Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn Bandaríski gítarleikarinn Duane Eddy, sem af mörgum er talinn vera einn af upphafsmönnum rokksins, er látinn. Hann varð 86 ára gamall. Tónlist 2. maí 2024 13:42
Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Richard Tandy, hljómborðsleikari bresku sveitarinnar Electric Light Orchestra (ELO), er látinn, 76 ára að aldri. Lífið 2. maí 2024 08:49
Rithöfundurinn Paul Auster er látinn Bandaríski rithöfundurinn Paul Auster er látinn 77 ára að aldri. Lífið 1. maí 2024 09:14
Pétur Einarsson leikari látinn Pétur Einarsson, leikari, leikstjóri og fyrrverandi skólastjóri Leiklistarskóla Íslands er látinn, 83 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 24. apríl síðastliðinn. Innlent 25. apríl 2024 14:17
Pétur Guðfinnsson er látinn Pétur Guðfinnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Sjónvarpssins, er látinn. Hann lést á dvalarheimilinu Grund, 94 ára að aldri. Innlent 23. apríl 2024 07:55
American Idol-söngkonan Mandisa er látin Bandaríska söngkonan Mandisa, sem vakti athygli í fimmtu þáttaröð American Idol, er látin, 47 ára að aldri. Lífið 20. apríl 2024 10:39
Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Guðmundur H. Garðarsson fyrrverandi alþingismaður lést að Hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfararnótt 18. apríl. hann var 95 ára að aldri. Innlent 19. apríl 2024 10:52
Samantha Davis er látin Samantha Davis, góðgerðarfrömuður og leikkona er látin. Hún var 53 ára gömul og var eiginkona leikarans Warwick Davis. Lífið 18. apríl 2024 09:42
Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Magni Reynir Magnússon kaupmaður lést á Landspítalanum 16. apríl á 89. aldursári. Magni fæddist í Reykavík 5. nóvember 1935 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Viðskipti innlent 17. apríl 2024 15:56
Gunnlaugur Rögnvaldsson er látinn Gunnlaugur Rögnvaldsson, blaðamaður og ljósmyndari, er látinn. Hann lést síðastliðinn þriðjudag, 62 ára að aldri. Gunnlaugur var meðal annars þekktur fyrir umfjöllun sína um Formúlu 1 og aðrar aktursíþróttir hér á landi og stýrði þáttum og lýsti keppnum í sjónvarpi. Innlent 12. apríl 2024 07:15
OJ Simpson er látinn OJ Simpson, eða Orenthal James Simpson, er látinn, eftir nokkurra ára baráttu við krabbamein. Hann var 76 ára gamall en fjölskylda hans segir hann hafa látist í gær umkringdur börnum sínum og barnabörnum. Erlent 11. apríl 2024 14:49
Nóbelsverðlaunahafinn Peter Higgs fallinn frá Breski Nóbelsverðlaunahafinn Peter Higgs er látinn 94 ára að aldri. Hann hlaut Nóbelsverðlaun árið 2013 fyrir rannsóknir sínar frá sjöunda áratugi síðustu aldar sem leiddu í ljós tilvist hinnar svokallaðrar Higgs-bóseindar, sem einnig hefur verið kölluð „guðseindin“. Erlent 9. apríl 2024 17:18
Fótboltamaður skotinn til bana Suðurafríski knattspyrnumaðurinn Luke Fleurs lést í gærkvöldi eftir að hann var skotinn í bílaráni í nágrenni við Jóhannesarborg. Fótbolti 4. apríl 2024 08:01
Elsti karlmaður heims látinn Venesúelamaðurinn Juan Vicente Perez Mora er látinn, 114 ára að aldri. Hann var árið 2022 útnefndur elsti karlmaður heims af Heimsmetabók Guinness. Lífið 3. apríl 2024 08:32
Freaks and Geeks-leikarinn Joe Flaherty látinn Bandaríski leikarinn og handritshöfundurinn Joe Flaherty er látinn. Hann varð 82 ára. Lífið 2. apríl 2024 23:30
Látinn aðeins 27 ára eftir mótorhjólaslys Chance Perdomo, leikari þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Gen V og The Chilling Adventures of Sabrina, lést í mótorhjólaslysi aðeins 27 ára að aldri. Lífið 30. mars 2024 23:17
Louis Gossett Jr. látinn Louis Gossett Jr., fyrsti svarti maðurinn til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki er látinn 87 ára að aldri. Lífið 30. mars 2024 10:25
Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Joe Lieberman, fyrrverandi öldungardeildarþingmaður í Bandaríkjunum og varaforsetaefni forsetaframbjóðandans Al Gore, er látinn. Hann varð 82 ára. Erlent 28. mars 2024 08:07
Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Bandaríski listamaðurinn Richard Serra er látinn 85 ára gamall. Hann var þekktastur fyrir listaverk sín úr stáli sem finna má um heima allan meðal annars í Viðey. Menning 27. mars 2024 11:37
Fyrrum heimsmeistari látin aðeins 43 ára gömul Hnefaleikaheimurinn syrgir nú Alesiu Graf eftir að fréttist af andláti hennar í gær. Sport 26. mars 2024 09:31
„Harry Klein“ er látinn Þýski leikarinn Fritz Wepper er látinn, 82 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa farið með hlutverk Harry Klein í þáttunum um lögreglumanninn Derrick. Lífið 25. mars 2024 11:32
Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn Margrómaði píanistinn Maurizio Pollini lést í gær 23. mars 82 ára að aldri. Tilkynning barst í gær frá óperuhúsinu í Mílanó, La Scala, þar sem hann var tíður flytjandi. Pollini hefur heillað alþjóð með píanóleik sínum í rúmlega sextíu ár. Hann naut mikillar virðingar annarra tónlistarmanna. Tónlist 24. mars 2024 12:36
M. Emmet Walsh látinn Bandaríski leikarinn M. Emmet Walsh er látinn, 88 ára að aldri. Hann lék meðal annars í myndunum Blade Runner og Christmas with the Kranks, en hann lék 233 hlutverk á leikaraferli sem hófst á sjöunda áratugnum. Lífið 20. mars 2024 22:43
All By Myself-söngvarinn Eric Carmen látinn Bandaríski söngvarinn Eric Carmen er látinn, 74 ára að aldri. Hann var forsprakki sveitarinnar The Raspberries og átti síðar eftir að njóta vinsælda með lögum á borð við All By Myself, Hungry Eyes og Never Gonna Fall In Love Again. Tónlist 12. mars 2024 10:27
Matthías Johannessen er látinn Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og skáld, er látinn. Hann andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gær, 94 ára að aldri. Innlent 12. mars 2024 07:15
Páll Bergþórsson er látinn Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, er látinn hundrað ára að aldri. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði eftir stutt veikindi. Innlent 11. mars 2024 12:44
Skapari Dragon Ball látinn Japanski teiknarinn Akira Toriyama, skapari hinnar vinsælu teiknimyndaseríu og sjónvarpsþátta Dragon Ball, er látinn. Hann lést síðastliðinn föstudag, 68 ára að aldri. Lífið 8. mars 2024 08:27
Björgvin Gíslason látinn Björgvin Gíslason, einhver snjallasti gítarleikari landsins, varð bráðkvaddur í gær. Fráfall hans má heita áfall fyrir íslenska tónlistarbransann. Auk þess að vera gítarleikari í fremstu röð var hann einstaklega vel liðinn af öllum sem hann þekktu, síbrosandi og sendi frá sér góða strauma. Innlent 6. mars 2024 11:07
Karl Gunnlaugsson er fallinn frá Karl Gunnlaugsson, akstursíþróttamaður og athafnamaður, er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Mosfellsbæ á laugardaginn. Innlent 4. mars 2024 10:15
Rödd hrekkjalómanna og hláturmilda hirðfíflsins úr Star Wars látin Mark Dodson, sem er þekktastur fyrir að hafa talsett fjölda hrekkjalóma í Gremlins-myndunum og hirðfíflið Salacious B. Crumb í hirð Jabba the Hutt, er látinn 64 ára að aldri. Lífið 3. mars 2024 19:57