Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Þrír banda­rískir her­menn fallnir í á­tökum við Íran

Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lendingar óska eftir að­stoð

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni.

Innlent
Fréttamynd

Hefja skot­hríð á „hjarta“ Teheran

Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins.

Erlent
Fréttamynd

Klerkurinn felldur í fyrstu lotu

Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. 

Erlent
Fréttamynd

„Ó­lík­legt“ að Íran fari á HM vegna á­rásarinnar

Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið.

Fótbolti
Fréttamynd

Stríðið muni halda á­fram út vikuna

Þrátt fyrir að æðstiklerkur Írans sé sagður látinn hyggjast Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn halda árásum á Íran áfram í einhverja daga. Meint andlát Ayatollah Ali Khamenei þarf ekki að jafngilda hreinum stjórnarskiptum í Íran. En hver tekur þá við?

Erlent
Fréttamynd

Trump: Khamenei látinn

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag.

Erlent
Fréttamynd

Segir á­hyggju­efni að leik­reglur séu virtar að vettugi

Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum.

Innlent
Fréttamynd

Ísrael og Banda­ríkin ráðast á Íran

Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan.

Erlent
Fréttamynd

„Sann­kölluð rokk og ról goð­sögn“ fallin frá

Bandaríski söngvarinn og lagahöfundurinn Neil Sedaka er látinn, 86 ára að aldri. Söngvarinn öðlaðist heimsfrægð á sjöunda áratug síðustu aldar og átti marga slagara á toppi vinsældarlista á sínum tíma, meðal annars lög á borð við Oh! Carol, Breaking Up Is Hard To Do og Bad Blood.

Lífið
Fréttamynd

Neita að heimila Pentagon að nota gervi­greindina í fjöldaeftirlit

Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðu­hluti

Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetafrú, var ómyrk í máli þegar hún mætti fyrir þingnefnd í gær, þar sem hún virðist hafa verið spurð bæði út í Jeffrey Epstein en einnig aðra alls óskylda hluti.

Erlent
Fréttamynd

Paramount sigrar Netflix í bar­áttunni um Warner Bros.

Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Banda­rískur reynslu­bolti gómaður við að þjálfa Kín­verja

Bandarískur maður sem starfaði lengi hjá flugher Bandaríkjanna sem herþotuflugmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að aðstoða kínverska herinn. Hann flaug bandarískum herþotum í rúma tvo áratugi og þar á meðal F-35 þotum og þjálfaði bandaríska flugmenn í flugi þeirra þota. Þá hefur hann einnig reynslu af bandarískum kjarnorkuvopnum.

Erlent
Fréttamynd

Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út

Hollywood-leikarinn Crispin Glover hefur verið sakaður um líkamsárás, andlegt ofbeldi, ólögmætan útburð og málshöfðun að ófyrirsynju af breskri fyrirsætu. Glover hafnar ásökununum, segir konuna hafa brotist inn til hans og ráðist á hann þannig hann hringdi á lögregluna og óskaði eftir nálgunarbanni á hendur konunni.

Lífið
Fréttamynd

Gögn um á­sökun konu á hendur Trump vantar í Ep­stein-skjölin

Lykilgögn sem tengjast ásökun konu á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta vantar í gagnasafnið sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur birt í tengslum við mál kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Konan gaf sig fram eftir að Epstein var handtekinn og sagðist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bæði Trumps og Epsteins á níunda áratugnum þegar hún var þrettán ára.

Erlent
Fréttamynd

Gengst við fram­hjá­haldi með tveimur rúss­neskum konum

Milljarðamæringurinn Bill Gates hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá fyrrverandi eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum, annars vegar briddsspilara og hins vegar kjarneðlisfræðingi. Bað hann starfsfólk sitt afsökunar á tengslum sínum við Jeffrey Epstein en tók þó fram að hann hefði ekki tekið þátt í neinu „ólöglegu“.

Lífið
Fréttamynd

Dóttir Short fannst látin

Katherine Short, ættleidd dóttir leikaranna Martins Short og Nancyar Dolman, er látin, 42 ára að aldri. Katherine var félagsráðgjafi og elsta barn þeirra hjóna.

Lífið
Fréttamynd

Tíðinda­lítil en metlöng stefnuræða

Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt stefnuræðu sína í nótt, sem var tíðindalítil og einkenndist helst, eins og svo margar ræður forsetans, af sjálfshóli og gagnrýni á raunverulega andstæðinga og ímyndaða óvini.

Erlent