Innlent

Tíu tonna grjót­hnullungur fór í gegnum nýja varnar­vegginn

Atli Ísleifsson skrifar
Skemmdir á hrunvörn við Holtsnúp.
Skemmdir á hrunvörn við Holtsnúp. Vegagerðin

Stór steinn fór í gegnum nýuppsettar hrunvarnir meðfram Hringveginum við Holtsnúp undir Eyjafjöllum í morgun. Steinninn braut sér leið í gegnum grjótgrindurnar og olli töluverðum skemmdum á þeim.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að hrunvarnirnar hafi nýlega verið settar upp á um þrjú hundruð metra kafla þar sem mikil hætta er á grjóthruni. Tilgangur þeirra sé að auka öryggi vegfarenda á þessum stað.

„Áætlað er að steinninn sé um tíu tonn að þyngd og því mun stærri en algengast er að hrynji úr fjallinu. Við hönnun varnanna var miðað við steina á bilinu þrjú til fjögur tonn. Steinninn er jafnframt mun stærri en sá sem olli banaslysi á þessum stað í mars 2025.

Vegagerðin lítur atvikið alvarlegum augum og er að skoða skemmdirnar. Gatið í veggnum verður lokað til bráðabirgða og í framhaldi verður metið hvað þarf að gera til að tryggja öryggi vegfarenda,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Vegagerðin
Vegagerðin

Tengdar fréttir

Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp

Unnið er að hrunavörnum við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum, meðfram Hringveginum. Staðurinn hefur verð til skoðunar um nokkurt skeið en þar varð banaslys í mars í fyrra. 

Hrun­varnir við Holtsnúp verði til­búnar í ágúst

Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025.

Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð

Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum í morgun og stór hnullungur fór yfir þjóðveginn. Þetta var á svipuðum stað og banaslys varð vegna grjóthruns í mars á þessu ári.

Bæta ekki fall­varnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“

Ekki stendur til að bæta fallvarnir vegna grjóthruns við Holtshnúp þar sem varð banaslys í mars á þessu ári. Ráðherra segir fjármagni forgangsraðað í önnur verkefni. Það hafi komið til greina að setja upp varnir við veginn en það ekki enn komist til framkvæmdar. Íbúi við veginn segir stjórnvöld verða að forgangsraða. Það sé óásættanlegt að ekki séu varnir við veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×