Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Freyja Þórisdóttir skrifar 1. nóvember 2026 08:06 Á myndum af vettvangi sást stórt reykský rísa upp úr fjölbýlishúsinu. Aðsend Síðasti bíll keyrði af vettvangi um klukkan eitt í nótt eftir að vinnu lauk við að reykræsta og hreinsa upp svæðið við fjölbýlishús í Norðlingaholti þar sem upp kom eldur á ellefta tímanum. Þá var einn fluttur á slysadeild og skoðaður vegna gruns um reykeitrun en sá virtist ekki hafa hlotið lífshættulega áverka að sögn varaslökkviliðsstjóra. „
Við fáum boðið klukkan 22:52, þá er allt tiltækt lið kallað út og fyrsti bíll er kominn á vettvang klukkan 23:04,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Slökkvistarf hafi gengið vel og að búið hafi verið að slökkva eldinn um klukkan 15 mínútur í tólf. Sá sem var fluttur á slysadeild hafði komið sér sjálfur út úr íbúðinni áður en viðbragðsaðila bar að garði. Hundinum hans var svo bjargað af svölum en íbúðin er á þriðju hæð. Að svo stöddu liggur líðan þess sem var fluttur á slysadeild ekki fyrir en þegar rætt var við Aldísi Rún Lárusdóttir varaslökkviliðsstjóra í gærkvöldi sagði hún ekki hafa verið útlit fyrir að vikomandi væri í lífshættu. Þá segir Sigurjón íbúðina verulega mikið skemmda og að eldsupptök séu enn ókunn en rannsókn standi yfir. Það hafi að öllum líkindum borist eldur um sameign hússins en þá hafi einnig lekið vatn í íbúðirnar á 2. og 1. hæð á meðan slökkvistarfi stóð. Starfsfólk tryggingarfélaga hafi verið fengið á svæðið til að meta skemmdir. „Annars var rosalega mikið að gera í nótt, dælubílarnir fóru í nokkur útköll og það var mjög mikið að gera í sjúkraflutningum,“ segir Sigurjón og bætir við að næturvaktin hafi sinnt ríflega sjötíu útköllum.
Slökkvilið Sjúkraflutningar Reykjavík Hundar Gæludýr Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Sjá meira