
Fyrsta tap KR í úrslitakeppninni
KR tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í úrslitakeppni Iceland Express deild karla er liðið tapaði í Grindavík í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn, 100-88.
KR tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í úrslitakeppni Iceland Express deild karla er liðið tapaði í Grindavík í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn, 100-88.
"Páll er auðvitað fjarri því að vera orðinn góður, en við notum hann eitthvað í kvöld og reynum að fá eitthvað frá honum," sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur þegar Vísir spurði hann út í heilsufar fyrirliðans Páls Axels Vilbergssonar.
"Það þýðir ekkert annað en að gefa allt í þetta og taka leikinn á eftir," sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur í samtali við Vísi þegar hann var spurður út í annan leik liðsins gegn KR í lokaúrslitunum í kvöld.
"Tíminn líður voðalega hægt núna og maður er bara að byrja eftir að þetta fari að byrja," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, þegar Vísir spurði hann út í leik kvöldsins.
Daníel Rúnarsson, ljósmyndari hjá Fréttablaðinu fór nýjar leiðir við að mynda fyrsta leik KR og Grindavíkur í lokaúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta sem fram fór í DHL-Höllinni á laugardaginn.
Það dugði ekki Grindvíkingum að Nick Bradford skoraði 38 stig á móti KR í fyrsta leik lokaúrslita Iceland Express deildar karla í DHL-Höllinni í gær. Nick varð aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora svona mikið í lokaúrslitum án þess að dugði til sigurs.
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, átti stórleik á báðum endum vallarsins þegar KR vann fyrsta leikinn á móti Grindavík í lokaúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta í DHL-Höllinni í kvöld.
„Við ætluðum að byrja leikinn af miklu meiri krafti en þetta spilaðist líka betur fyrir okkur þegar menn höfðu engu að tapa," sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur eftir 88-84 tap fyrir KR í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.
KR vann 88-84 sigur á Grindavík í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. KR var með stórt forskot í seinni hálfleik en var nærri því búið að glutra því niður í lokin.
Fimm Grindvíkingar hafa spilað flesta leiki í lokaúrslitum af þeim leikmönnum sem taka þátt í úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Einvígið hefst í DHL-Höllinni klukkan 16.00 í dag.
Flestir leikmenn KR og Grindavík í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla hafa kynnst því að vera Íslandsmeistarar en það eru þó þrjár undantekningar meðal þeirra leikmanna sem hafa spilað í meira en 40 mínútur í úrslitakeppninni í ár.
Þrír leikmenn KR og Grindavík í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla hafa aldrei tapað í lokaúrslitum. Þetta eru þeir Fannar Ólafsson hjá KR og Grindvíkingarnir Arnar Freyr Jónsson og Nick Bradford. Úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur hefst í DHL-Höllinni klukkan 16.00 í dag.
"Ég var ekki lengi að hugsa mig um af því mér fannst þetta svo ofboðslega skemmtilegt," sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar, sem í gær framlengdi samning sinn við félagið um tvö ár.
Karfan.is birti skemmtilegt og vel heppnað aprílgabb á heimasíðu sinni í gær þegar sagt var að Einar Árni Jóhannsson væri tekinn við liði Snæfells. Mikið var lagt í fréttina og meira segja birt stutt viðtöl við bæði Einar og Sæþór Þorbergsson formann körfuknattleiksdeildar Snæfells.
"Ég held að heilt yfir hafi betra liðið unnið þessa seríu," sagði Hlynur Bæringsson, spilandi þjálfari Snæfells, eftir að hans menn féllu úr leik í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar fyrir Grindavík í kvöld.
"Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið smá grís," sagði Helgi Jónas Guðfinnsson hjá Grindavík í samtali við Stöð 2 Sport þegar hann var spurður út í ævintýralegt skot sem hann setti niður í lok þriðja leikhlutans.
Það verða KR og Grindavík sem leika til úrslita í Iceland Express deild karla í körfubolta. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Grindavík skellti Snæfelli 85-75 í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum.
Fjölnismenn tryggðu sér í gær sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta með öruggum sigri á Val í öðrum leik liðanna í lokaúrslitum.
Fjölnir úr Grafarvogi er komið aftur á meðal þeirra bestu í körfuboltanum á Íslandi. Lið þess vann Val í kvöld 96-77 og vann einvígið við Hlíðarendapilta um laust sæti í Iceland-Express deildinni þar með 2-0.
Hlynur Bæringsson, leikmaður og annar þjálfara Snæfells, var vitanlega ánægður með sigur sinna manna á Grindavík í dag.
Snæfell vann í dag sigur á Grindavík, 104-97, í tvíframlengdum þriðja leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deild karla. Þar með minnkaði forysta Grindavíkur í rimmunni í 2-1 og liðin mætast í fjórða leik í Stykkishólmi á þriðjudaginn.
Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, setti met í sögu Íslandsmóts karla í körfubolta, þegar hann lék allar 60 mínúturnar í fjórframlengdum leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld.
„Ég er eiginlega hálforðlaus eftir þennan leik. Þessi leikur reyndi á hjartað, þolrifin og allan pakkann. Sem betur fer höfðum við úthaldið til þess að klára þetta," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, sigurreifur eftir sigurinn ótrúlega gegn Keflavík í kvöld.
„Þetta var bara geðveiki. Ég meina fjórar framlengingar. Ég hef aldrei lent í öðru eins," sagði KR-ingurinn Jakob Örn Sigurðarson úrvinda en brosmildur eftir líklega ótrúlegasta körfuboltaleik á Íslandi frá upphafi.
„Þetta er alveg ótrúlega svekkjandi og ég trúi þessu varla enn. Þetta var fáranlegt," sagði Bandaríkjamaðurinn í liði Keflavíkur, Jesse Rosa, eftir leikinn en hann var í losti þegar Vísir hitti á hann.
Það þurfti fjórar framlengingar til að fá sigurvegara í leik KR og Keflavíkur í kvöld. Maraþonleikur af bestu gerð og þvílíkur leikur.
Íslandsmeistarar Keflavíkur eiga það á hættu að vera sópað út úr úrslitakeppninni í kvöld þegar þeir heimsækja KR-inga í DHL-Höllina. KR er 2-0 yfir og kemst í lokaúrslitin með sigri í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15
„Ég veit ekki með félaga mína en ég er algjörlega tilbúinn fyrir þennan slag í kvöld. Við ætlum okkur að klára þetta. Það er ekkert annað í boði," sagði KR-ingurinn Jón Arnór Stefánsson við Vísi.
„Við erum með bakið upp við vegg og stolt okkar er líka undir. KR-ingar munu ekki labba yfir okkur í kvöld. Það er alveg klárt mál. Þetta verður stríð í kvöld," sagði Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson ákveðinn við Vísi áðan.
„Ástandið var orðið þannig að hann var orðinn baggi á okkur í stað þess að vera styrkur. Það var ekki hægt að una lengur við óbreytt ástand og þess vegna ákváðum við að reka hann. Við teljum okkur eiga meiri möguleika án hans gegn Grindavík en með honum," sagði Hlynur Bæringsson, annar þjálfari Snæfells, um uppsögn Slobodan Subasic hjá Snæfelli.