Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Gunnar Egill Daníelsson skrifar 21. maí 2026 21:46 Jón Sölvi Símonarson handsalaði samning við Ingimar Elí Hlynsson í gær og spilaði sinn fyrsta leik fyrir Skagamenn í dag. KFÍA Jón Sölvi Símonarson lék sinn fyrsta leik í efstu deild í kvöld þegar hann varði mark ÍA í 2-2 jafntefli gegn ÍBV í Bestu deildinni í fótbolta á Elkem vellinum á Akranesi. „
Ég er fyrst og fremst svekktur að hafa misst þetta niður í jafntefli eftir að hafa náð 2-0 forystu og það stefndi allt í sigur. Síðan fáum við tvö klaufaleg mörk á okkur. Þannig að ég er svekktur en að sjálfsögðu glaður að spila minn fyrsta leik,“ sagði Jón Sölvi við Sýn Sport eftir leik. Hann er einungis 18 ára gamall og var tilkynntur sem nýr leikmaður ÍA í morgun eftir að félagið fékk undanþágu frá KSÍ til þess að kaupa markvörð utan félagaskiptaglugga vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. „Ég var stressaður í byrjun en síðan er þetta bara fótbolti. Ellefu á móti ellefu, bara fótboltaleikur. Maður á eina góða sendingu og stressið fer,“ sagði Jón Sölvi um það hvernig honum leið á vellinum. Leikur næsta dag Hvernig hafa síðustu sólarhringar verið fyrir þig? „Ég fæ bara að vita af þessu klukkan tvö í gær. Það var hringt í mig og sagt að það væri allt klárt. Ég samþykki allt og síðan er ég bara mættur hérna upp á Skaga að skrifa undir um átta leytið um kvöldið og síðan er bara leikur næsta dag,“ útskýrði Jón Sölvi. Hann var einnig á mála hjá ÍA á síðasta tímabili, var þá lánaður frá Breiðabliki en nú keyptur frá félaginu, en kom ekki við sögu í fyrra. Jón Sölvi sagði það sannarlega hjálpa til að hafa verið einnig hjá Skagamönnum á síðasta tímabili. „Já, það hjálpar alveg gríðarlega. Ég þekki eiginlega alla í þessu liði kannski fyrir utan tvo. Þetta eru geggjaðir gæjar sem hjálpa mér mikið.“
Besta deild karla ÍA Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira