Innlent

Raf­magnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“

Samúel Karl Ólason skrifar
Bergþóra Pálsdóttir segir að verið sé að bola þeim tólf sem eru í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða á brott. Fólkið hafi samt enga aðra staði til að fara á.
Bergþóra Pálsdóttir segir að verið sé að bola þeim tólf sem eru í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða á brott. Fólkið hafi samt enga aðra staði til að fara á. Vísir/Vilhelm

„Þeir komu í morgun. Tóku rafmagnið, vatnið og allt saman,“ segir Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa. Hún segir að starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi tekið rafmagnið af svæðinu þar sem fólk hefur haldið til í hjólhýsabyggð á Sævarhöfða. Bergþóra segir að umrætt fólk sé búið að borga reikninga fyrir bæði rafmagn og vatn fyrir nóvember og einhverjir hafi þegar greitt fyrir desember.

„Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól. Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk. Við borgum skatta og skyldur okkar í Reykjavík.“

Byggð þessi fluttist á Sævarhöfða sumarið 2023, þegar íbúum var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal. Til stóð að færa hana á Gufunes en borgarráð sagði í sumar upp samningi um þá flutninga, um tveimur mánuðum eftir að hann var undirritaður.

Sjá einnig: Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp

Bergþóra segir um tólf manns enn búa í hjólhýsabyggðinni og þar af þrír krabbameinssjúklingar. Einn þeirra fór í morgun og fékk lánaða rafstöð. Hún segir markmiðið klárlega að koma fólki á brott en ekkert annað sé í boði fyrir fólkið.

„Hvert á fólkið að fara? Sumir eru í vinnu hérna í Reykjavík.“

Sjá einnig: Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð

Bergþóra segir ekkert hafa verið talað við fólkið í aðdraganda þess að rafmagnið og vatnið hafi verið tekið af.

„Þetta er hann Einar [Þorsteinsson]. Hann vill ekki sjá þetta,“ segir Bergþóra í samtali við Vísi.

Hún segir einnig að Einar hafi gefið til kynna að búið væri að bjóða íbúum hjólhýsabyggðarinnar félagslega aðstoð. Íbúar kannist ekki við slíkt.

„Aulahátturinn að geta ekki komið og rætt við okkur. Ég veit ekki við hvað hann er hræddur.“

Hefur aldrei liðið betur

Bergþóra er sjálf komin með íbúð, eftir að hafa búið í hjólhýsi í þrettán ár. Hún segist sakna byggðarinnar að mörgu leyti og henni hafi aldrei liðið betur en á þessum árum í hjólhýsinu.

Hópurinn sótti um að fá að vera á gamla Sorpu-svæðinu á Sævarhöfða. Bergþóra segir að það hefði hentað fínt og að aðstæður væru fínar. Þeirri beiðni var hafnað af borginni.

„Það er ótrúlegt hvernig er hægt að haga sér. Ég er eiginlega alveg orðlaus yfir þessu. Það eru svona svæði alls staðar í heiminum. Þau eru flott og hugsað vel um þau. Hérna má ekki gera neitt.“

Í síðasta mánuði kom fram í svari skrifstofu borgarstjóra og borgarritara við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands að Reykjavíkurborg hefði greitt um 19,8 milljónir króna fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni.

Bergþóra segir að fyrir hvert hjólhýsi hafi verið borgaðar 30 þúsund krónur á mánuði í rafmagn. Það sé meira en þau noti.

„Við settum mæli á eitt hjólhýsi í vetur. Það voru á milli tólf og fimmtán þúsund krónur sem fóru í rafmagn þá.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×