

„Þetta er hundrað prósent afgreiðsla. Þetta er viljandi,“ sagði Baldur Sigurðsson um magnað mark Andra Rúnars Bjarnasonar fyrir Vestra í sigrinum gegn Fram í Bestu deildinni í fótbolta.
Í Stúkunni í gær var farið yfir leik HK og Fylkis um helgina sem endaði með 2-2 jafntefli og féll Fylkir í kjölfarið úr efstu deild. HK berst enn þá fyrir lífi sínu í deildinni og verður erfitt fyrir liðið að bjarga sér.
Stjarnan hefur fengið hinn 25 ára gamla markvörð Aron Dag Birnuson til sín en hann hefur síðustu fjögur ár varið mark Grindavíkur í Lengjudeildinni.
Í Stúkunni, uppgjörsþætti Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi, var glæsimark Emils Atlasonar, framherja Stjörnunnar, fyrir aftan miðju gegn Víkingi Reykjavík tekið fyrir og var Atli Viðar Björnsson, einn af sérfræðingum þáttarins, klár á því að markið væri langbesta mark sumarsins sem og síðustu þriggja til fimm ára í efstu deild.
Það varð allt vitlaust undir lok leiks HK og Fylkis í Bestu deildinni í fyrrakvöld, þegar HK tókst að jafna metin mínútu eftir uppgefinn uppbótartíma. Markið sendi Fylki niður um deild. Sérfræðingar Stúkunnar voru ekki alveg sammála um réttmæti þess að lengja uppbótartímann.
Gylfi Þór Sigurðsson var ekki með Val í leiknum gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudag en var hins vegar mættur á æfingu A-landsliðs Íslands sem undirbýr sig nú fyrir leik gegn Wales í Þjóðadeildinni síðar í vikunni.
Barátta Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn er áfram hnífjöfn eftir leikina í þriðju síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Mörkin úr leikjum þeirra má nú sjá á Vísi.
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var sáttur með leik sinna manna er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Breiðabliki í 25. umferð Bestu-deildar karla í kvöld, þrátt fyrir að Valsmenn hafi í tvígang misst frá sér forystuna.
„Þetta er svekkelsi. Mér fannst við spila frábæran leik,“ sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Val í 25. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.
Davíð Ingvarsson skoraði bæði mörk Breiðabliks er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Val í 25. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Úrslitin þýða að Breiðablik og Víkingur eru enn jöfn að stigum á toppi deildarinnar.
Fylkir gerði 2-2 jafntefli gegn HK í Kórnum og eru fallnir úr efstu deild. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var virkilega ósáttur með jöfnunarmark HK og staðfesti einnig að hann verði ekki með liðið á næsta tímabili.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var allt annað en ánægður þegar HK jafnaði undir lok leiks liðanna í kvöld. Hann fékk að launum reisupassann og hans menn fallnir niður um deild.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var eðlilega ánægður að leik loknum á Akureyri í dag þar sem hans menn unnu 4-0 sigur á KA í Bestu deild karla. KR nú unnið tvo leiki í röð og með markatöluna 11-1 í leikjunum tveimur.
Víkingur og Stjarnan skildu jöfn, 2-2, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 25. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Óskar Örn Hauksson jafnaði metin fyrir Víking á lokamínútunni í uppbórtartíma seinni hálfleiks.
HK og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í spennutrylli. Allt benti til þess að Fylkir myndi klára þetta en Brynjar Snær Pálsson jafnaði í uppbótartíma og Fylkir er fallið. Uppgjör og viðtöl væntnaleg.
Breiðablik gerði 2-2 jafntefli við Val líkt og Víkingur gerði 2-2 jafntefli við Stjörnuna svo staðan er óbreytt á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu þegar það eru tvær umferðir eftir.
„Þetta var mjög sætt, sérstaklega í ljósi þess að við fengum á okkur svona heldur slæmt mark í byrjun. Gott að koma til baka og vinna þetta örugglega,“ sagði Árni Marínó, markmaður ÍA, eftir 4-1 endurkomusigur Skagamanna gegn FH.
ÍA lenti undir á fyrstu mínútu gegn FH en sneri leiknum sér í hag með glæsibrag og vann 4-1 sigur. Skagamenn eru nú aðeins tveimur stigum frá þriðja sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.
KA tók á móti KR á Akureyri í dag en fyrir leik voru gestirnir enn í fallhættu á meðan Akureyringar sátu í efsta sæti neðri helmings Bestu deildarinnar. KR-ingar mættu fullir sjálfstrausts inn í leikinn og unnu sannfærandi 0-4 sigur gegn lúnum KA-mönnum.
Viðar Örn Kjartansson hefur tekið betri vítaspyrnur á ferli sínum en hann gerði í leik KA og KR í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis í dag.
Fylkir berst fyrir tilverurétti sínum í Bestu deild karla er liðið sækir HK heim í Kórinn seinni partinn í dag.
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks, segir sína menn klára í slaginn fyrir stórleik kvöldsins við Val á Kópavogsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Kvennalið sömu félaga mættust í gær þar sem Breiðablik stóð uppi sem Íslandsmeistari.
Vestri steig stórt skref í átt að því að halda sæti sínu í Bestu deild karla með 2-4 sigri á Fram í Úlfarsárdalnum í gær. Andri Rúnar Bjarnason skoraði þrjú mörk fyrir Vestramenn og lagði upp eitt.
Vestri vann 2-4 útisigur gegn Fram. Þetta var annar sigur Vestra í röð og Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra var ánægður með sigurinn og þá staðreynd að þetta var hans fyrsti sigur gegn Fram.
Vestri vann 2-4 útisigur gegn Fram. Andri Rúnar Bjarnason fór á kostum og gerði þrennu. Framarar voru langt frá því að svara fyrir 7-1 tap í síðustu umferð og liðið hefur fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum. Uppgjör og viðtöl væntanleg
KR hefur samið við tvo leikmenn Lengjudeildarliðs Fjölnis um að leika með næstu árin. Um er að ræða markvörðinn Halldór Snæ Georgsson og miðvörðinn Júlíus Mar Júlíusson.
Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson hefur ákveðið að snúa heim til Íslands, 28 ára gamall, eftir langa veru í atvinnumennsku erlendis. Hann hefur skrifað undir samning til fjögurra ára við Stjörnuna.
Miðjumaðurinn Óliver Dagur Thorlacius er snúinn aftur í KR og hefur skrifaði undir samningu við félagið sem gildir til næstu þriggja ára.
Tarik Ibrahimagic, leikmaður Víkings, var í dag dæmdur í eins leiks bann vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Hann missir af næsta leik Víkinga um komandi helgi.
Stjarnan vann öruggan 3-0 sigur gegn ÍA og kom sér af fullum þunga í baráttuna um Evrópusæti í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Mörkin má nú sjá á Vísi.