„Þóttumst vita að við myndum ekki vinna hvern einasta leik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. maí 2026 20:59 Aron Sigurðarson er fyrirliði KR. Vísir/Diego Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, leyfði sér að vera nokkuð súr eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Fram í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld.
KR-ingar náðu forystu þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka en fengu á sig jöfnunarmark á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. „Að sjálfsögðu er það súrt að fá á sig mark úr hornspyrnu á 89. mínútu eða hvað það var,“ sagði Aron í leikslok. „En þetta voru bara tvö hörkulið að mætast í frekar kaflaskiptum leik. Fram og til baka svolítið í fyrri hálfleik en síðan tökum við svolítið stjórnina. Þetta var svolítið áhugaverður leikur. Risastórt, physical lið á móti kannski svona minna fótboltaliði,“ bætti Aron við. „Leikurinn litaðist svolítið af því. Langir boltar innfyrir frá þeim og föst leikatriði á meðan við vorum að gera okkar. Það var örugglega áhugavert að horfa á hann. En þetta var fín frammistaða hjá okkur fannst mér. Þetta er hörkulið, vel mannaðir, stórir og sterkir. Mér fannst þetta bara fínt í dag.“ Hann segist ekki sammála því að KR-liðið hafi ekki náð að sprengja upp vörn Framara í kvöld. „Mér fannst við alveg sprengja þá upp í fyrri hálfleik. Það vantar kannski einhvern lokahnykk. Við sprengdum þá líka upp í seinni hálfleik fannst mér og spiluðum í gegnum þá eins og við vildum.“ „Þeir komast auðvitað þarna yfir og þá breyttist leikplanið aðeins fannst mér. Þeir fara enn neðar, en mér fannst við samt komast í gegn og skapa færi, fyrirgjafir og flottar stöður. Við erum bara að spila á móti góðum liðum. Við vorum að spila á móti Stjörnunni úti og Frömurum núna. Þetta eru bara flott lið. Það er ekkert sjálfgefið að sprengja sig í gegnum lið í hvert einasta skipti sem við spilum í deildinni. Lið eru auðvitað farin að undirbúa sig mjög vel á móti okkur og við þurfum að finna svör í hverjum einasta leik. Ég er samt ekki sammála því að við náum ekki að sprengja þá í þessum leik.“ Þá segir hann að það sé mikil bjartsýni í KR, þrátt fyrir töpuð stig í kvöld, enda séu KR-ingar enn taplausir í deildinni. „Að sjálfsögðu. Við þóttumst vita að við myndum ekki vinna hvern einasta leik í þessari deild en við erum enn ósigraðir. Við erum búnir að spila á móti góðum liðum og erum að fara að spila á móti hörkuliði í næsta leik. Við fáum Blikana úti og svo Val heima. Það er bara áfram gakk í þessu og það er fullt af leikjum á næstu dögum. Við þurfum bara að pakka þessum leik aðeins inn á morgun, förum yfir hann og svo er bara undirbúningur fyrir næstu leiki. Þeir eru að koma í bunkum og við þurfum að vera klárir,“ sagði Aron að lokum.
Besta deild karla KR Fram Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira