Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Lovísa Arnardóttir skrifar 4. nóvember 2026 09:46 Hildur Kristín Þorvaldsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna. Bylgjan og Vísir/Arnar Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir marga lögreglumenn reiða og upplifa sig þannig í starfi að þeir njóti ekki réttarverndar. Þeim finnist að þegar brotið sé gegn þeim fái málin ekki sambærilegan framgang og þegar þeir eru sakaðir um að brjóta á sér. Sérstaklega séu þeir ósáttir við nýlegan dóm þar sem kveikt var í bíl lögreglukonu.
Fjölnir var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Með honum var Hildur Kristín Þorvaldsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þrír menn hlutu í síðasta mánuði skilorðsbundna dóma fyrir að kveikja í bifreið lögreglukonu sem starfaði í fíkniefnadeild þegar kveikt var í bílnum. Ekki var kært fyrir brot gegn valdstjórn því ekki þótti sannað að mennirnir hafi vitað að konan hafi verið lögreglukona en þeir áttu að fá greitt fyrir að kveikja í bílnum. Fjölnir og Hildur fóru vítt og breitt í viðtalinu og ræddu öryggi lögreglumanna í starfi og fjölgun tilvika þar sem þeir eru beittir ofbeldi í starfi eða jafnvel hótunum. Fram kom í nýrri löggæsluáætlun að 58 prósent lögreglumanna hafi orðið fyrir ofbeldi eða hótunum í starfi. Hildur Kristín segir það gríðarlegt áfall að verða fyrir líkamlegu ofbeldi eða hótunum. Þá sé það lögreglumönnum líka erfitt að þurfa að útskýra þetta fyrir maka sínum eða börnum. „Þú þarft mögulega að fela lögheimili þitt, mögulega að dylja skráðan einstakling á bílnum þínum og fara huldu höfði í samfélaginu af ótta við einhvers konar ofbeldi,“ segir hún og að þessu fylgi gríðarlegt álag. Hildur segir dæmi um þetta meðal lögreglumanna en þetta sé ekki endilega hefðbundið. Hildur Kristín segist sjálf hafa þurft að gera þetta að einhverju leyti. „Ég hef persónulega orðið fyrir ofbeldi í starfi og það er gríðarlegt áfall,“ segir hún og að það sé erfitt að standa í ferlinu að ganga á eftir því. „Að kæra fari af stað, skrifa skýrslur, þú ert mögulega með áverka og þarft að nótera það hjá lækni,“ segir hún og að kerfið geti flækt hlutina. Lögreglumenn ósáttir við framgang mála Hún segir umtal innan lögreglumanna um að þeir séu ósáttir við framgang slíkra mála. Fjölnir er staddur á ráðstefnu á Spáni og hann segir þar á oddi ofbeldi gegn lögreglumönnum og andlega líðan þeirra. Þar er til dæmis einnig rædd staða lögreglumanna á mótmælum sem hafa verið ansi tíð síðustu vikur í Evrópu. Spurður um aukna vanvirðingu og ofbeldi gegn lögreglumönnum í starfi segir Fjölnir það í gegnum tíðina hafa verið þannig að lögreglumenn geti hafa orðið fyrir áverkum í starfi, til dæmis við handtöku, en hótanirnar gegn þeim séu nýjar. Það hafi helst fíkniefnalögreglumenn orðið fyrir slíku. Fjölnir segist sjálfur til dæmis hafa eytt einu sumarfríi með glóðarauga eftir að hafa verið skallaður daginn áður en hann hóf fríið. Hann tekur undir með Hildi um að lögreglumenn séu ósáttir við það hvernig er tekið á þessum málum, við ákærur og dóma og telji að þeir njóti ekki réttarverndar. Hann tekur dæmi um bíl lögreglumanns sem var kveikt í og að hann hafi verið „hlægilega vægur“ og þar hafi ekki verið ákært fyrir ofbeldi gegn valdstjórninni. Fjölnir segir saksóknara þar mögulega ekki hafa talið sig geta sannað að mennirnir sem kveiktu í bílnum hafi vitað að lögreglumaður ætti bílinn og því hafi ekki verið hægt að ákæra fyrir það. Lögreglumenn líka fólk með fjölskyldur Fjölnir segir að á ráðstefnunni sem hann er á sé mikið talað um að á bak við búninginn sé manneskja og fjölskylda. „Lögreglumenn eru bara fólk,“ segir hann og að þeir hafi oft meiri áhyggjur af fjölskyldum sínum en sjálfum sér. Spurður um úrræði í boði fyrir lögreglumenn sem verða fyrir einhvers konar áfalli í starfi segir hann úrræðin því miður misjöfn eftir embættum. Þeim bjóðist sálfræðiþjónusta og viðrun eftir stór áföll. Hann segir sjálfsvígstíðni meðal lögreglumanna í heiminum mjög háa og tölurnar segi að lögreglumaður taki líf sitt annað hvert ár. Hildur hefur verið lögreglumaður í ellefu ár. „Mér líður eins og þetta sé búið að stökkbreytast,“ segir hún og að þegar hún hóf störf hafi lögreglumenn helst verið að slasast við handtökur en núna hafi komið upp mál þar sem ofbeldið er skipulagðara og hópar leggja á ráðin gegn lögreglumönnum. Þarf að taka ofbeldismenningu alvarlega Í málinu sem Fjölnir nefndir, þar sem kveikt var í bílnum, hafi mennirnir viðurkennt að hafa fengið greiðslu fyrir og hún telur þetta mikið áhyggjuefni. „Það þarf að taka þessu alvarlega,“ segir hún og á þá við dómskerfið, í rannsókn og hjá ákæruvaldi. Hún telur að talað sé um slíkt ofbeldi af of miklu léttvægi og að það þurfi að taka á þessari ofbeldismenningu af meiri hörku. Fjölnir segir þessi mál hafa verið rædd á ráðstefnunni og lögreglumenn erlendis þekki þetta líka. Hann segir þó einn mun, til dæmis, að á Íslandi sé það viðurkennt að streitast á móti handtöku. Hann segir það sjálfsagt brot að streitast á móti skipunum lögreglu en á Íslandi sé litið á það sem „allt í lagi“. Hann segir það þekkta sögu að í Danmörku hafi til dæmis maður ætlað að banka upp á bíl hjá lögreglu en fengið hnefa í andlitið því lögreglan taldi hann ógn. Hann segir að á Íslandi gerist það mjög reglulega að fólk geri það og mögulega sé samfélagið eitthvað öðruvísi sem skýri það. Fjölnir segir að í löggæsluáætlun séu markmið um að koma í veg fyrir slíkt ofbeldi og að fjölga lögreglumönnum en ráðherra hafi tekið fram á kynningu að það væri ekki búið að fjármagna áætlunina. Fjölnir segir löggæslu hafa breyst þannig að það sé alltaf verið að taka mannskap úr almennri deild í rannsóknir sem séu orðnar svo stórar og flóknar. „Við erum alltaf með minnstu reynsluna á götunni,“ segir hann. Hildur Kristín segir gríðarlega mikilvægt að halda í reynslu á götunni, það sé yfirgripsmikið starf og mikið sem fólk þurfi að læra. „Að hafa góða reynslu á götunni er gulls ígildi,“ segir hún því að frumrannsókn sé til dæmis sinnt af þessum lögreglumönnum og skipti miklu máli. Hann segir það skrítna stöðu að lögreglumenn þurfi að vera með eftirlitsmyndakerfi við heimili sín og geti hvorki verið skráðir í þjóðskrá né símaskrá vegna ótta við ofbeldi eða hótanir vegna starfs síns. „Við förum huldu höfði í samfélaginu.“ Fjölnir segir nauðsynlegt að brot gegn lögreglumönnum og brot lögreglumanna, sem eru kærð til Nefndar um eftirlit með lögreglu og héraðssaksóknara, „Lögreglumönnum hefur fundist að brot þeirra í starfi fái mun hraðari framgang hjá saksóknara heldur en brot gegn þeim,“ segir hann og að hann hafi kvartað yfir þessu formlega og óformlega við saksóknara. Hann segir til dæmis að í málinu þar sem kveikt var í bílnum hafi ekki verið gerð nein tilraun til að komast að því hver borgaði þeim fyrir að kveikja í bílnum. Lögreglumönnum finnist þannig ekki nógu mikið lagt í þessar rannsóknir. Lögreglumenn reiðir Hann segir saksóknara lofa bót eða að lögreglumenn séu að misskilja. „En þetta er tilfinning lögreglumanna,“ segir hann og að það sé ómögulegt að lögreglumenn séu svona reiðir og upplifi sig ekki njóta réttarverndar í samfélaginu. „Það þarf að finna út úr þessu,“ segir hann. Hildur segist aldrei vita hvernig dagurinn verður og það sé fegurðin í starfinu en líka það sem eykur álagið. Henni líður „flestar stundir“ eins og hún sé örugg en segir koma stundir þar sem henni líður ekki vel. „Það er hugsjónin. Það er réttlætiskenndin, að vilja gera það rétta,“ segir hún um það af hverju hún starfar við þetta þrátt fyrir óöryggistilfinningu.
Lögreglan Lögreglumál Dómsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bítið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira