Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Smári Jökull Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 12:44 Helga Vala Helgadóttir verjandi og Íris Helga Jónatansdóttir þegar málið var þingsett fyrr á árinu. Vísir/Vilhelm Tveir karlmenn sem báru vitni í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í morgun sögðu hana hafa beðið sig um að lemja einn brotaþola í málinu. Þá lýstu fyrrverandi vinkonur Írisar vinslitum þeirra við hana og að hegðun hennar hafi breyst eftir að hún gekkst undir magaminnkunaraðgerð.
Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu er nú á þriðja degi en alls voru sex dagar teknir frá í dómsal vegna málsins. Íris Helga sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gagnvart þremur karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Brotaþolar hafa allir borið vitni í málinu sem og Íris Helga sjálf. Í morgun bar dóttir Írisar, sem er á unglingsaldri, vitni þar sem hún sagði meðal annars að móðir hennar hefði aldrei beðið hana um að gera neitt óeðlilegt og þá sagði hún bróður sambýliskonu eins brotaþola í málinu hafa ráðist inn á heimili þeirra mæðgna og hótað lífláti. Barnsfaðir Írisar vildi hins vegar ekki bera vitni. Ekki er hægt að krefjast vitnisburðar hans vegna tengsla við sakborning. Næst í röðinni voru fimm vitni sem öll tengjast Írisi Helgu á mismikinn hátt. Meðal þeirra voru tveir karlmenn sem Íris er sögð hafa haft samband við til að láta lemja einn brotaþola málsins. Brotaþolinn bar vitni í gær og greindi þá frá umfangsmiklu umsáturseinelti þar sem saur var meðal annars makað á hurðarhúna húsnæðis hans og bíls. „Ég er vinur vina minna og hjálpa til ef þarf“ Annar mannanna sagðist tengjast Írisi þar sem kona hans og Íris voru að vinna saman og hafi verið vinkonur á sínum tíma. Sagði hann Írisi Helgu hafa sent sér skilaboð varðandi það „að lemja manninn, láta lemja hann eða eitthvað þess háttar“ eins og maðurinn sagði sjálfur. Íris Helga hefur neitað hinum ýmsu ásökunum en játað í einhverjum tilvikum.Vísir Í fyrstu sagðist hann hafa tekið vel í skilaboð Írisar Helgu og verið tilbúinn að taka þátt í því sem hún bað hann um. „Ég er vinur vina minna og hjálpa til ef þarf. Þegar ég sé síðan hvernig hlutirnir eru í raun þá er ég ekki sammála því og hætti að svara skilaboðum,“ sagði maðurinn og sagðist meta það svo að Írisi Helgu hafi verið alvara með skilaboðunum. Verjandi Írisar Helgu, Helga Vala Helgadóttir, spurði hvort hún skildi manninn rétt, að hann hafi ætlað að ganga í verkið. Ítrekaði hann þá að hann væri vinur vina sinna. Las Helga Vala jafnframt upp skilaboð þar sem maðurinn sagði vini sína vera að koma til Keflavíkur og að lítið mál væri að tala við brotaþola og fá hann til að bakka. Þá vísaði verjandi einnig í skilaboð frá Írisi þar sem stóð „ég er að fokking deyja, mig langar svo að berja hann“. „Ég túlkaði þau í fullri alvöru,“ sagði maðurinn. Buðu aðstoð en var hent út af samfélagmiðlum Hinn maðurinn sem bar vitni sagði að kona hans og Íris Helga væru æskuvinkonur. Hafi hann og Íris stundum sent brandara sín á milli á samfélagsmiðlum en dag einn hafi hann fengið skilaboð af öðrum toga. „Hún sendi mér snap þar sem hún bað mig að lemja [brotaþola]. Hún sendi vídeó af húsinu hans þar sem hún bað mig að lemja hann,“ sagði maðurinn og bætti við að hún hafi sent fleiri skilaboð um málið og hann hafi því ekki tekið þeim sem gríni, en verjandi Írisar Helgu spurði hvort svo gæti hafa verið. Hann hafi svarað Írisi Helgu neitandi og einhverju síðar hafi hann og konan sent Írisi skilaboð þar sem þau buðu henni aðstoð, hún gæti komið og talað við þau og að þau vildu að hún leitaði sér hjálpar. Eftir það komu ekki fleiri skilaboð. „Svo var hún búin að henda mér og konunni út af Facebook og öllum öðrum stöðum.“ Upplifði hegðun Írisar Helgu í garð brotaþola sem ógnvekjandi Tvær fyrrverandi vinkonur Írisar báru sömuleiðis vitni í morgun. Vitnuðu þær báðar um að vinslit hafi orðið vegna lyga Írisar um ýmsa hluti. Önnur konan sagðist hafa farið rúnt með Írisi þar sem keyrt var fram hjá húsi áðurnefnds brotaþola. Hún viti þó ekki hvert erindið var en hún hafi síðan þá upplifað hegðun Írisar Helgu í garð brotaþola sem ógnvekjandi. Þá hafi Íris beðið mann vinkonunnar um að berja brotaþola en maðurinn er annar þeirra sem einnig báru vitni í morgun. Hún hafi einnig orðið vitni að því á einum tímapunkti þar sem Íris Helga hafi verið að skipta á milli mismunandi reikninga á samfélagsmiðlum í símanum sínum. Sömuleiðis hafi hún heyrt af því að Íris Helga hafi logið til um að hún væri með krabbamein. Verjandi Írisar spurði hvort konunni væri kunnugt um að Íris hefði verið á krabbameinsbælandi lyfjum um tveggja ára skeið. „Já, en ekki vegna krabbameins,“ sagði konan og þegar Helga Vala verjandi spurði hana hvort eitthvað af þessum upplýsingum hefði skolast til sagði hún svo ekki vera. „Þetta man ég mjög vel,“ en oft og tíðum svaraði konan því til þegar hún var spurð út í málið að hún myndi ekki atvik mála enda nokkur ár síðan þau hafi átt sér stað. „Ég upplifði hana sem lasna“ Hin konan sem bar vitni sagði Írisi vera fyrrverandi vinkonu en að hún þekkti líka brotaþola og sambýliskonu hans sem væri vinkona sín. Hún sagðist hafa heyrt af hegðun Írisar Helgu í þeirra garð, meðal annars að Íris hefði farið að heimili þeirra og ónáðað. Sjálf hefði hún ekki orðið vitni að slíkri hegðun. Þá hefði brotaþoli sagt henni frá því að Íris hefði komið með fóstur í krukku að heimili hans, líkt og hann vitnaði um í gær, en sjálf sagðist hún ekki hafa séð það. Hún hafi upplifað breytingu á hegðun Írsar á einhverjum tímapunkti. „Ég upplifði hana sem lasna, ég veit ekki hvað gerðist eða hvað veldur.“ Verjandi Írisar spurði einnig út í spjall konunnar við vinkonur þeirra þar sem þær hafi skrifað að Íris ætti að missa forræði yfir börnum sínum og fara á geðdeild. Einnig að ýmislegt komi í ljós eftir magaminnkunaraðgerðir. Þá sagðist konan einnig hafa heyrt að Íris Helga hefði logið til um að þurfa að fara á krabbameinslyf, hún hefði þó aldrei sagt það við sig. „Ég fékk sjokk“ Að lokum bar kona vitni sem hafði átt í þriggja mánaða sambandi við brotaþola. Íris Helga hafi haft samband við hana eftir að hafa sjálf átt í sambandi með manninum. Sagði hún Írisi hafa sagt sér ýmislegt af þeirra samskiptum og spurt sig út í samskipti konunnar við hann. Jafnframt hafi hún beðið sig um að fara og tala við lögreglu ef eitthvað slæmt hafi komið upp. Sagðist hún hafa svarað að svo hefði ekki verið, hún hefði ekkert haft út á samskipti sín við brotaþola að setja á meðan þau áttu í sambandi. Konan var einnig spurð út í mynd sem hún hafi tekið af sér og brotaþola á tónleikum sem þau fóru á. Sendi hún Írisi myndina um það leyti sem þær áttu í samskiptum. Það hafi hún gert því þá hafi komið upp minning á Snapchat fyrir tilviljun og henni hafi þótt það skondið. Næsta dag hafi hún fengið skilaboð frá brotaþola en hann hafði þá fengið myndina senda frá reikningi aðila sem hafði verið að áreita hann. „Ég fékk sjokk, það var enginn annar sem hafði aðgang að myndinni,“ sagði konan og að í kjölfarið hafi hún slitið samskiptum við Írisi. Helga Vala, verjandi Írisar Helgu, spurði konuna frekar út í hverjir hefðu fengið myndina senda. Konan sagðist hafa sent myndina á nokkra vini en þegar verjandi spurði hvort hún myndi eftir því að einhver hefði tekið skjáskot af myndinni sagðist hún ekki geta sagt til um það. Aðalmálsferð í málinu heldur áfram eftir hádegið.
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira