaráðuneytisins fundust á stoppistöð Varnarmálaráðuneyti Bretlands rannsakar nú hvernig trúnaðarskjöl um aðgerðir breska hersins týndust í síðustu viku. Þau fundust aftur á strætóstoppistöð í Kent síðasta þriðjudag. Erlent 27. júní 2021 10:28
Sajid Javid snýr aftur í bresku ríkisstjórnina Sajid Javid, fyrrverandi fjármálaráðherra og innanríkisráðherra Bretlands, verður næsti heilbrigðisráðherra eftir að Matt Hancock sagði af sér því embætti. Erlent 27. júní 2021 08:29
Segir af sér fyrir að brjóta sóttvarnareglur við framhjáhald Matt Hancock hefur sagt af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands. Breskir miðlar birtu í vikunni myndir af ráðherranum og samstarfskonu hans þar sem þau sjást faðmast og kyssast. Erlent 26. júní 2021 18:31
Með virkt smit í tíu mánuði, lá sjö sinnum inni og greindist 42 sinnum jákvæður Dave Smith á heldur óskemmtilegt met; hann er sá sem hefur mælst með virkt kórónuveirusmit í lengstan tíma. Sýkingin varði í meira en 290 daga, næstum tíu mánuði. Smith lagðist sjö sinnum inn á sjúkrahús og mældist jákvæður í 42 prófum. Erlent 24. júní 2021 14:22
Hlutfall minnihlutahópa meðal starfsmanna drottningar 8,5 prósent Breska krúnan hefur í fyrsta sinn upplýst um hlutfall minnihlutahópa sem starfa fyrir konungsfjölskylduna. Hlutfallið er 8,5 prósent en stefnt er að því að bæta það og ná 10 prósentum fyrir árslok 2022. Erlent 24. júní 2021 12:28